Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslendingurinn laus úr haldi en sætir farbanni Karlmaður á fimmtugsaldri sem verið hefur í gæsluvarðhaldi í tvær vikur grunaður um aðild að morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn hefur verið látinn laus úr haldi. Hann sætir þó fjögurra vikna farbanni og má því ekki fara úr landi á þeim tíma. 2.3.2021 14:04
„Mín tilfinning að fólki sé bara sama“ Foreldrar barna í Fossvogsskóla segja traust þeirra til Reykjavíkurborgar brostið í kjölfar upplýsinga- og aðgerðarleysis vegna myglu sem hefur fundist í skólanum. Foreldrar eru sumir hættir að senda börn sín í skólann. 2.3.2021 13:42
Tjónatilkynningar orðnar átján og margir að yfirfara tryggingar Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur fengið 18 tilkynningar um tjón vegna skjálftana. Þá eru margir að yfirfara innbús-og heimilistryggingar sínar hjá tryggingafélögunum. 2.3.2021 13:20
Áslaug segir aðfangadagssímtölin ekki hafa verið að beiðni Bjarna Dómsmálaráðherra segir tvö símtöl við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu um hið svo kallaða Ásmundarsalarmál á aðfangadag hafa verið algjörlega að eigin frumkvæði. Fjármálaráðherra, sem var í salnum á Þorláksmessukvöld, hafi ekki beðið hana um að grennslast fyrir um málið. 2.3.2021 12:44
Svona yrði brugðist við á Keflavíkurflugvelli í eldgosi Litlar líkur eru á að hraun loki Keflavíkurflugvelli komi til eldgoss. Öskufall er helsti áhrifaþáttur á völlinn. 2.3.2021 12:27
„Miklu meiri líkur á að þetta hætti áður en það komi gos“ Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, segir tölfræðina sýna að líklegra sé að jarðskjálftahrinunni á Reykjanesskaga ljúki án þess að það komi til eldgoss. 2.3.2021 12:16
Bein útsending: Saga íslensku stjórnarskrárinnar Ragnhildur Helgadóttir, prófessor og forseti samfélagssviðs HR, fjallar um sögu íslensku stjórnarskrárinnar í stafrænum þriðjudagsfyrirlestri HR og Vísis. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12 og er reiknað með því að hann verði um klukkustund að lengd. 2.3.2021 11:45
Riða komin upp í Húnaþingi vestra Riðuveiki hefur verið staðfest á búi í Húnaþingi vestra í Vatnsneshólfi. Síðast greindist riða í hólfinu árið 2015. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni. 2.3.2021 11:43
Óvíst með frekara gæsluvarðhald yfir Íslendingnum Karlmaður á fertugsaldri frá Litháen, sem fyrstur var handtekinn í tengslum við morðið í Rauðagerði þann 13. febrúar, hefur verið látinn laus úr haldi lögreglu. Hann sætir nú farbanni að sögn Margeirs Sveinsson yfirlögregluþjóns sem fer fyrir rannsókn málsins. 2.3.2021 11:34
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar höldum við áfram að fylgjast með stöðunni á jarðskjálftunum á Reykjanesi. 2.3.2021 11:32
81 árs og eldri streyma í bólusetningu Í dag hófst bólusetning fyrir Covid-19 á einstaklingum í aldurshópnum 81 árs og eldri. Á höfuðborgarsvæðinu fer bólusetningin fram í Laugardalshöll en þangað eru þeir boðaðir sem fæddir eru 1939 eða fyrr að því er segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 2.3.2021 11:23
Þurfti að rjúka til að fara yfir nýjasta skjálftann Ríflega þúsund jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá því um miðnætti. Sá síðasti stóri, skjálfti að stærð 4, reið yfir snemma á ellefta tímanum. Viðtal fréttastofu við náttúrvársérfræðing um stöðuna á jarðhræringunum var einmitt við það að ljúka þegar skjálftinn reið yfir. Sérfræðingurinn þurfti þá að rjúka af stað að fara yfir skjálftann. 2.3.2021 11:01
Katla Þorsteinsdóttir er látin Katla Þorsteinsdóttir lögfræðingur er látin, 57 ára að aldri. Katla lést á heimili sínu þann 1. mars eftir baráttu við krabbamein síðustu ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjölskyldu Kötlu. 2.3.2021 10:46
Minnast Johns Snorra við Vífilsstaðavatn í kvöld Vinir og vandamenn Johns Snorra Sigurjónssonar ætla að hittast við Vífilsstaðavatn í kvöld klukkan 19:30 í þeim tilgangi að biðja og eiga samverustund. Eftir bænastund sem leidd verður af Jónu Hrönn Bolladóttur presti stendur til að mynda hring um vatnið með höfuð og vasaljósum. 2.3.2021 10:46
Enginn greindist innanlands í gær Enginn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Einn greindist með virkt smit á landamærum, og greindist hann í fyrri skimun. 2.3.2021 10:39
Friðrik og Maríanna vilja í formannsstól BHM Friðrik Jónsson, formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, og Maríanna H. Helgadóttir, formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga, hafa gefið kost á sér í embætti formanns Bandalags háskólamanna (BHM). 2.3.2021 10:37
Skjálfti að stærð 4 fannst vel á suðvesturhorninu Jarðskjálfti að stærð 4 varð um 1,5 kílómetra suðvestur af Keili klukkan 10:12 í morgun. Skjálftinn fannst vel á suðvesturhorninu, að því er segir í tilkynningu frá Veðurstofunni. 2.3.2021 10:28
Guðmundur Ingi vill leiða lista VG í Kraganum Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur tilkynnt að hann sækist eftir að leiða lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. 2.3.2021 09:16
Íslendingar þurfi að vera meira vakandi fyrir veikingu hafstrauma sem flytja hlýjan sjó norður á bóginn „Það hafa allar rannsóknir sýnt það hér á landi að meðalhitinn hér er nátengdur hitastiginu í sjónum. Það er ekkert eitt sem hefur jafnmikil áhrif á hitafar hér hjá okkur eins og meðalhitinn í sjónum af því að við erum eyja úti á miðju Atlantshafi. Þess vegna er mjög mikilvægt fyrir okkur að fylgjast mjög vel með allri umræðu sem á sér stað um þetta og öllum rannsóknum og leggja okkar að mörkum til þess að auka hér vöktun og mælingar.“ 2.3.2021 09:00
Fylgjast sérstaklega vel með merkjum um gosóróa Engin merki sjást um gosóróa á Reykjanesskaga en vísindamenn Veðurstofu Íslands fylgjast sérstaklega vel með mögulegum merkjum þar um eftir tilkynningu vísindaráðs almannavarna í gær. Þetta segir Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni, í samtali við fréttastofu. 2.3.2021 08:28
Erla Wigelund er látin Erla Wigelund, kaupmaður í Verðlistanum í Reykjavík, er látin 92 ára að aldri. Hún lést á Hrafnistu Laugarási í Reykjavík 22. febrúar síðastliðinn. 2.3.2021 07:45
Veðrið með rólegra móti miðað við árstíma Í dag er útlit fyrir suðaustan golu eða kalda sunnan heiða með dálítilli rigningu eða slyddu. Þá bætir í úrkomu eftir hádegi og er spáð eitt til sex stiga hita. 2.3.2021 07:07
„Það þarf ekki að taka það fram en ég tók bara handfarangur“ Guðmundur Felix Grétarsson, sem fékk grædda á sig handleggi í Frakklandi í janúar, er nú farinn af Édouard Herriot-sjúkrahúsinu í Lyon þar sem hann hefur dvalið síðastliðnar sjö vikur. Hann er farinn í endurhæfingu á öðru sjúkrahúsi. 1.3.2021 23:40
