„Ég er trillukarl í Ólafsvík en ekki einhver símstöðvarstjóri“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 28. janúar 2014 16:00 Stefán hefur ekki haft undan að svara símanum í dag vegna mistaka Svavars Mynd/Alfons Finnsson „
Ég er trillukarl í Ólafsvík en ekki einhver símstöðvastjóri,“ segir Stefán Pétursson sem hefur svarað símanum í allan dag vegna mistaka í fréttatilkynningu frá Svavari Halldórssyni um örþörungaverksmiðju á Reykjanesi. Þar var símanúmer Stefáns sett í stað símanúmers Skarphéðins Orra Björnssonar framkvæmdastjóra líftæknifyrirtæksins Algalífs. Stefán hefur varla haft undan að svara símanum frá því að tilkynningin var send út í morgun. „Ég svara alltaf þegar hringt er, þannig er ég bara,“ útskýrir trillukarlinn og heldur áfram: „Ein kona frá Garðabæ hringdi í mig og við byrjuðum að spjalla um fráfarandi útvarpsstjóra,“ segir Stefán án þess að geta þess hvernig samtalið þróaðist í þá áttina. „Ég gat sagt henni að við Páll Magnússon vorum saman í barnaskóla og pabbar okkar voru vinir. Ég gat sagt konunni að Páll væri indælismaður,“ útskýrir Stefán. Dagurinn átti að fara í að setja nýja vél í trilluna. „Ég er að setja vél í bátinn sem kostar sjö milljónir. Ég segi nú ekki að símsvörunin hafi eyðilagt daginn, en það eru komnar ansi margar hringingarnar. Fólk hefur spjallað mislengi við mig,“ segir Stefán og hlær. Hann segir blaðamanni glaður frá fyrri tímum á sjónum og áhættuatriðum úti á rúmsjó þegar hann var þrettán ára gamall. Svavar Halldórsson, sem sendi tilkynninguna frá sér í morgun, hafði heyrt í Stefáni þegar blaðamaður hafði samband. „Ég bað hann afsökunar á þessu. Svo kom í ljós að við erum báðir Vestmannaeyingar og hann þekkti pabba minn. Þetta er dásamlega lítill heimur,“ segir Svavar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Leggjast gegn því að útivistartími tíu til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira