Fleiri fréttir

Þorbjörg Helga í oddvitaslag í borginni

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna fyrir borgarstjórnarkosningar næsta vor. Hún hyggst leggja höfuðáherslu á fjármál borgarinnar og menntamál.

Fjármagn tryggt til túlkaþjónustu

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, um að hækka framlag til Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra fyrir þetta ár um sex milljónir króna.

"Pabbi er alltaf í Starcraft“

"Mamma talar og talar og talar í símann og pabbi er alltaf í Starcraft“ segir skólastúlka þegar hún var spurð að því hvort foreldrar hennar noti mikið síma og tölvu.

Félagsráðgjafar vilja ekki legugjöld

Stjórn Félagsráðgjafafélags Íslands harmar ákvörðun ríkisstjórnarinnar að setja eigi sérstakt legugjald á sjúklinga sem dvelja á sjúkrahúsi.

Stofna ráðherranefnd um málefni norðurslóða

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flutti í dag lokaerindi á ráðstefnu um þróun orkumála á norðurslóðum, Arctic Energy Summit. Í máli sínu fjallaði hann meðal annars um hugmyndir um að setja á fót alþjóðlega viðbragðs- og björgunarmiðstöð á Íslandi.

Lagerback mun tala ensku eftir leik Íslands og Kýpur

Ákveðið hefur verið innan Ríkisútvarpsins að hætta því fyrirkomulagi að tala við viðmælenda á móðurmáli þeirra ef svo er hægt. Miklar umræður sköpuðust eftir leik Íslands og Albaníu þegar viðtal var tekið við Lars Lagerback landsliðsþjálfara íslenska knattspyrnuliðsins á sænsku.

SFR segir forgangsraðað í þágu auðmanna

Trúnaðarmannaráð SFR mótmælir þeim áherslum harðlega sem fram koma í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar þar sem forgangsraðað er í þágu auðmanna.

Beit einn í brjóstið og annan í nefið

Íslenskur karlmaður dæmdur fyrir að slá mann kjálkabrjóta mann og bíta hann í brjóstið þannig að blæddi og bíta annan í nefið þannig að hluti nefsins fór af.

„Blessunarlega var enginn heima“

Sólveig Arnarsdóttir, leikkona, býr við Urðarstíg rétt við húsið sem kviknaði í fyrir stundu. Þau hjónin voru heima þegar slökkviliðið mætti á staðinn.

Glerhjúpur Hörpu verður bleikur næstu daga

Glerhjúpur Hörpu mun skarta bleikri lýsingu frá 11.-17. október næstkomandi. Liturinn er táknrænn um þessar mundir enda átakið Bleika slaufan í fullum gangi í baráttu gegn brjóstakrabbameini.

Deilt um lögmæti verðtrygginga

Hæstiréttur Íslands kvað í fyrradag upp þann dóm að prófmáli vegna verðtryggingar yrði vísað til EFTA-dómstólsins.

Fengu áritaða landsliðstreyju að gjöf

Nemendur leikskólans Álfaheiði í Kópavogi fengu áritaða landsliðstreyju gefins frá KSÍ sem þau munu gefa í afmælisgjöf til Lúkasar, en leikskólinn er styrktarforeldri hans.

Munro mun mælast vel fyrir

Kanadíska skáldkonan Alice Munro (f. 1931) hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum í ár; þrettánda konan til að hljóta þessi verðlaun og fyrsti Kanadamaðurinn. Illugi Jökulsson telur að val nefndarinnar muni mælast vel fyrir.

Umferðarslys í morgunsárið

Tilkynnt var um umferðarslys á Vesturlandsvegi við Álafossveg klukkan 06:52. Þar hafði átt sér stað árekstur tveggja bifreiða sem báðum var ekið í suður, inni í Mosfellsbæ.

Yfir 900 manns ræða málefni Norðurskautsins í Hörpu

Ráðstefnan Arctic Circle fer fram í Hörpu um helgina og er það í fyrsta sinn sem ráðstefnan er haldin. Fleiri en 900 manns munu taka þátt á ráðstefnunni frá 40 löndum og er þetta stærsta samkoma af sinni tegund í heiminum til þessa.

Mesta netfrelsi í heimi á Íslandi

Ísland getur státað sig af mesta netfrelsi í heimi ef marka má nýlega rannsókn. Í rannsókinni er litið á þær hindranir sem steðja að netverjum og kom Ísland best út úr rannsókninni.

