Fleiri
Kassabílafjör á Ingólfstorgi 1.6.2012 16:27 Sjá næstu 50 fréttir
Skipafloti íslands fer ekki til veiða á mánudaginn í mótmælaskyni LÍÚ hefur beint því til félagsmanna sinna að halda ekki til veiða á mánudaginn, daginn eftir sjómannadaginn. Þannig hafa Landssamband íslenskra útvegsmanna og aðildarfélög þess, Útvegsmannafélag Austfjarða, Útvegsmannafélag Akraness, Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar, Útvegsbændafélagið Heimaey, Útvegsmannafélag Hornafjarðar, Útvegsmannafélag Norðurlands, Útvegsmannafélag Reykjavíkur, Útvegsmannafélag Snæfellsness, Útvegsmannafélag Suðurnesja, Útvegsmannafélag Vestfjarða, Útvegsbændafélag Vestmannaeyja og Útvegsmannafélag Þorlákshafnar hafa gert eftirfarandi samþykkt að halda ekki til veiða eftir helgi. 2.6.2012 13:15
Vesalingarnir með flestar tilnefningar til Grímunnar Gríman tilkynnti tilnefningar til íslensku leiklistarverðlaunanna í gær. Það var stórsýningin Vesalingarnir sem hlaut flestar tilnefningar eða alls níu. 2.6.2012 12:45
Enn ekkert samkomulag Enn hefur ekki náðst samkomulag milli þingflokksformanna um framhald þingstarfa. Annarri umræðu um frumvarp um breytingar á veiðigjöldum lauk skömmu eftir miðnætti á Alþingi þegar þingfundi var frestað en þá voru ellefu þingmenn á mælendaskrá. 2.6.2012 12:06
Of snemmt að afskrifa Þóru - kosningabaráttan farin að snúast um ESB Prófessor í stjórnmálafræði segir of snemmt að afskrifa Þóru Arnórsdóttur þrátt fyrir að hún mælist nú með ríflega tuttugu prósentustiga minna fylgi en Ólafur Ragnar Grímsson. Hann segir að Ólafi hafi tekist að láta kosningabaráttuna snúast um afstöðu manni til Evrópusambandsins. 2.6.2012 12:04
Forseti fólksins eða flokkanna? Seint í janúar 1952 lést Sveinn Björnsson, forseti Íslands frá lýðveldisstofnun átta árum fyrr. Kosningar yrðu um sumarið og fljótt kom á daginn að þrír flokkanna á Alþingi vildu hlutast til um hver fengi embættið. 2.6.2012 11:00
Ingólfur Arnarson vígir ylströnd Ingólfur Arnarson landnámsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30. 2.6.2012 10:20
Herdís opnar kosningaskrifstofu Stuðningsmenn Herdísar Þorgeirsdóttur forsetaframbjóðanda opna í dag kosningamiðstöð að Laugavegi 87. 2.6.2012 10:14
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra 60 ára Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra fagnar í ár 60 ára afmæli. Í tilkynningu frá félaginu segir að það hafi verið stofnað var af framsýnu fólki þann 2. mars 1952, hefur í 60 ár haft það meginmarkmið að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. 2.6.2012 10:06
Össur fordæmir voðaverk sýrlenskra stjórnvalda Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fordæmir harðlega voðaverk sýrlenskra stjórnvalda sem og vopnaðra sveita á þeirra ábyrgð en lítill vafi leikur á að þau hafi gerst sek um skipulögð og kerfisbundin mannréttindabrot undanfarnar vikur og mánuði að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. 2.6.2012 09:49
Olíuþjófar í Hafnarfirði Lögreglan fékk tilkynningu um menn sem væru að stela olíu úr vörubílum hjá fyrirtæki í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði skömmu fyrir miðnætti. 2.6.2012 09:46
Segir Selfossvirkjun óraunhæfa Framkvæmda- og veitustjórn Árborgar segir hugmyndir um virkjun við Efri Laugardælaeyju sýna að ekki hafi verið um raunhæfar áætlanir að ræða hvorki hvað varðar arðsemi né tæknilega útfærslu. Þetta sýni yfirferð Verkfræðistofu Suðurlands. 2.6.2012 06:30
Segja ríkisstarfsfólki mútað með punktum hjá Icelandair Iceland Express hefur kært útboð um rammasamning fyrir flug hins opinbera til Kærunefndar útboðsmála. Félagið fullyrðir að kjör helsta keppinautarins, Icelandair, séu langtum lakari en þau sem Iceland Express hafi boðið og að með þeim sé auk þess verið að bera fé á opinbera starfsmenn. Útboðið tók til flugs á Evrópska efnahagssvæðinu og var auglýst í mars í fyrra. Ríkiskaup tóku tilboðum frá Iceland Express og Icelandair, þrátt fyrir ólík kjör, og töldu þau bæði hagstæð. Iceland Express fékk ekki upplýsingar um tilboð Icelandair fyrr en eftir kæru til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. 2.6.2012 06:15
Deyðið aspirnar segja sólarlausir nágrannar „Hér eru nágrannar að skipa manni að deyða sín eigin tré inni á manns eigin lóð,“ segir Gunnar Jónsson, eigandi íbúðarhússins í Leirutanga 29, sem nú er hótað málsókn vegna hárra aspa sem nágrannar til beggja handa segja skyggja á sólina og valda tjóni og óþrifnaði. Tvenn hjón sem búa hvor til sinnar handar við Leirutanga 29 krefjast þess með atbeina Húseigendafélagsins að fimmtíu til sextíu hávaxnar aspir á lóðinni hverfi þaðan. Sólar njóti ekki sem skyldi á Leirutanga 31 og þurft hafi að hækka framlóðina við Leirutanga 27 vegna róta frá öspunum. Þá séu íbúar beggja húsanna langþreyttir á óþrifnaði frá trjánum. 2.6.2012 06:00
Segir lögregluna þurfa að ná falsaranum „Maður er að melta þetta. Lögreglan þarf að ná í þennan mann og rannsaka hvað er þarna í gangi. Þetta tengist bara þessum eina einstaklingi,“ segir Ástþór Magnússon. Framboð Ástþórs til forseta Íslands var ekki metið gilt þar sem ekki liggur fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftalistum til stuðnings Ástþóri. Innanríkisráðuneytið tilkynnti þetta í gær. 2.6.2012 05:30
Ingólfur Arnarson vígir torgið Ingólfur Arnarson landnámsmaður mun mæta með langspil á skinnskýlu og vígja Ylströnd Ingólfs á Ingólfstorgi í dag klukkan 13.30. Þá mun Lúðrasveit landnámsmanna blása létta tóna við tilefnið. 2.6.2012 04:30
Bendi á annan stað fyrir Sierra Fulltrúar í skipulagsráði Reykjavíkur hafa frestað ákvörðun um staðsetningu listaverksins Svörtu keilunnar sem menningarráð borgarinnar vill að verði til frambúðar á Austurvelli. Eins og komið hefur fram vill höfundur Svörtu keilunnar, Spánverjinn Santiago Sierra, gefa borginni verkið með því skilyrði að það verði á Austurvelli. Svörtu keilunni er ætlað að vera minnisvarði um borgaralega óhlýðni. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, vill að verkið sé þegið og það haft á Austurvelli. Alþingi leggst gegn því og skipulagsráð vill að Hafþór stingi upp á öðrum staðsetningum. - gar 2.6.2012 04:00
Annþóri og Berki bannað að mæta fyrir dóm Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson fengu ekki að mæta við þingfestingu ákæru á hendur þeim í Héraðsdómi Reykjaness í gær þrátt fyrir óskir þar um. Annþór og Börkur sitja nú í einangrun á Litla-Hrauni grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana og verjendum þeirra var tilkynnt um það í gærmorgun að vegna rannsóknarhagsmuna fengju þeir ekki að mæta í dómssal á meðan. 2.6.2012 04:00
Hægri grænir vilja stafinn G Flokkur hægri grænna, flokkur fólksins, hefur formlega sótt um listabókstafinn G. Flokkurinn, sem leiddur er af Guðmundi Franklín Jónssyni, skilaði inn meðmælendalistum til Innanríkisráðuneytisins í gær. 2.6.2012 02:30
Stálu díselolíu fyrir 65 þúsund Alls 260 lítrum af díselolíu var stolið af tveimur flutningabílum á Suðurnesjum. Að sögn lögreglu var olíunni stolið um nótt en á vettvangi var lítill olíubrúsi og slanga sem þjófarnir notuðu við þjófnaðinn. Miðað við að lítrinn af díselolíu kosti 248 krónur, eins og algengast er í dag, þá stálu þjófarnir olíu fyrir tæpar 65 þúsund krónur. 2.6.2012 02:15
Afmælisveislan fékk sjö tilnefningar Menning Leiksýningarnar Afmælisveislan, Heimsljós, Hreinsun, Vesalingarnir og Tengdó eru tilnefndar til Grímuverðlauna sem besta sýning ársins. Tilnefningar voru kynntar í Tjarnarbíói í gær. 2.6.2012 02:00
Íslenska gulrófan óvenju góð Fólki finnst skoskar rófur vondar. Þetta kom fram í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. Íslenskar gulrófur þykja hins vegar óvenju góðar. 1.6.2012 21:52
Segir ruslmál á Íslandi í tómu tjóni Reglur sem neyða Skaftárhrepp til að loka sorpbrennslunni á Kirkjubæjarklaustri eru fáránlegar, segir sveitarstjórinn, og telur mun verra fyrir umhverfið að urða sorpið. Hreppurinn stendur frammi fyrr því að hafa ekki efni á að kynda skólann og sundlaugina. 1.6.2012 21:00
Nýr vegarslóði að Flóaáveitu Áttatíu og fimm ár eru liðin frá því að Flóaáveitan bætti grassprettu til muna og gerði efnalitla bændur í Flóahreppi ríka. Í tilefni tímamótanna hefur verið ákveðið að opna vegslóða að þessu þekkta mannvirki sem er eitt af tveimur í heiminum sem sagt er að sjáist frá tunglinu. 1.6.2012 19:39
Sala ÁTVR á áfengi eykst Sala áfengis það sem af er árinu hefur aukist miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin nemur 1,5% í lítrum talið. Sé rýnt í tölur ákveðinna víntegunda kemur í ljós að sala á rauðvíni hefur aukist um 3% og hvítvíni um 5%. Aftur á móti er samdráttur í sölu brennivíns og vodka. 1.6.2012 18:56
Tónleikum Buiku frestað vegna veikinda Vegna bronkítis og barkabólgu spænsk/afrísku söngkonunnar Buiku verður tónleikum hennar frestað. Tónleikarnir áttu að vera næsta sunnudag. Nú er unnið að því að finna nýja dagsetningu sem tilkynn verður um á næstu dögum. Allir seldir miðar gilda auðvitað á hina nýju tónleika, sömu sæti. 1.6.2012 18:07
Tilnefningar til Grímunnar 2012 kynntar Tilnefningar til Grímunnar 2012 voru kynntar í Tjarnarbíó í dag. Alls voru 89 verk tilnefnd af leikhúsum og sviðslistahópum til Grímuverðlauna í ár. 1.6.2012 18:03
"Stuð-skip á þurru landi“ - umfjöllun um bari Reykjavíkur Blaðamenn The Reykjavík Grapevine tóku sig til og báru saman alla bari á Reykjavíkursvæðinu. Útektin birtist í blaðinu í dag. Hver einasti bar fékk einkunn og stutta umfjöllun. 1.6.2012 17:54
Munir úr einvígi aldarinnar til sýnis Stærsta einkasafn muna úr einvígi þeirra Bobby Fischers og Boris Spasskí verður sýnt um helgina á sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara. 1.6.2012 17:40
Stálu díselolíu fyrir 65 þúsund krónur Tvö hundrað og sextíu lítrum af díselolíu var stolið af tveimur flutningabílum á Suðurnesjum um helgina. Að sögn lögreglu var olíunni stolið um nótt en á vettvangi var lítill olíubrúsi og slanga sem þjófarnir notuðu við þjófnaðinn. Ef við gerum ráð fyrir því að líterinn af dísel kosti 248 krónur, eins og algengast er í dag, þá stálu þjófarnir olíu fyrir tæpar 65 þúsund krónur. 1.6.2012 16:53
Ótrúlegt stuð í allan dag Mikið var um að vera í Reykjavík í dag og voru ljósmyndarar Fréttablaðsins að sjálfsögðu á svæðinu. Á Ingólfstorgi síðdegis í dag var haldið árlegt kassabílarall frístundaheimilanna í Vesturbænum. Krakkarnir í Ísaksskóla söngu tröppusöng ásamt kennurum sínum og kvöddu kennarann sinn í skólastofunni. 1.6.2012 16:45
Fyrrum leikmaður Stjörnunnar skotinn í höfuðið Keith Cothran, fyrrum leikmaður Stjörnunnar í körfuknattleik, var skotinn í höfuðið á bílastæði í Connecticut í Bandaríkjunum á miðvikudagskvöld. Cothran lék með Stjörnunni á síðasta keppnistímabili. 1.6.2012 16:11
Gunnar ekki hættur í Krossinum Gunnar Þorsteinsson, fyrrverandi forstöðumaður Krossins, hefur ekki yfirgefið söfnuðinn líkt og fram kom í frétt Vísis í gær. Í færslu sem Jónína Ben, eiginkona Gunnars, birti á Facebook fram að hún hefði hætt í Krossinum en sú ályktun var dregin af skrifum hennar að Gunnar hefði einnig sagt skilið við söfnuðinn. 1.6.2012 15:59
Missti alsælu úr leggöngunum í Leifsstöð Tæplega þrítug kona situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hún reyndi að smygla nær hálfu kílói af fíkniefnum í leggöngum sínum til landsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að konan, sem er af erlendu bergi brotin, hafi verið að koma frá Kaupmannahöfn og vaknaði grunur um að hún væri með fíkniefni í fórum sínum við hefðbundið eftirlit tollgæslu. 1.6.2012 15:58
Grimmur flækingshundur beit barn Hundur sem talinn er vera flækingshundur beit barn og glefsaði í konu í Reykjanesbæ í vikunni. Hundurinn var sagður ógnandi og lýstu þeir sem sáu hann á þann hátt að hann væri eins og "stór rotta“ og að hann væri grimmur. Lögregla var kölluð til en þá var dýrið horfið á braut. 1.6.2012 16:52
Faldi kókaín innvortis - í gæsluvarðhald Karlmaður um fimmtugt situr nú í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla um 370 grömmum af kókaíni til landsins. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn, sem er erlendur, hafi verið stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar við komuna til landsins frá London. 1.6.2012 16:45
Sumarið er komið - 24,4 gráður á Suðurlandi Það má með sanni segja að júnímánuður byrji vel því heiðskýrt er að mestu um allt land og hitatölur sjást sem einhverjum gæti einungis dreymt um að sjá erlendis. Mestu hlýindin hafa mælst á Þingvöllum, 21,8 gráður, og á Eyrabakka 24,4 gráður, samkvæmt upplýsingum á vef Veðurstofu Íslands. 1.6.2012 15:25
Hjóluðu 740 þúsund kílómetra á þrettán dögum 11.380 þátttakendur frá 666 vinnustöðum hjóluðu 741.450 kílómetra á þeim 13 dögum sem verkefnið Hjólað í vinnuna stóð yfir. Í tilkynningu frá skipuleggjendum segir að við það hafi sparast um 133 tonn af útblæstri koltvísýrings og 55.597 lítrar af eldsneyti sem gera um 14 milljónir króna sé miðað við 80kg einstakling sem ekur á fólksbíl. 1.6.2012 14:48
Í sex mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi karlmann í sex mánaða fangelsi í gær fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára stúlku. 1.6.2012 14:31
Flugdólgi vísað út úr flugvél - endaði í fangaklefa Flugstjóri flugvélar, sem var á leið til Lundúna frá Keflavíkurflugvelli í vikunni, neitaði að fljúga með erlendan karlmann á fertugsaldri vegna ölvunarástands hans. Honum var vísað út úr flugvélinni og tóku lögreglumenn á móti honum í flugstöðinni. Honum var tilkynnt að hann þyrfti að gera hlé á ferðalagi sínu og gista á flughóteli. 1.6.2012 13:51
Kona og börn læstust inni á klósetti í 45 mínútur Kona, ásamt þremur börnum sínum, læstist inni á klósetti í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ í fjörutíu og fimm mínútur í vikunni. Óttast var að súrefnislaust gæti orðið á salerninu og því var ákveðið að kalla á lögreglu. Þegar hún kom á staðinn hafði starfsmaður í sundlauginni náð að brjóta upp hurðina og hleypa konunni og börnunum út. 1.6.2012 13:45
Braust inn á verkstæði og gerði þarfir sínar í fötu Fullorðinn karlmaður lenti í vandræðum fyrr í vikunni þegar hann brá sér á klósettið hjá opinberri stofnun hér í borg. Vera hans á klósettinu dróst eitthvað á langinn og þegar hann kom út var búið að slökkva ljósin í afgreiðslunni og læsa útidyrahurðinni. Starfsfólkið var farið heim og var hann því fastur inni. 1.6.2012 13:39
Ástþór ánægður að óvissunni sé eytt - vill lögregluna í málið "Ég hef ekki hugmynd um hvað býr þarna að baki,“ segir Ástþór Magnússon, fyrrum forsetaframbjóðandi. Innanríkisráðuneytið telur, að í ljósi þess að ekki liggi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftarlistum til stuðnings Ástþóri, séu ekki uppfyllt ákvæði laga um framboð og kjör forseta. Hann verður því ekki með í kosningunum í lok þessa mánaðar. 1.6.2012 12:45
Ástþór verður ekki í framboði til forseta Framboð Ástþórs Magnússonar er ekki metið gilt og því verður hann ekki í framboði til embættis forseta Íslands þann 30. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu sem var að berast. Ráðuneytið telur, að í ljósi þess að ekki liggi fyrir lögboðið vottorð yfirkjörstjórnar Norðvesturkjördæmis á undirskriftarlistum til stuðnings Ástþóri, séu ekki uppfyllt ákvæði laga um framboð og kjör forseta. "Því verður framboð Ástþórs Magnússonar Wium ekki metið gilt." 1.6.2012 12:18
Annþór og Börkur fengu ekki að mæta í héraðsdóm Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson mættu ekki í Héraðsdóm Reykjaness í morgun er þingfesting í máli gegn þeim fór fram. Að sögn verjenda þeirra fengu þeir ekki leyfi til þess þar sem þeir sitja í einangrun út af öðru máli. 1.6.2012 11:04