Stjórnarbylting í Kirgisistan 25. mars 2005 00:01
Stjórnarbylting var gerð í Kirgisistan á fimmtudaginn og hafa leiðtogar byltingarinnar þegar skipað nýja ríkisstjórn. Rússar segjast reiðubúnir að starfa með nýjum valdhöfum. Boðað hefur verið til kosninga í júní. Eftir að stuðningsmenn Askar Akajev, forseta Kirgisistan, fengu bróðurpart þingsæta í kosningum í febrúar hafa stjórnarandstæðingar mótmælt kröftuglega. Ólgan náði svo hámarki í fyrradag þegar mótmælendur lögðu undir sig skrifstofur forsetans og stjórnarráðsbyggingar í höfuðborginni. Skömmu síðar lýsti hæstiréttur landsins því yfir að kosningarnar væru ógildar og þingmenn sem sátu á síðasta þingi ættu að taka sæti sín á ný. Þingið skipaði svo Kurmanbek Bakijev, einn byltingarleiðtoganna, sem starfandi forsætisráðherra og forseta. Boðað hefur verið til nýrra kosninga í júní. Talsverðar róstur voru í Bishkek aðfaranótt föstudagsins langa. Til átaka kom á götum úti og fjöldi verslana var rændur og eyðilagður. Óstaðfestar fregnir herma að þrír hafi látist og yfir hundrað manns slasast í ólátunum. Viðbúnaður er talsverður í landinu og hefur landamærunum til Kína verið lokað. Í gær tilkynnti svo Bakijev að hann hefði þegar skipað í helstu embætti ríkisstjórnar sinnar. Í ávarpi sínu til þjóðarinnar hvatti hann fólk til að sýna stillingu og hét því að berjast gegn spillingu og flokkadráttum í landinu. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, kvaðst í samtali við Interfax-fréttastofuna harma að stjórnarskiptin í Kirgisistan hefðu ekki átt sér stað eftir lögformlegum leiðum en sagði þó að rússnesk stjórnvöld myndu starfa með hinum nýju valdhöfum. Pútín sagði jafnframt að Akajev fyrrverandi forseti gæti fengið hæli í Rússlandi ef hann vildi. Akajev flúði land þegar ljóst varð í hvað stefndi og er talinn dvelja í Kasakstan. Rússnesk sjónvarpsstöð hafði eftir honum í gær að valdarán hefði verið framið. Kirgisistan er þriðja fyrrum Sovétlýðveldið á rúmu ári þar sem friðsöm stjórnarbylting er gerð. Ólíkt Úkraínu og Georgíu er hins vegar ekki búist við að veigamiklar breytingar verði á stefnu nýrra stjórnvalda í utanríkismálum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Skafið og saltað Veður Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira