Stofna ráðherranefnd um málefni norðurslóða Samúel Karl Ólason skrifar 10. október 2013 17:20 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Mynd/Valgarð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson flutti í dag lokaerindi á ráðstefnu um þróun orkumála á norðurslóðum, Arctic Energy Summit. Þetta kemur fram á vef forsætisráðuneytisins. Ráðstefnan var haldin á Akureyri og verður haldin aftur á Íslandi árið 2017. „Í erindi sínu ræddi forsætisráðherra meðal annars þær öru breytingar sem eiga sér stað á norðurslóðum og mikilvægi heildstæðrar nálgunar til að nýta tækifærin og takast á við þær áskoranir sem í þeim felast," segir í tilkynningunni. Hann greindi einnig frá stofnun sérstakrar ráðherranefndar um málefni norðurslóða. Nefnd þessari er ætlað að tryggja samræmda og heildstæða hagsmunagæslu Íslands á æðstu stigum stjórnsýslunnar. Forsætisráðherra mun stýra nefndinni og utanríkisráðherra, innanríkisráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra eiga fast sæti í henni. „Forsætisráðherra ræddi ennfremur tækifæri til auðlindanýtingar á Drekasvæðinu og samhengi mögulegs efnahagslegs ávinnings og samfélagslegrar ábyrgðar. Í þeim efnum væru í þróun hugmyndir um að setja á fót alþjóðlega viðbragðs- og björgunarmiðstöð á Íslandi. Einnig áréttaði forsætisráðherra mikilvægi sjálfbærni í orkumálum og tækifæri Íslands til nýtingar og þekkingarmiðlunar á hreinni og endurnýjanlegri orku.“ Sigmundur Davðíð sagði samstarf norðurskautsríkjanna vera farsælt og að það færi mjög vaxandi þar á meðal innan Norðurskautsráðsins.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Innlent Fleiri fréttir Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Sjá meira