Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verða glæsileg í Aserbaídsjan Þau Gréta Salóme og Jónsi verða glæsileg á sviðinu í Aserbaídsjan eftir rúmar tvær vikur en þau opinberuðu í dag fatnaðinn sem þau ætla að klæðast. Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag eiga þær Rebekka Ingimundardóttir og Elma Bjarney Guðmundsdóttir heiðurinn að klæðaburði íslenska hópsins í ár. Vinir Sjonna, sem kepptu í Eurovision í fyrra, tóku lagið þegar fatnaðurinn var kynntur í dag. Þetta var síðasti viðburðurinn sem þau Greta Salóme og Jónsi tóku þátt í en þau halda af stað til Aserbaídsjan á laugardaginn. 10.5.2012 16:34
Heiðar Már stefnir Seðlabankanum - mál gegn Heiðari fellt niður Bæði ríkissaksóknari og sérstakur saksóknari hafa fellt niður rannsókn máls á hendur fyrirtæki í eigu Heiðars Más Guðjónssonar fjárfestis, sem hafin var af Seðlabanka Íslands. Heiðar Már fullyrðir að rannsóknin hafi orðið til þess að hann var útilokaður frá viðskiptum með hlutafé í vátryggingafélaginu Sjóvá Almennum tryggingum hf. 10.5.2012 14:30
Í lagi að hjólreiðamenn séu á akbrautum Vegfarendur á hjóli hafa fullan rétt á að vera á akbrautum, segir í orðsendingu sem Umferðarstofa hefur sent fjölmiðlum vegna þeirra fullyrðinga Áreksturs.is að hjólreiðamenn hafi valdið árekstrum í umferðinni. Árekstur.is fullyrti í morgun að hjólreiðamenn ættu ekki að vera á akbrautum. 10.5.2012 14:18
Karlmenn verði 10% leikskólastarfsmanna árið 2050 Stefna á að því að karlmenn verði 10% starfsmanna á leikskólum árið 2050, samkvæmt tillögum um aðgerðir til að efla leikskólastigið. Tillögurnar voru unnar af starfshóp á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Markmiðum er skipt niður í langtíma- og skammtímamarkmið. 10.5.2012 13:07
Íslensk hjón bíða eftir barni í Kólumbíu Íslensk hjón hafa dvalið í Kólumbíu í rúma fjóra mánuði og beðið eftir að ættleiða kólumbískt barn. Ættleiðingin hefur dregist úr hófi fram og hafa íslensk yfirvöld blandað sér í málið. 10.5.2012 12:45
Gera athugasemdir við að Geysissvæðið fari í verndarflokk Eigendur Geysis í Haukadal gera verulegar athugasemdir við að Geysissvæðið skuli sett í verndarflokk í rammaáætlun án samráðs við landeigendur og segja það skýlaust brot á stjórnsýslulögum. Þeir segjast geta haft tugi milljóna í árlegar tekjur með því að leigja orkuauðlindina. 10.5.2012 12:15
Veðurstofan varar við kuldakasti um helgina Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á slæmri veðurspá fyrir nk. sunnudag og mánudag. Ferðafólki, bændum, sjómönnum og öðrum sem eru háðir veðri í leik og starfi er bent á að gera viðeigandi ráðstafanir. 10.5.2012 12:10
Rétt að endurskoða reglur og siði um komu flóttamanna Ögmundur Jónassson, innanríkisráðherra, telur rétt að endurskoða reglur og siði varðandi komu flóttamanna hingað til lands. Þetta kom fram í máli ráðherra á Alþingi í morgun þegar rætt var um alsírsku drengina sem voru handteknir á Keflavíkurflugvelli í síðasta mánuði. Þingmaður Samfylkingarinnar dregur í efa að barnaverndarsáttmáli Sameinuðu þjóðanna hafi verið virtur í málinu. 10.5.2012 12:00
Rekja umferðaróhöpp til hjólreiðafólks Í gær voru tilkynnt til arekstur.is á annan tug óhappa þar af voru tvö umferðaróhöpp sem urðu vegna umferðar hjólreiðafólks. 10.5.2012 11:44