Telur kviku á sjö kílómetra dýpi vera að þrýsta sér upp Jarðskjálfti upp á 5,1 stig með upptök við Keili varð um hálffimmleytið nú síðdegis. Hann er sá öflugasti í dag í hinni miklu hrinu sem nú skekur suðvesturhorn Íslands og ekkert lát virðist á. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir hrinuna núna skýrustu vísbendingu á síðari árum um að við séum að nálgast nýtt eldgosatímabil á Reykjanesskaga. 1.3.2021 22:06
Búið að bólusetja um 3,5% Íslendinga Allir íbúar á höfuðborgarsvæðinu sem eru áttatíu ára eða eldri hafa fengið boð í Covid-19 bólusetningu. Búist er við að í þessari viku verði tæplega níu þúsund manns bólusettir. 1.3.2021 21:30
„Þetta hlýtur að enda með einhverjum ósköpum“ Engin rýmingaráætlun er til fyrir Reykjanesbæ og Voga, fari að gjósa, en unnið er að gerð hennar. 1.3.2021 20:49
Kvíði og hræðsla eðlileg viðbrögð við jarðhræringum Sálfræðingur segir kvíða og hræðslu vegna jarðhræringa vera ósköp eðlileg viðbrögð við jarðhræringum eins og þeim sem hafa verið á Reykjanesskaga upp á síðkastið, og fundist víðar um land. 1.3.2021 20:20
Vilja stofna miðstöð á Reykjalundi fyrir fólk með eftirköst eftir Covid Á því eina ári sem kórónuveirufaraldurinn hefur geisað hér á landi hafa meira en sex þúsund manns greinst smitaðir af veirunni. Margir kljást við mikil eftirköst eftir veikindin og hefur Reykjalundur sótt um aukafjármagn hjá Sjúkratryggingum Íslands til þess að geta tekið á móti þessum hópi. 1.3.2021 20:11
Óboðlegt að ríkari kröfur séu gerðar um klæðaburð í Costco en á Alþingi Reglur um klæðaburð á Alþingi eru til skoðunar í forsætisnefnd Alþingis. Þingmaður Miðflokksins segir óboðlegt að meiri kröfur séu gerðar um snyrtilegan klæðnað í Costco en á þjóðþingi Íslendinga. 1.3.2021 19:01
Settu upp beint streymi af Keili ef það skyldi gjósa Staðarmiðillinn Víkurfréttir í Reykjanesbæ sendir nú út beint streymi af fjallinu Keili, eftir að fregnir bárust af því að líkurnar á eldgosi á Reykjanesskaga gætu verið að aukast. Streymið er tekið upp út um glugga á skrifstofuhúsnæði á fjórðu hæð, sem ritstjórinn segir hafa vaggað nánast stanslaust síðustu daga. 1.3.2021 18:46
Einn úrskurðaður í farbann vegna morðsins í Rauðagerði Einn var í dag úrskurðaður í átta daga farbann, eða til þriðjudagsins 9. mars, í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það er gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 1.3.2021 18:43
Líklegasta skýring á jarðskjálftunum að kvikuinnskot sé að myndast Vísindaráð almannavarna telur líklegustu skýringu jarðskjálftavirkninnar á Reykjanesskaga undanfarna daga vera þá að kvikugangur sé að myndast undir svæðinu þar sem mest jarðskjálftavirkni hefur verið. Ráðið skoðaði gervihnattamyndir sem bárust í dag og sýnir úrvinnsla úr þeim myndum meiri færslu en áður hefur orðið vart við. 1.3.2021 18:08
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um skjálftahrinuna sem ríður yfir landið. Meðal annars verður rætt við Ragnar Stefánsson, jarðskjálftafræðing, og bæjarstjóra á Reykjanesinu um rýmingaráætlun. 1.3.2021 18:01
Skjálfti upp á 5,1 á suðvesturhorninu Kraftmikill jarðskjálfti 5,1 að stærð fannst vel á suðvesturhorninu um klukkan 16:35 í dag. Skjálftinn fannst meðal annars vel á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarnesi, á sunnanverðu Snæfellsnesi og á Hvolsvelli. 1.3.2021 16:37
