Fleiri fréttir

Ekki búið að ákveða hvort sýknudómi verði áfrýjað

Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort að sýknudómi yfir Styrmi Þór Bragasyni, fyrrum forstjóra MP banka, verði áfrýjað til Hæstaréttar. Áfrýjunarfrestur í málinu rennur út 28. febrúar næstkomandi.

Íslendingar sakaðir um mannréttindabrot vegna fangaflutninga

Íslendingar eru í hópi 54 ríkja sem heimiluðu bandarískum stjórnvöldum að fljúga með fanga um lofthelgi Íslands og/eða afnot af flugvöllum á Íslandi. Þetta fullyrða mannréttindasamtökin Open Society Justice Initiative (OSJI) í nýrri skýrslu sem Guardian vitnar í.

Veittist að eiganda netkaffis og hótaði honum lífláti

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa veist að eiganda netkaffihúss þann 30. desember síðastliðinn, hótað honum lífláti og ofbeldi og krafið hann um 5000 krónur. Hann hafi því næst tekið slökkvitæki og haldið því á lofti og ógnað honum og starfsmanni staðarins.

Í gæsluvarðhaldi til fimmtudags vegna Skagastrandarárásar

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur úrskurðað um gæsluvarðhald yfir tveimur ungum mönnum sem réðust inn til afa annars þeirra á Skagaströnd á sunnudag og gengu í skrokk á honum. Þeir verða í varðhaldi til fimmtudags og féllst dómari því ekki á kröfu lögreglunnar um vikulangt varðhald yfir þeim.

FBI tók piltinn með sér til Washington

Maðurinn sem FBI yfirheyrði var fluttur af landi brott eftir að innanríkisráðuneytið tjáði fulltrúum alríkislögreglunnar um að þeir væru ekki velkomnir hér á landi. Hann var svo yfirheyrður í fjóra daga til viðbótar í Washington samkvæmt heimildum Vísis.

Baráttan á Landspítalanum - "Maður er bara hissa"

"Ég vil ekki segja vonbrigði, en maður er bara hissa ef eitthvað er,“ segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans. Um 91 prósent hjúkrunarfræðinga höfnuðu stofnanasamning sem kynntur var á Grand Hóteli í gærkvöldi.

Börnin þéna vel á síldarævintýrinu í Kolgrafafirði

Sannkallað síldarævintýri hefur ríkt í fjörunum við Kolgrafafjörð á Snæfellsnesi í allan morgun, þar sem að minnstakosti 50 ungmenni úr Grundarfirði keppast við að tína dauða síld upp í kör, sem síðan verða flutt til Sandgerðis, þar sem síldinni verður breytt í loðdýrafóður til útflutnings.

Mikilvægt að rannsaka áhrif síldardauðans á fuglalíf

Heimamenn vinna í dag við að hreinsa upp síld sem hefur drepist í Kolgrafafirði. Mikilvægt er að bregðast hratt við því hreinsunin gengur best á meðan síldin er enn fersk. Svandís Svavarsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, bar málið upp í ríkisstjórn í morgun.

Ók á bíl og kýldi í báðar bílrúðurnar

Ökumaður tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum í fyrradag, að hann hefði lent í umferðaróhappi. Ökumaður hinnar bifreiðarinnar væri að stinga af í þeim orðum töluðum.

Grunnskólabörn nýta sér síldina í Kolgrafarfirði

Um það bil 50 manns, aðallega börn úr grunnskólanum í Grundarfirði og úr Ungmennafélagi Grundarfjarðar, ætla strax í birtingu að fara að tína síld úr fjörunni í Kolgrafarfirði upp í kör. Síldinni verður síðan ekið til Sandgerðis, þar sem hún verður unnin í minkafóður til útflutnings.

Ræða flugsamgöngur til Kína

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra er nú í vikuheimsókn í kínversku borgunum Peking og Sjanghæ, ásamt aðstoðarkonu sinni, ráðuneytisstjóra og tveimur skrifstofustjórum innanríkisráðuneytisins. Heimsóknin er margþætt, en meðal annars verður rætt við kínversk yfirvöld varðandi loftferðasamninga til Kína.

Kýrskýrt að FBI var hér í heimildarleysi

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fellst ekki á "varnir ríkislögreglustjóra og ríkissaksóknara“ í máli tengdu komu FBI hingað til landsins sumarið 2011. Þeir Ögmundur Jónasson hafi komið FBI úr landi til að vernda ungan íslenskan pilt.

Féllu á fíkniefnaprófi og misstu skiprúmið

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum rak ellefu sjómenn sem féllu á fíkniefnaprófi. Spurning um öryggi segir framkvæmdastjórinn. Gera á lyfjapróf á öllu starfsfólki Vinnslustöðvarinnar sem áður hafði samþykkt að gangast undir slíkar rannsóknir.

Íslendinga að ákvarða samband sitt við ESB

Hannes Swoboda, leiðtogi jafnaðarmanna á Evrópuþinginu, segir það alfarið ákvörðun Íslendinga hvort og hvernig þeir vilji haga aðildarviðræðunum að ESB. Swoboda var staddur á Íslandi um helgina og Fréttablaðið tók hann tali.

Vill vöktun á lífríki

Umhverfisráðherra leggur til að fjármagni verði veitt til vöktunar og rannsókna vegna síldardauðans í Kolgrafafirði. Grunnskólanemar fara í dag til að tína upp síld af fjörum. Síldardauðinn mun hafa áhrif á aflaráðgjöf fyrir næstu vertíð.

Bjarni ákærður fyrir skattsvik

Sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Bjarna Ármannssyni, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, fyrir skattsvik á árunum 2007 til 2009. Alls sveik hann rúmar tuttugu milljónir undan skatti á þessu tímabili, að því er fram kemur í ákærunni.

Ákvörðun um varðhald í dag

Dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra tók sér í gær frest til dagsins í dag til að ákveða hvort úrskurða skyldi tvo unga pilta í einnar viku gæsluvarðhald fyrir alvarlega líkamsárás á afa annars þeirra.

Eitur í hrísgrjónum veldur áhyggjum

Matvælastofnun skoðar nú hvort nauðsynlegt sé að setja reglur um aldurstakmark á neyslu á hrísgrjónamjólk hér á landi þar sem of mikið magn af arseni, sem er eitraður málmungur og getur valdið krabbameini, hefur fundist í hrísgrjónadrykkjum.

Nemendur vinni fyrir fyrirtæki

Efla á tengsl skóla og atvinnulífs með framtakinu Verkefnamiðlun, sem Íslenski sjávarklasinn stendur að. Opnaður hefur verið vefurinn verkefnamidlun.is, en þar geta fyrirtæki skráð verkefni sem þau óska eftir nemendum til að sinna. Þegar eru í boði um 50 verkefni af ýmsu tagi.

91% hjúkrunarfræðinga sagði nei

Um 600 manns sóttu fund hjúkrunarfræðinga á Grand Hótel í kvöld þar sem kynnt var tilboð Landspítalans um nýjan stofnanasamning. Um 91 prósent gesta greiddu atkvæði gegn því að gengið yrði að tilboðinu.

SMÁÍS gafst upp á Facebook eftir fjóra daga

"Sumar athugasemdirnar voru þannig að þær voru eiginlega ekki birtingarhæfar. Það kemur ekki rosalega mikið á óvart en okkur þótti samt þess virði að prófa þetta,“ segir Snæbjörn Steingrímsson framkvæmdastjóri SMÁÍS.

Styðja kollega sína sunnan heiða

"Hjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) fagna samþykkt ríkisstjórnar Íslands frá 22. janúar 2013 um að ráðist skuli nú þegar í jafnlaunaátak sem beinist að því að rétta hlut starfstétta þar sem konur eru í miklum meirihluta.“

Barnaklámsíðu enn haldið úti

Barnaklámssíðu, sem lögreglan hér á landi hélt að væri búið að loka, er enn haldið úti en þar er að finna fjölda mynda af ólögráða íslenskum stúlkum.

Hafa fengið sendar tillögur að enskum texta

"Ég hef þurft að berjast fyrir hárinu,“ segir söngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson sem mun syngja framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár.

Hjúkrunarfræðingum stendur 30 þúsund króna launahækkun til boða

Þær launahækkanir sem hjúkrunarfræðingum býðst með endurnýjun stofnanasamnings leggja sig á um 30 þúsund krónur á mánuði að jafnaði. Fjögurhundruð milljón króna viðbótarframlag frá ríkinu skiptist á um 1.000 stöðugildi hjá Landsspítalanum.

Konan sem lést í Esjunni

Konan sem lést þegar hún hrapaði í gönguferð í Esjunni í gær hét Birna Steingrímsdóttir.

Ræða síldardauðann í Kolgrafafirði

Síldardauðinn í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi verður á dagskrá fundar ríkisstjórnar á morgun. Lagt er til að veitt verði fjármagn til vöktunar ástands fjarðarins og að metin verði þörf og möguleikar á mótvægisaðgerðum vegna atburðarins.

Segir íslensk yfirvöld teymd eins og kjána í FBI-málinu

"Í fyrsta lagi er þarna staðfest að þessi lögreglusveit valsaði hér um í tæplega viku eftir að innanríkisráðherra hafði slitið þessum samskiptum,“ segir Kristinn Hrafnsson, talsmaður WikiLeaks en fram kom í yfirlýsingu í dag að FBI hefði komið hingað til lands í ágúst árið 2011 til þess að yfirheyra íslenskan ríkisborgara í bandaríska sendiráðinu.

Dómari tók sér frest til morguns

Dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra tók sér frest til morguns til að úrskurða um gæsluvarðhald yfir tveimur piltum sem eru grunaðir um að hafa brotist inn til karlmanns á áttræðisaldri og ráðist á hann, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri.

Segja innanríkisráðuneytið hafa heimilað komu FBI til Íslands

Innanríkisráðuneytið var með í ráðum varðandi komu bandarísku alríkisfulltrúanna (FBI) hingað til lands í ágúst árið 2011 og réttarbeiðni frá fulltrúunum lá inni á borði innanríkisráðuneytisins í rúman mánuð áður en þeim var heimilað að koma hingað til lands.

Það er svindlað á þér - enginn staður með löggilta sjússmæla

Neytendastofa gerði nýlega könnun hjá um 20 vínveitingarhúsum og innflytjendum hvort að löggiltir sjússmælar og vínskammtarar væru í notkun. Þá var einnig athugað hvort að vínglös og bjórglös hefðu viðeigandi merkingar. Á vefsíðu Neytendastofu segir að tilgangurinn hafi verið að kanna hvort að reglum um vínmál, sem notuð eru til að mæla skammta áfengis sem ætlað er til sölu, væri fylgt eftir.

Bara tveir kostir í stöðunni

Mönnum er líklegast að verða ljósara að valkostirnir varðandi framtíðargjaldmiðil Íslendinga eru varla aðrir en áframhaldandi fyrirkomulag með krónu eða innganga í Evrópusambandið og myntbandalagið, segir Jón Þór Sturluson, dósent í viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og fyrrverandi aðstoðarmaður Björgvins Sigurðssonar þáverandi viðskiptaráðherra. Þannig skýrir Jón Þór niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 um viðhorf fólks til krónunnar.

Farið fram á vikulangt gæsluvarðhald

Lögreglan á Akureyri hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru grunaðir um að hafa veitt karlmanni á áttræðisaldri alvarlega áverka um helgina.

Kvótinn minnkar vegna síldardauðans

Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun segir einboðið að aflaráðgjöf stofnunarinnar í síld verði töluvert lægri vegna síldardauðans í Kolgrafarfirði. Sérfræðingar frá Hafró mæla nú umfang síldardauðans í firðinum með sérstökum neðansjávarmyndavélum.

Lamdi mann með hafnaboltakylfu og hótaði lögreglu lífláti

Karlmaður var handtekinn fyrir utan veitingahús á Ísafirði aðfaranótt sunnudags. Ástæðan var sú að maðurinn áttu í útistöðum við gest á staðnum og beitti þar hafnarboltakylfu í þeim erjum eins og fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Sjá næstu 50 fréttir