Óljóst hvenær Björk byrjar að syngja á ný Alveg óljóst er hvenær Björk Guðmundsdóttir mun geta sungið opinberlega að nýju, segir Guðmundur Gunnarsson faðir hennar. Björk hefur verið í hvíld frá tónleikahaldi að undanförnu að læknisráði en læknar fundu hnúð á raddböndum hennar. 10.5.2012 10:34
"Bryggjuball“ á Djúpavogi Óvænt vertíðarstemmning ríkir nú á Djúpavogi og komu um það bil 40 strandveiðibátar þangað til hafnar að loknum veiðidegi í gærkvöldi. 10.5.2012 10:14
Sóttu slasaðan vélhjólamann Maður féll af vélhjóli í grennd við Kleifarvatn um ellefu leitið í gærkvköldi, og meiddist í fallinu. Þetta gerðist á slóða í nokkurri fjarlægð frá þjóðveginum. 10.5.2012 10:03
Lögðu fram nýja lögbannskröfu Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda lögðu í gær fram nýja lögbannskröfu hjá sýslumanninum í Reykjavík, þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll innheimta greiðsluseðla áður gengistryggðra lána. Sýslumaður hafnaði lögbannskröfu þessa efnis þann 27. apríl síðastliðinn á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega skýrt afmörkuð. 10.5.2012 09:42
Lentu í sjálfheldu í Ingólfsfjalli Karl og kona lentu í gærkvöldi í sjálfheldu í svonefndu Silfurbergi í suðvesturhorni Ingólfsfjalls, gengt Kögunarhóli. 10.5.2012 08:11
Risafugl á flugi yfir Reykjanesbæ Mjög sérstætt skýjafar sást víða af Reykjanesi um ellefu leytið í gærkvöldi, þegar skýjaslæða á annars heiðum himni tók á sig hinar ýmsu kynjamyndir. 10.5.2012 07:07
Björk sögð aflýsa tónleikum í sumar - líka Hróarskeldu Söngkonan Björk hefur aflýst öllum tónleikum sínum fram eftir sumri, en til stóð að hún kæmi meðal annars fram á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku og stórum hátíðum á Spáni og í Portúgal. 10.5.2012 07:01
Þriðja tilraun gerð til stjórnarmyndunar Tilraun Vinstrimanna á Grikklandi til stjórnarmyndunar fór út um þúfur í gær og nú er röðin komin að leiðtoga þriðja stærsta flokks landsins að gera tilraun. Formaður Pasok flokksins, Evangelos Venizelos, er þó ekki talinn líklegur til að takast það ætlunarverk og því veðja flestir á að blása verði til kosninga að nýju í landinu. 10.5.2012 10:05
Segja herbúðasnið slæmt - hafa samt meiri áhyggjur af umferðinni "Í bókuninni er líka gefið til kynna að líkamsrækt með herbúðasniði eigi lítið erindi í dalinn og dregið fram að líkamsræktarstöð á þessum stað fylgir mikil umferð bíla og rík þörf fyrir stæði. Þetta bílakraðak er auðvitað mesta áhyggjuefnið,“ skrifa fulltrúar Vg í skipulagsráði Reykjavíkurgborgar, þau Torfi Hjartarson og Sóley Tómasdóttir, í grein sem birtist á Vísi í dag. 10.5.2012 09:55
Vilja láta taka á uppsöfnuðum halla ríkisstofnana Ráðherrar þurfa að svara fyrir uppsafnaðan halla stofnana á fundi með fjárlaganefnd. Ríkisendurskoðun gagnrýnir skort á viðbrögðum vegna vandans og bendir á 19 stofnanir með mestan uppsafnaðan halla. 10.5.2012 09:30
Greniskógi rutt burt vegna snjóflóðagarða Ekki eru allir sammála um að reisa eigi snjóflóðagarða í hlíðinni fyrir ofan grunnskólann og sjúkrahúsið á Patreksfirði. Íbúi segir gríðarleg náttúruspjöll verða við framkvæmdirnar. Veik rök að vilja verja hríslur, segir bæjarstjóri. 10.5.2012 09:00
Bæjaryfirvöld losi þau undan tóbaki Krakkarnir í 7. M í grunnskólanum í Þorlákshöfn hafa skorað á bæjaryfirvöld í Ölfusi að gæta þess að tóbaksnotkun við byggingar og á lóðum sveitarfélagsins trufli ekki þá sem ekki nota tóbak. 10.5.2012 08:45
Athuga hvort setja eigi samruna skilyrði Samkeppniseftirlitið er með til athugunar hvort unnt sé að setja kaupum Reiknistofu bankanna (RB) á Teris skilyrði sem tryggi nýjum og smærri keppinautum fullan aðgang að öllum kerfum og allri þjónustu sem sameinað fyrirtæki innir af hendi. Þetta kom fram í ræðu Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, á málþingi um framtíð Sparisjóðanna sem fram fór á þriðjudag. 10.5.2012 08:30
Sameiningar fækka fagfólki á leikskólum Foreldrar barna á leikskólanum Funaborg sendu harðort bréf til borgarfulltrúa og embættismanna vegna sameiningar þriggja leikskóla. Segjast fullsaddir á aðgerðaleysi, áhugaleysi og samskiptaleysi stjórnenda leikskólans og borgarinnar. 10.5.2012 08:00
Allt of mikið af pólitískum fjárveitingum Ungir vísindamenn flýja land af því að styrktarfé til rannsókna er af svo skornum skammti. 544 vísinda- og fræðimenn skora á menntamálaráðherra að gera bragarbót á. Telja fjárveitingar allt of pólitískar. 10.5.2012 08:00
4,7 milljarða halli á rekstri borgarinnar Tæplega 4,7 milljarða króna halli er á rekstri A- og B-hluta samstæðu Reykjavíkurborgar samkvæmt ársreikningi. Niðurstaðan er sögð lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Ársreikningur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2011 var samþykktur á fundi borgarstjórnar á þriðjudag. 10.5.2012 07:00
Skelfileg umgengni í Heiðmörk Vegfarandi sem átti leið um Heiðmörk í góða veðrinu í dag sendi fréttastofu tölvupóst í kvöld þar sem hann segir að sér hafi mætt sér skelfileg sjón á svæðinu í dag. Hann segir að hópur manna hafi verið með grillveislu og hreinlega skilið allt ruslið eftir sig. Ruslið var í pokum en fuglar og mýs voru búin að tæta gat á pokana svo draslið var á víð og dreif. 9.5.2012 23:02
Skreið eftir Reykjanesbrautinni Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vörubifreið á Reykjanesbrautinni í dag vegna óviðunandi frágangs á farmi, eins og sjá má myndinni hér til hliðar. Rekja mátti skreiðarslóðina eftir bifreiðina á Reykjanesbrautinni og hefði þurft að gera betur í að tryggja að farmurinn félli ekki af. 9.5.2012 22:00
80 prósent sjúklinga á Vogi eru börn alkóhólista "Ef að kona fer í meðferð fyrir 24 ára aldur út af kannabisfíkn, eru næstum því 50 prósent líkur á að sonur hennar geri það líka," sagði Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ, í viðtali við þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 9.5.2012 20:30
Gista nánast ofan í Slippnum Aðeins eru nokkrir metrar frá Gamla slippnum í Reykjavíkurhöfn og að inngangi nýjasta hótels borgarinnar, Icelandair Hótel Reykjavík Marína. 9.5.2012 20:30
Meirihluti stjórnenda fyrirtækja mótfallinn aðild að ESB Meirihluti stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum er mótfallinn aðild að Evrópusambandinu, eða 64 prósent aðspurðra. Þetta er niðurstaða stjórnendakönnunar MMR sem var unnin í samstarfi við Viðskiptablaðið. 9.5.2012 20:25
