Menntamálaráðuneytið neitar að láta upplýsingar af hendi Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 27. janúar 2014 22:08 Hjördís Birna Hjartardóttir er lögmaður um 100 kennara sem krefja menntamálaráðuneytið um skýringar á útgáfu starfsleyfa kennara. Kennararnir telja að brotið hafi verið á þeim við útgáfu starfsleyfa.
Hjördís Birna Hjartardóttir lögmaður segir að menntamálaráðuneytið hafni því að gefa upplýsingar um útgefin leyfisbréf til kennara frá og með 1. júlí 2011 til dagsins í dag. Í svari sem henni hafi borist frá ráðuneytinu segi að ráðuneytið telji það útheimta of mikla vinnu að safna saman þessum upplýsingum. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu telja um 100 kennarar sem luku þriggja ára kennaranámi á tímabilinu 2009 til 2012 að menntamálaráðuneytið hafi brotið gróflega á þeim við útgáfu starfsleyfa til kennara. Á sama tíma og þeim var synjað um starfsleyfi fékk hópur skólafélaga þeirra með sömu menntun og próf leyfið. Nemendurnir útskrifuðust frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík.Árið 2008 voru sett ný lög um kennaranám. Nýju lögin áttu að gilda um alla þá sem hæfu nám eftir gildistöku laganna og áttu þeir að ljúka fimm ára námi til að fá starfsleyfi sem kennarar. Hjördís Birna Hjartardóttir, lögmaður hópsins sem synjað hefur verið um starfsleyfi, segir að framkvæmd og beiting laganna innan stjórnsýslunnar hafi misfarist í mörgum atriðum, bæði innan háskólanna og af hálfu menntamálaráðuneytisins. „Umbjóðendur mínir fengu fregnir af því að loknu námi að ráðuneytið væri að gefa út starfsleyfi til 15 skólafélaga þeirra. Það fólk hafði lokið þriggja ára námi en var skyndilega komið með starfsleyfi í hendurnar. Umbjóðendur mínir hafa hins vegar allir fengið synjun þrátt fyrir að þeir hafi lokið sama námi.“ Hún segir að hópinn gruni að fleiri hafi fengið slík leyfi. Umbjóðendur Hjördísar fóru þess á leit að ráðuneytið tæki upp mál þeirra og gæfi út starfsleyfi fyrir þá. „Ráðuneytið hefur sagt að í einhverjum tilvikum hafi starfsleyfi verið gefin út fyrir mistök. Dæmin eru hins vegar of mörg til að það sé hægt að skýra þau á þann hátt. Það er ekki hægt að flokka þetta sem mistök, þetta er gróf mismunun,“ segir Hjördís Birna.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira