Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja gjörbreyta samfélaginu Húmanistaflokkurinn kynnti stefnumál sín á blaðamannafundi í gær, en flokkurinn hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum landsins til næstu Alþingiskosninga. Eitt helsta stefnumál flokksins eru lýðræðisumbætur. Þá vilja Húmanistar að fjármálakerfið verði undir stjórn ríkisins ásamt því að ríkið ákvarði magn peninga í umferð. 1.6.2012 06:00
Hæstu styrkirnir til rjúpnarannsókna Umhverfisráðuneytið hefur úthlutað 28,4 milljónum króna úr Veiðikortasjóði í styrki til ýmissa rannsóknarverkefna. Hæsti einstaki styrkurinn fer til rannsókna á rjúpum. Í kjölfar auglýsingar um umsóknir um styrki úr Veiðikortasjóði til rannsókna á stofnum villtra fugla og villtra spendýra bárust umhverfisráðuneytinu tólf umsóknir frá 15 aðilum að upphæð ríflega 50 milljónir króna. 1.6.2012 05:30
Tíu manns fyrir dóm í dag vegna ofbeldis Ákæra á hendur Annþóri Kristjáni Karlssyni, Berki Birgissyni og átta öðrum mönnum fyrir þrjár hrottafengnar líkamsárásir verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Ákæran er afrakstur lögreglurannsóknar sem komst í fréttir þegar ráðist var í viðamikla rassíu víða á höfuðborgarsvæðinu um miðjan mars. Árásirnar þrjár voru mjög alvarlegar, eins og lesa má um hér fyrir neðan. Annþór er ákærður fyrir að standa að þremur þeirra og Börkur að tveimur. 1.6.2012 05:00
Tvöfölduð framleiðsla rúmast innan ramma Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að hægt sé að tvöfalda raforkuframleiðslu fyrirtækisins án þess að ganga gegn stefnu stjórnvalda um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Rammaáætlun þar um, auk orkustefnu stjórnvalda, gangi ekki gegn slíkri aukningu. „Það felst ekki endanleg ákvörðun í Rammaáætlun svo erfitt er að segja til um hvernig það fer. Við munum að sjálfsögðu miða okkar áætlanir við Rammaáætlunina. Við höfum sagt að við teljum að hægt sé að tvöfalda orkuframleiðslu á Íslandi á tækni- og umhverfislega fullnægjandi hátt. Ég held að það sé innan marka Rammaáætlunar, ef horft er til biðflokksins þar auk kosta sem ekki eru í Rammaáætlun,“ segir Hörður. 1.6.2012 04:00
Má bara selja tregbrennanlegar sígarettur Innanríkisráðuneytið hefur staðfest að ÁTVR megi ekki dreifa sígarettum sem ekki uppfylla nýjan öryggisstaðal Evrópska efnahagssvæðisins. Um er að ræða hertar reglur um hvernig sígarettupappír má brenna. Á vef ÁTVR segir að undanfarið hafi öll sígarettubréf verið að breytast í tregbrennanlega gerð samkvæmt alþjóðlegum stöðlum: 1.6.2012 03:30
Fjölmiðlanefnd aðhefst ekki Fjölmiðlanefnd hefur ekki heimild til að grípa til viðurlaga vegna þeirrar ákvörðunar Stöðvar 2 að bjóða aðeins Ólafi Ragnari Grímssyni og Þóru Arnórsdóttur að taka þátt í umræðuþætti á sunnudag. Nefndin hefur ekki heldur heimild til að gefa fjölmiðlaveitum fyrirmæli um hvernig umfjöllun þeirra í aðdraganda kosninga skuli háttað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Þingmenn Hreyfingarinnar höfðu sent fjölmiðlanefnd erindi vegna ákvörðunar Stöðvar 2. Þá höfðu frambjóðendur gert athugasemdir við fyrirkomulagið. 1.6.2012 03:15
Vilja jafna réttindi útlendinga samfélagsmál Ein löggjöf verður til um málefni útlendinga hér á landi ef tillögur starfshóps um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) verða að veruleika. Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og formaður starfshópsins, kynnti tillögur hópsins og starf á fundi á miðvikudag. Starfshópurinn vill einnig að útlendingar sem koma hingað til lands fái aukna fræðslu um réttindi sín og skyldur. Hugmynd hefur komið upp um að útbúa dvd-disk sem fók verði að horfa á hjá Útlendingastofnun þegar það sækir hér um dvalarleyfi. 1.6.2012 03:00
Hlaupið fyrir krabbameinssjúka - myndir Heilsuhlaup krabbameinsfélags Íslands var haldið í 21. sinn í dag. Veðrið lék við hlaupagarpana sem alls voru 300. Geir Gunnlaugsson, landlæknir, ræsti hlaupið og hvatti þáttakendur til dáða. Kári Steinn Karlsson og Eva Margrét Einarsdóttir voru fljótust að hlaupa 10 km. 31.5.2012 21:54
Ástþór segir galla á kosningakerfinu Á morgun verður tilkynnt hverjir hafa skilað inn fullgildu framboði og verða í framboði til embættis forseta Íslands. Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, hefur verið andvaka vegna þess að stuðningsmannalistar hans hafa ekki fengið formlega staðfestingu og því er mögulegt að framboð hans verði ekki talið fullgilt. 31.5.2012 21:42
Tvöfalt meiri álagning á bensín á Íslandi Álagning olíufélaganna á bensínverð er tvöfalt meiri á Íslandi en í Svíþjóð og 30% meiri en í Danmörku. Þetta sagði Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. 31.5.2012 21:25
Dýrt að grilla í sumar Grillveislurnar verða dýrari í sumar en síðustu ár. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðsins sem kom út í dag. Helstu kjötafurðir hafa hækkað um allt að 24% á síðustu tólf mánuðum. Menn eru ekki sammála um hvað valdi hækkuninni. 31.5.2012 20:54
Sæstrengur til skoðunar af fullri alvöru hjá báðum ríkjum Heimsókn orkumálaráðherra Bretlands til Íslands staðfestir að sæstrengur milli landanna er kominn til skoðunar fyrir alvöru. Ráðherrann átti viðræður við utanríkisráðherra og Landsvirkjun um málið í dag. Breski orkumálaráðherrann, Charles Hendry, hóf daginn á ráðstefnu í höfuðstöðvum Arion banka. 31.5.2012 20:30
Rannsókn gjaldeyriseftirlits SÍ á Samherja heldur áfram Hæstiréttur Íslands hafnaði í dag öllum kröfum sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja um að rannsókn gjaldeyriseftirlits Seðlabankans á meintum brotum fyrirtækisins og tengdra félaga á lögum um gjaldeyrismál, yrði dæmd ólögmæt og stöðvuð. 31.5.2012 18:30
Jónína og Gunnar hætt í Krossinum Gunnar Þorsteinsson og eiginkona hans, Jónína Ben, eru hætt í Krossinum. Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu Jónínu. 31.5.2012 17:06
Framtíðarsýnin breyttist á Sveinstindi Ellert Grétarsson ljósmyndari hefur breyst úr virkjunarsinna í náttúrurverndarsinna og nú vekur hann athygli á fegurð Reykjanessins í nýrri bók. "Ef Reykjanesinu verður breytt í eina samfellda iðnaðarlóð skerðir það alla útivistar- og ferðamöguleika þar fyrir höfuðborgarbúa, heimafólk og gesti. Ríflega 80% erlendra ferðamanna eru hingað komnir til að upplifa ósnortna náttúru, þeir eru ekki að koma til að skoða borstæði og háspennulínur,“ segir Ellert Grétarsson, ljósmyndari og stuðningsfulltrúi, sem hefur gefið út bókina Reykjanesskagi – Ruslatunnan í Rammaáætlun. Aðallega er um vefútgáfu að ræða sem hefur vakið athygli og viðbrögð og er á slóðinni http://issuu.com/ellertg/docs/nsve1. Í samvinnu við Landvernd var bókin prentuð í litlu upplagi og í gær afhenti Ellert alþingismönnum eintök. 31.5.2012 23:00
Ökumaður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Átján ára piltur sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi eftir að hafa orðið Eyþóri Darra Róbertssyni að bana við ofsaakstur, mótmælti ákærunni fyrir dómi í morgun. Í ákæru segir að hann hafi einnig stofnað vegfarendum í hættu "á ófyrirleitinn hátt." Móðir Eyþórs Darra mætti við þingfestinguna í morgun ásamt bróður hans og ömmu. 31.5.2012 19:54
Áhlaup á Landsbankann Á annað hundrað manna gerði áhlaup á Landsbankann á Fáskrúðsfirði í dag, að sögn þátttakenda, til að mótmæla lokun útibúsins. Einn þeirra segir gríðarlega reiði meðal bæjarbúa. 31.5.2012 19:47
Ræður allra forsetaframbjóðendanna á Vísi Forsetaefnin komu saman í Iðnó í gær á fundi og ræddu stöðu forsetans og hlutverk miðað við hið nýja stjórnarskrárfrumvarp Stjórnlagaráðs. Nú eru framsöguræður allra frambjóðendanna komnar inn á Vísi. 31.5.2012 19:41
Segir veiðireglu ESB mótsagnakennda og brjóta gegn EES-samningnum Sérfræðingur í hafrétti segir að löndunarbann og bann gegn sölu sjávarafurða í drögum að reglum Evrópusambandsins feli í sér mun víðtækari bann en EES-samningurinn heimilar. Því sé um að ræða brot á samningnum, samþykki Evrópuþingið regluna. 31.5.2012 18:30
Vill sauðnaut til Ísafjarðar Snævar Valentínus Vagnsson hefur óskað formlega eftir því við Ísafjarðarbæ að fá að flytja sauðnaut til Íslands frá Grænlandi og ala þau á Vestfjörðum. Hann telur mögulegt að skapa þeim góð skilyrði, enda mikið landsvæði þar ónotað með öllu. 31.5.2012 18:19
Kosningamiðstöð Herdísar opnar á laugardaginn Stuðningsmenn Herdísar Þorgeirsdóttur munu formlega opna kosningamiðstöð að Laugavegi 87 næstkomandi laugardag, klukkan 13:00. 31.5.2012 18:02
Strípalingar í umferðinni Fjórir ungir menn tóku upp á því að afklæðast og spranga svo um Strandveg í Grafarvogi berir á tólfta tímanum í gær. Uppátækið fór fyrir brjóstið á einhverjum vegfarendum og lögreglan var kölluð á svæðið. Þegar lögreglan kom á vettvang voru strípalingarnir á bak og burt og höfðu vel að merkja haft föt sín með sér. 31.5.2012 17:55
Styrkir til doktorsnema og vísindamanna Tuttugu og fjórum vísindastyrkjum var úthlutað úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands og Rannsóknasjóði Háskóla Íslands í Hátíðasal háskólans í dag. Styrkirnir nema samanlagt um 160 milljónum króna. 31.5.2012 17:41
Jóhanna kemur heim í fyrramálið Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tók þátt í leiðtogafundi Eystrasaltsráðsins sem lauk í dag í Stralsund í Þýskalandi. Aðildarríki Eystrasaltsráðsins eru Norðurlöndin fimm, Eistland, Lettland, Litháen, Rússland, Pólland og Þýskaland auk þess sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins á aðild að ráðinu. 31.5.2012 16:45
Svör Herdísar Þorgeirsdóttur við spurningum Vísis Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi svarar spurningum Vísis um helstu áherslumál sín sem snerta forsetaembættið og viðhorf sín til þess: 31.5.2012 16:21
Flateyringar þurfa að aka 22 kílómetra til þess að komast í banka Bæjarráð Ísafjarðarbæjar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Landsbankans að loka útibúum sínum á Bíldudal, Króksfjarðarnesi, Flateyri og í Súðavík að því er fréttavefurinn bb.is greinir frá. 31.5.2012 16:15
Gera stjórnsýsluúttekt á þróun fornleifarannsókna á Íslandi Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur ákveðið að láta gera stjórnsýsluúttekt á stöðu og þróun fornleifarannsókna á Íslandi á árunum 1990 – 2010 samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. 31.5.2012 15:56
Fjölmiðlanefnd ætlar ekki að aðhafast vegna kvörtunar Fjölmiðlanefnd ætlar ekki að aðhafast vegna kvörtunar Þórs Saari, þingmanns Hreyfingarinnar, vegna ákvörðunar Stöðvar 2 um að ræða einungis við tvo frambjóðendur til forsetakosninga af sjö. 31.5.2012 15:24
Eldur á Hverfisgötu Búið er að slökkva eldinn sem kom upp í þakplöttum við húsnæði á Laugaveg 105 á þriðja tímanum í dag. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu gekk vel að ráða niðurlögum eldsins sem var minniháttar. Unnið er að reykræstingu á stigagangi í húsinu. 31.5.2012 14:55
Réttargæslumaður á erfitt með að horfa á Guðgeir "Það er mjög skrýtið, það er erfitt að horfa á hann,“ segir Brynjar Níelsson lögmaður og réttargæslumaður Skúla Eggerts Sigurz, en þeir eru ennfremur góðir vinir. Þá störfuðu þeir saman á lögfræðistofunni Lagastoðum, þar sem Guðgeir Guðmundsson stakk Skúla fimm sinnum. 31.5.2012 14:36
Viðurkenna að engin sé ríkisábyrgðin en gera samt óbeint kröfu um hana Lögmaður í málflutningsteymi Íslands í Icesave-málinu segir að ESB viðurkenni í raun að engin ríkisábyrgð sé á tilskipun um innistæðutryggingar, en samt virðist sambandið gera þá kröfu að ríkið hafi átt að styðja við íslenska tryggingarsjóðinn. Það standist ekki. 31.5.2012 12:00
Banaslys á Ólafsfjarðarvegi Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi, í grennd við Hörgárbrú á tólfta tímanum í gærkvöldi, þegar bíll, sem karlmaður á þrítugsaldri ók, fór út af veginum og valt nokkrar veltur. Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, kastaðist út úr honum í veltunum. Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri, þar sem hann var úrskurðaður látinn. Tildrög slyssins eru ókunn, en lögreglan á Akureyri og Rannsóknanefnd umferðaslysa rannsaka málið. 31.5.2012 06:20
Sumargötur vakna úr vetrardvala á morgun Á morgun vakna sumargötur úr vetrardvala þegar Pósthússtræti í miðborg Reykjavíkur verður lokað fyrir bílaumferð. 31.5.2012 14:38
Þriðjungur ók of hratt í Rofabæ Brot 20 ökumanna voru mynduð í Rofabæ í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rofabæ í vesturátt, við Árbæjarskóla. 31.5.2012 14:19
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer vel af stað Um 500 manns hafa greitt utankjörfundaratkvæði á öllu landinu vegna forsetakosninganna, sem fara fram þann 30. júní næstkomandi. Þar af eru tæplega 240 búnir að kjósa í Reykjavík. 31.5.2012 13:53
Haldið sofandi eftir fall við Hamragarða Ástand bresku konunnar sem féll ofan í gil við Hamragarða á mánudag er óbreytt. 31.5.2012 13:35
Háskólanemar vilja hjólaleigustöðvar víðsvegar um borgina Reykjavíkurborg er tilbúin að veita nokkrum háskólanemum leyfi til að koma sjö hjólaleigustöðvum fyrir víðsvegar um borgina. 31.5.2012 12:05
Íslenskir unglingar reykja minnst allra unglinga í Evrópu Samkvæmt glænýjum niðurstöðum evrópsku vímuefnarannsóknarinnar European School Survey Project on Alcohol and Drugs (ESPAD) sem kynntar voru í Stokkhólmi í dag hefur dregið mikið úr tóbaksreykingum íslenskra unglinga á síðustu sextán árum, ólíkt því sem gerist að meðaltali í Evrópu. 31.5.2012 11:45
Guðgeir fyrir dómi: "Ég er skaðvaldur“ "Ég er ekki viss hvort ég ætlaði að drepa neinn,“ sagði Guðgeir Guðmundsson fyrir dómara Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun þegar hann var inntur eftir afstöðu til sakarefna gegn sér. Guðgeir er ákærður fyrir að stinga Skúla Eggert Sigurz, framkvæmdastjóra Lagastoða, fimm sinnum með veiðihníf, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar. 31.5.2012 09:28
Laxagöngur hafnar Lax er víða farinn að ganga í helstu árnar, að því er fram kemur á vef Stangveiðifélags Reykjavíkur, en veiðar hefjast í Norðurá á þriðjudagsmorgun. Nú þegar hefur sést til laxa í Elliðaánum, Laxá í kjós, Flókadalsá í Borgarfirði og neðarlega í Hvítá í Borgarfirði hefur sést heil torfa, sem líklega mun dreyfa sér í borgfirsku árnar. Sérfræðingar Veiðimálastofnunar spá góðri veiði í sumar, þótt líklega verði þetta ekki met ár. 31.5.2012 08:43
Hlaupahjólaþjófur handtekinn Nátthrafn, sem var á röltinu í austurborginni um eitt leytið í nótt ákvað á hraða för sinni. Í því skyni stal hann hlaupahjóli úr kjallaratröppum en var svo óheppinn að til hans sást og kastaði hann frá sér hlaupahjólinu á flóttanum. 31.5.2012 08:10
Vélhjól og reiðhjól skullu saman Hjólreiðamaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar hann lenti í árekstri við bifhjól við Víkurvegsbrúnna á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en ökumann bifhjólsins sakaði ekki. Ekki er ljóst hvað fór úrskeiðis hjá hjólamönnunum með þessum afleiðingum. 31.5.2012 08:04
Milljarðatugir fólgnir í þara Þörungaiðnaður á Íslandi felur í sér gríðarlega möguleika. Um mannaflsfrekan milljarðaiðnað er að ræða ef rétt verður haldið á málum. Hins vegar vantar sárlega fjármagn til að halda áfram rannsóknum á auðlind sem liggur óhreyfð í fjörum landsins. 31.5.2012 07:00
Flestir varkárir í ummælum um Evrópusambandið Enginn forsetaframbjóðendanna vildi lýsa yfir eindregnum stuðningi við aðild Íslands við Evrópusambandið á fundi Stjórnarskrárfélagsins í kvöld. Flestir vilja sjá samninginn fullkláraðan áður en þeir tjá sig. 30.5.2012 22:47
Útdráttur úr ávörpum forsetaefnanna Forsetaframbjóðendur komu saman í Iðnó í kvöld og ræddu stöðu forsetans og hlutverk miðað við hið nýja stjórnarskrárfrumvarp Stjórnlagaráðs. Hver frambjóðandi var með stutta framsöguræðu í þrjár til fjórar mínútur og svo var opnað fyrir spurningar úr sal. 30.5.2012 22:43