Erlent

Gengur illa í lyfjameðferð

Jóhannesi Páli páfa öðrum gengur illa í lyfjameðferð sem hann undirgengst nú í kjölfar veikinda undanfarna mánuði. Ítalska fréttastofan Apcom greinir frá því að hann kasti upp í kjölfar lyfjagjafar, sé haldinn þrálátum höfuðverk og að lyfin hafi ekki tilætluð áhrif. Páfi er einnig sagður mjög veikburða í kjölfar aðgerða. Talsmenn Páfagarðs vísa því þó á bug að hann verði lagður inn á sjúkrahús á ný innan tíðar. Hann mun þó ekki taka mikinn þátt í páskahátíðarhöldum í Páfagarði heldur hefur hann falið undirmönnum sínum þar öll helstu hlutverk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×