Fleiri fréttir

Mun ekki tjá sig efnislega um lekamálið fyrr en niðurstaða liggur fyrir

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur ítrekað beðist undan því að mæta í viðtal í Kastljósið til að ræða trúnaðarbrest sem kom upp í innanríkisráðuneytinu. Hún hafði áður samþykkt að veita Kastljósi viðtal í vikunni en hefur hætt við það í bili.

"Klám er ekki rauveruleikinn“

Nú þegar íslenskir unglingspiltar eiga norðurlandamet í klámáhorfi er mikilvægt að leggja áherslu á að aðgreina klámið frá raunveruleikanum. Þetta segir Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur, sem meðal annars notar Hollywood-myndir til að vekja athygli ungmenna á óraunveruleika kláms.

Jónína Ben dæmd í 30 daga fangelsi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Jónínu Benediktsdóttur í 30 daga fangelsi fyrir ölvunarakstur og var hún svipt ökurétti ævilangt.

„Ég ætla að labba aftur, það er alveg á hreinu“

„Ég ætla að labba aftur, það er alveg á hreinu.“ Þetta segir Aðalbjörg Guðgeirsdóttir sem lamaðist fyrir tæpum þremur áratugum. Einu sinni í viku segir hún engu að síður skilið við hjólastólinn og fer í stuttan göngutúr. Hún er sannfærð um að fá göngugetuna aftur og bíður þess að vísindamenn hysji upp um sig buxurnar.

Samsæri um bankana og kynvitund á Alþingi

Vigdís Hauksdóttir minnti á bréf Víglundar Þorsteinssonar til Alþingis í umræðum í dag en þar er forysta fyrri ríkisstjórnar sökuð um samsæri. Helgi Hrafn Gunnarsson vill auka tjáningarfrelsið með afnámi fangelsisrefsingar fyrir ólögleg ummæli um minnihlutahópa.

Lömdu og rændu unga stúlku

Tvær ákærðu veittust að öðru fórnarlambinu sem var þá 19 ára með spörkum í bak jafnframt sem þær slógu hana í andlitið með höndunum og með spýtu í lærið.

Endurspeglar refsiþorsta yfirvalda í fíkniefnamálum

Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata segir að eins árs fangelsisdómur yfir spænskri stúlku sem var handtekin á Keflavíkurflugvelli í október fyrir fíkniefnasmygl endurspegli refsiþorsta yfirvalda í fíkniefnamálum.

Tennur grísa slípaðar til að minnka skaða

„Mér þykir furðulegt að heyra virtan dýralækni gefa það í skyn að það sé ekki verið að huga að velferð svína þegar tennur þeirra eru slípaðar,“ segir Hörður Harðarson, formaður Svínaræktarfélags Íslands.

Mannréttindi og viðskiptahagsmunir togast á

Utanríkisráðherra segir samkomulag við Kínverja um hvernig rætt skuli um vinnuverndar- og mannréttindamál við Kína. Talskona Falun Gong er á móti fríverslunarsamningi við Kína sem bíður staðfestingar Alþingis.

Ákærðu í Gálgahraunsmáli neituðu öll sök

Ein þeirra ákærðu er 71 árs gömul kona sem sat í hrauninu með kaffibrúsann sinn af hugsjón. "Maður hlýtur að velta því fyrir sér hver situr á toppnum,“ segir Skúli Bjarnason, lögmaður fjögurra ákærðu.

Flestir vilja sjá Dag sem borgarstjóra

Rétt tæplega helmingur þeirra, sem spurðir voru í könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans fyrir Morgunblaðið, vill að Dagur B.Eggertsson verði næsti borgarstjóri.

Hálka víða um land

Mikil hálka er víða á vegum landsins, en ekki er vitað um slys eða óhöpp vegna hennar. Í gærkvöldi varaði Veðurstofan við því að hiti færi lækkandi á láglendi og yrði í kringum frostmarkið í nótt.

Framhaldsskólakennarar eiga digran verkfallssjóð

Samningar framhaldsskólakennara renna út í lok janúar. Djúp gjá milli kennaranna og viðsemjenda þeirra. Framhaldsskólar eru hringlandi beinagrindur. 1.400 milljónir króna í sameiginlegum verkfallssjóði.

Ráðherrar beiti sér fyrir Hjördísi

Björt Ólafsdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, kallaði eftir því á Alþingi í gær að ráðherrar ríkisstjórnarinnar beittu sér í máli Hjördísar Svan.

Ráðherra svari Skagfirðingum

"Það algera áhugaleysi sem ráðherrar í ríkisstjórn Íslands undir forystu Framsóknarflokksins sýna málefnum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki er vægast sagt sláandi,“ segir í bókun Sigurjóns Þórðarsonar, fulltrúa Frjálslyndra og óháðra í sveitarstjórn Skagafjarðar.

Ungri konu byrlað ketamín í Keflavík

Alexandra Marý Hauksdóttir varð fyrir vægast sagt slæmri lífsreynslu um helgina en henni var byrlað ketamín á skemmtistað í Reykjanesbæ.

Þörf á túlkun metin þrátt fyrir lögbundinn rétt

Samkvæmt reglum Heilsugæslunnar taka heilbrigðisstarfsmenn ákvörðun um hvort pantaður sé túlkur. Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands segir hvergi koma fram í lögum að meta eigi þörf á túlkun heldur séu það skýr réttindi.

Of mikið magnesíum veldur niðurgangi

Mikið magnesíumæði hefur gripið landann á nýju ári og virðist almenningur vera nota efnið til að hreinsa líkamann og jafnvel til að léttast.

Spurt um uppruna peninga

Dönsk skattayfirvöld fóru í sérstakt átak til að kanna fjármagnsflutninga frá Danmörku til lágskattaríkja.

Bæjarstjórnarfundir fyrir opnum dyrum

„Bæjarstjórnarfundir eru haldnir fyrir opnum dyrum,“ segir í svari Kópavogsbæjar til Kauphallar Íslands sem óskaði skýringa á því að fjölmiðlar sögðu frá samþykkt um byggingu félagslegs húsnæðis áður en tilkynning barst um málið til Kauphallarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir