Landspítala vantar þrjá milljarða króna Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 10. október 2013 07:00 Fjárvana Þingmenn á Alþingi ræddu vanda Landspítalans í gær. Heilbrigðisráðherra sagði að hann hefði átt í viðræðum við formann og stjórn byggingarnefndar nýs Landspítala og hefði óskað eftir tillögum og hugmyndum frá þeim. Fréttablaðið/GVA „
Hættum að tala um nýtt hátæknisjúkrahús, tölum um eðlilegt viðhald á gömlum húsum,“ sagði Þórunn Egilsdóttir Framsóknarflokki í umræðum um Landspítalann á Alþingi í gær. Þórunn sagði jafnframt að það hefði komið fram á fundi með stjórnendum sjúkrahússins að þrjá milljarða króna vantaði til reksturs og uppbyggingar þess á næsta ári. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Samfylkingu sagði að það hefði ekki farið fram hjá nokkrum manni að óánægja starfsfólks á Landspítalanum færi vaxandi. „Sú óánægja snýr ekki síst að þeirri staðreynd að þær fyrirætlanir sem uppi voru um endurnýjun húsakosts sjúkrahússins eru nú í uppnámi og ekki virðist mikill skilningur á þörfinni hjá núverandi stjórnvöldum,“ sagði þingmaðurinn. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði stjórnvöld hafa skilning á því að Landspítalinn þyrfti endurbættan húsakost. „Ég hef átt í viðræðum við formann byggingarnefndar nýja Landspítalans og staðið í viðræðum við aðra stjórnarmenn um að þetta mál þurfi að útfæra,“ svaraði ráðherrann. Kristján sagðist hafa kallað eftir hugmyndum í þá veru og falið stjórninni að stilla upp sundurliðuðum möguleikum á framkvæmdinni bæði hvað varðar aðalbygginguna og ekki síður smærri þætti verksins. Sigríður Ingibjörg vildi fá svar við því hvernig ætti að tryggja fjármuni til tækjakaupa á sjúkrahúsinu. Heilbrigðisráðherra sagði að hann og fjármálaráðherra ætluðu að fara fram á að gerð yrði tímasett áætlun til fjögurra ára um tækja- og búnaðarþörf spítalans. „Við verðum að leggja aukið fé til spítalans, það er engin spurning í mínum huga,“ sagði Elín Hirst Sjálfstæðisflokki. Hún sagði að það mætti þó ekki gera með því að auka skuldasöfnun ríkisins. Peningana yrði að finna með öðru móti. Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, sagði frekari niðurskurð á fjárframlögum til spítalans ekki gerlegan. Hann sagðist fagna því að svo virtist sem það væri að myndast samhljómur og skilningur meðal þingmanna á því að sjúkrahúsið þyrfti meira fé svo hægt yrði að fara í nauðsynleg tækjakaup, viðhald og uppbyggingu.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Fleiri fréttir Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Sjá meira