Ömurleg óþægindi vegna klúðurs með afsal Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 10. október 2013 07:45 Þórunn Sigurðardóttir og Þorsteinn Ólafsson keyptu hús í Vogum á Vatnsleysuströnd en fengu ekki afsalið. Fréttablaðið/Valli „
Við vorum að skuldbreyta hjá okkur og þegar ég fór með samninginn frá bankanum í þinglýsingu kom í ljós að afsalinu á húsinu okkar hafði aldrei verið þinglýst því fasteignasalinn sendi það aldrei til sýslumanns,“ segir Þórunn Sigurðardóttir læknaritari, sem var búin að búa í fjögur ár í fasteign sinni þegar það kom í ljós að í raun voru hún og maður hennar ekki fullgildir eigendur eignarinnar. Hjónin hafa þó greitt fasteignagjöld og fengið vaxtabætur allan tímann. Kaupsamningi var þinglýst og þau höfðu skrifað undir afsal á eigninni en fasteignasalinn gleymdi að fara með afsalið í þinglýsingu. „Þegar við komumst að þessu fórum við til fasteignasalans til að fá afsalið og láta þinglýsa því en þá fann hann engin gögn. Við vorum í tímaþröng með skuldbreytinguna og til að fá hana í gegn hjá bankanum þurftum við að fara til fyrri eiganda hússins okkar og biðja hann um að skrifa undir lánsumsóknina. Það var ömurlegt að þurfa að blanda honum í okkar fjármál og í raun hefði hann vel getað neitað,“ segir Þórunn og bendir á að hefði hún ekki farið í breytingu á íbúðarláninu viti hún ekki hvenær hún hefði komist að því að þau hjónin væru ekki með þinglýsta eignarheimild á fasteigninni.Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.Hjónin borguðu á annað hundrað þúsund til fasteignasölunnar í svokallað umsýslugjald. Í gjaldinu felst að fasteignasalinn ber til að mynda ábyrgð á að þinglýsa samningum og ganga frá sölunni.Óþægindi en ekki tjón Til að fasteignasalar geti rækt lagalega skyldu sína samkvæmt lögum nr. 99/2004 um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa er nauðsynlegt að fasteignasali sjái sjálfur um að koma skjölum til þinglýsingar enda getur það varðað hann skaðabótaskyldu ef kaupandi eða seljandi hyggjast ganga frá þeim málum og gögnin skila sér ekki. Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir takmarkanir vera á eignarrétti þegar afsali hefur ekki verið þinglýst. „Aðalmálið er að kaupandi hefur ekki fullan yfirráðarétt, getur ekki fengið veð eða selt eignina. En það er ekki skaðabótaskylda á fasteignasalann þar sem fólk verður ekki fyrir tjóni en vissulega verður það fyrir óþægindum og leiðindum,“ segir Grétar Jónasson.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Sjá meira