Vilja jafna aðstæður stúdenta á leigumarkaði

Þingflokkur Bjartrar framtíðar hefur lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um húsaleigubætur þannig að stúdentar sem leigja saman á almennum markaði njóti sömu kjara og þeir sem fá sérstakar stúdentaíbúðir.

Ömurleg óþægindi vegna klúðurs með afsal

Hjón komust að því að fasteignasali hafði aldrei þinglýst afsali á fasteign þeirra. Þau þurftu að biðja fyrri eiganda að skrifa undir skuldbreytingu á húsnæðisláni.

Vilja áfram samstarf í Stafdal

Skíðafélagið í Stafdal hefur sent Fljótsdalshéraði uppsögn á samningi um rekstur skíðasvæðisins í Stafdal.

Leigi íbúðir sínar út sem allra fyrst

Bæjarráð Árborgar skorar á Íbúðalánasjóð að koma húsnæði, sem er í eigu sjóðsins og stendur autt, tafarlaust í íbúðarhæft ástand og í útleigu.

Sífellt fleiri konur gefa úr sér egg

Biðlisti eftir gjafaeggjum hefur styst hjá Art Medica. Á þriðja tug para eru á listanum og bíða í allt að hálft ár eftir gjafaeggi. Gjafar fá greitt óþægindagjald.

Landspítala vantar þrjá milljarða króna

Heilbrigðisráðherra segist gera sér grein fyrir vanda sjúkrahússins. Þingmaður fagnar því að skilningur virðist vera á því meðal þingmanna að sjúkrahúsið þurfi meira fé. Annar segir að hætta eigi tali um nýtt hátæknisjúkrahús.

Fallið verði frá sjúklingagjaldi

Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík mótmælir harðlega ætlun ríkisstjórnarinnar að leggja 1.200 króna gjald á þá sem leggjast inn á Landspítalann og aðrar sjúkrastofnanir. Telur nefndin gjaldið bitna á öldruðum og skorar á stjórnvöld að falla frá því. Þegar séu komugjöld og aðrir sjúklingaskattar of háir.

Pappírstunnur í mörgum litum

Reykjavíkurborg hættir á morgun að tæma gráar eða grænar tunnur borgarinnar sem innihalda endurvinnanlegan pappír eða pappa.

Kynferðisbrotamáli vísað aftur til lögreglu

Lögreglan á Akranesi bíður nú eftir niðurstöðum úr læknisrannsóknum og gögnum um sjúkrasögu rúmlega áttræðs manns af Snæfellsnesi sem grunaður er um að hafa brotið kynferðislega gegn stjúpdóttur sinni í áratugi.

Nagladekk eru best á ísi lögðum vegum

Munur á hemlunarlengd besta nagladekksins og besta vetrardekksins á ís reyndist vera 14 metrar í könnun finnskra sérfræðinga. Lítið öryggi þegar nöglum fækkar.

Flögg og eyjur hverfa af Hofsvallagötu

Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði að fjarlægja flögg og eyjur sem eru á Hofsvallagötu. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir að viðurkenna hefði átt mistök. Ósáttur íbúi segir að ganga hefði átt lengra og tvöfalda akreinar nærri ljósum.

Upplýsingaskilti sýni ökumönnum heppilegan hraða

Fækka mætti umferðarslysum, draga úr mengun og sliti á götum með því að bæta stýringu umferðarljósa í borginni segir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Tölvukerfið sem stýrir umferðarljósum tekur ekki mið af ytri aðstæðum eins og hálku.

Fleiri vörur með skrúftappa

Mjólkurumbúðir frá MS munu breytast á næstunni eftir að mjólkurpökkun fyrirtækisins fyrir Suður- og Vesturland hefur verið flutt til Selfoss.

Styrktist sjálf með því að hjálpa öðrum

Helga Hallbjörnsdóttir, formaður mannúðarsamtakanna Handarinnar, opnar heimili sitt fyrir þeim sem eru hjálparþurfi. Veit sjálf hvernig það er að þjást af kvíða, þunglyndi og örlyndi. Styrkir til samtakanna hafa verið skornir niður.

Taka ekki þátt í viðræðum um sameiningu

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur afþakkað boð um þátttöku í sameiningarviðræðum Akraness, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps. Ástæðan mun vera sú að of stutt sé síðan Sveitarfélagið Hvalfjarðarsveit varð til með sameiningu fjögurra sveitarfélaga.

Sjá næstu 50 fréttir