Óvíst um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Íslendingnum Engin ný tíðindi eru af rannsókn lögreglu á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Þetta segir Margeir Sveinsson í tilkynningu frá lögreglu. Yfirheyrslur og úrvinnsla gagna haldi áfram en sé mjög tímafrekt. 1.3.2021 16:03
Sá sem greindist í gær reyndist með mótefni Íslendingur sem greindist með kórónuveiruna innanlands í gær reyndist með mótefni, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. Því var um gamalt smit að ræða. 1.3.2021 15:43
Rýmingaráætlun ekki tilbúin en flóttaleiðir þó margar og greiðar Bæjarstjóri í Vogum hefði gjarnan viljað að rýmingaráætlun fyrir Suðurnes væri tilbúin, nú þegar jarðskjálftar skekja svæðið. Sem betur fer séu þó greiðar flóttaleiðir frá Vogum til margra átta, komi til eldgoss. Þá séu jarðskjálftarnir alltaf jafnóþægilegir þegar þeir ríða yfir. 1.3.2021 15:28
Bauðst til að borga táningsstúlku til að sleppa við kæru Íslenskur karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotið gegn blygðunarsemi táningsstúlku. Birti hann kynferðislega mynd af henni á vefsíðu ásamt nafni hennar og upplýsingum um notendanafn hennar á samfélagsmiðlinum Snapchat. 1.3.2021 14:55
Telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur Jarðskjálftafræðingur telur ekki þörf á því að fólk pakki niður í töskur til að geta yfirgefið heimili sín í flýti. Borið hefur á umræðu um slíkt á samfélagsmiðlum meðal íbúa á suðvesturhorninu, þar sem mikil jarðskjálftahrina hefur staðið yfir síðan á miðvikudag. 1.3.2021 14:29
Snarpur skjálfti á Reykjanesi Snarpur skjálfti fannst vel á suðvesturhorninu, meðal annars á höfuðborgarsvæðinu, um klukkan 13:50 í dag. Skrifstofur fréttastofu á Suðurlandsbraut í Reykjavík hristust vel en skjálftinn varði þó nokkuð skemur en stóru skjálftarnir sem urðu í nótt og á laugardagsmorgun. 1.3.2021 13:53
Fékk skyldmenni í heimsókn í sóttkvíarbústað Einstaklingur sem var í skimunarsóttkví í sumarbústað í umdæmi lögreglu á Suðurlandi fékk ættingja í heimsókn til sín í sóttkvína, að því er fram kemur í vikuyfirliti lögreglu á Suðurlandi sem birt var í dag. 1.3.2021 13:42
1.500 skjálftar í dag Tæplega 1.500 jarðskjálftar höfðu greinst á mælum Veðurstofu Íslands frá miðnætti til hádegis í dag. Sá stærsti var 4,9 að stærð, klukkan hálf tvö í nótt. 1.3.2021 13:18
Hamfarir Skaftárelda rifjaðar upp í þætti um Meðalland Nærri 240 árum eftir Skaftárelda tala Skaftfellingar enn um „fyrir eld“ og „eftir eld“, svo víðtæk áhrif hafði eldgosið hrikalega úr Lakagígum á Eldsveitirnar, svæðið milli Mýrdalssands og Skeiðarársands. 1.3.2021 12:49
Svona hljómaði stóri skjálftinn í nótt Stór jarðskjálfti sem reið yfir klukkan hálf tvö í nótt og mældist 4,9 að stærð varði í ríflega tuttugu sekúndur, ef marka má hljóðupptöku úr Hlíðunum í Reykjavík. Upptökuna má finna neðst í fréttinni. 1.3.2021 12:49
Áhersla lögð á að koma réttum upplýsingum til skelkaðra íbúa af erlendum uppruna Bæjarstjórinn í Grindavík segir að mikil hræðsla hafi gripið um sig hjá fólki af erlendum uppruna í samfélaginu vegna jarðskjálftana undanfarið. Margir hafi litla reynslu af jarðskjálftum og eina þekkingin komi frá fréttamyndum af miklum hörmungum í kjölfar þeirra. Áhersla sé lögð á að koma réttum upplýsingum til hópsins. 1.3.2021 12:33