Leyndi áhuga Kínverja en pabbinn með prókúru Aron Karlsson, kaupsýslumaður, lýsti yfir sakleysi sínu í Héraðsdómi í dag en hann er ákærður fyrir fjársvik og gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi vegna blekkinga í tengslum við sölu á fasteign til kínverska sendiráðsins. Faðir Arons, Karl Steingrímsson, fer með prókúru fyrir AK Fasteignir sem einnig sætir ákæru í málinu. 9.5.2012 20:00
Kjartan enn í Sigur Rós Hljómsveitin Sigur Rós undirbýr þessa dagana tónleikaferð sem farin verður til að fylgja eftir disknum Valtara sem kemur út í lok þessa mánaðar. Tónleikaferðin hefst í júlí, en eins og kunnugt er verður henni lokið með tónleikum á Iceland Airwaves í haust. 9.5.2012 19:18
Er að deyja úr tilhlökkun Sigrún Eðvaldsdóttir er einleikari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld í Hörpu í hinum fræga fiðlukonsert númer 1 eftir Sjostakovitsj. "Þetta leggst alveg rosalega vel í mig. Ég er að deyja úr tilhlökkun," segir Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari sem leikur einn glæsilegasta fiðlukonsert 20. aldarinnar á tónleikum Sinfóníunnar annað kvöld. Það er fiðlukonsert númer 1 eftir Dímítríj Sjostakovitsj. Hún kveðst aldrei hafa spilað hann áður og reyndar hafi hún verið mjög hrædd við hann. 9.5.2012 16:30
Framtíð alsírsku drengjanna í lausu lofti eftir afplánun Alsírsku drengirnir tveir sem dæmdir voru í óskilorðsbundið fangelsi í síðasta mánuði fyrir vegabréfafölsun falla mögulega undir stöðu flóttamanna samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna og hafa óskað eftir hæli hér á landi. Verjandi drengjanna vill ekki svara því hvort hann hafi farið fram á skilorðsbundna refsingu vegna ungs aldurs þeirra. 9.5.2012 19:45
Læknar rukka viðbótargjöld Nánast hver einasti sérfræðilæknir á landinu hefur verið samningslaus við Sjúkratryggingar Íslands í rúmt ár. Sumir þeirra eru farnir að rukka sjúklinga um viðbótargjöld. Kona, sem glímir við afleiðingar krabbameins, segir kjaradeiluna bitna á þeim sem síst skyldi og formaður Öryrkjabandalags Íslands segir málið til skammar fyrir deiluaðila. 9.5.2012 19:04
Bið hælisleitenda löng og kostnaðarsöm Forstjóri Útlendingastofunar segir hælisleitendur þurfa að bíða næstum þrisvar sinnum lengur en forsvaranlegt sé. Löng bið kosti samfélagið mikið fé auk þess sem biðin skapi mikla vanlíðan meðal fólks. Á þessu ári hafi orðið veruleg fjölgun meðal hælisleitenda og fyrirséð að biðin lengist enn. 9.5.2012 18:46
Þarf allt að 10 gengisdóma Samráðshópur banka og skuldara upplýsti í dag að upp undir tíu prófmál þurfi að fara fyrir dómstóla til að eyða óvissunni sem skapaðist af síðasta gengislánadómi Hæstaréttar. Umboðsmaður skuldara vonar að málaferlunum ljúki strax í haust. 9.5.2012 18:37
Ræktaði kannabis í blokk Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í dag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 70 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Tvö af herbergjum íbúðarinnar voru sérstaklega útbúin fyrir þessa starfsemi. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn á vettvangi og færður til yfirheyrslu. Hann hefur ekki áður komið við sögu hjá lögreglu. 9.5.2012 18:21
Ögmundur segist hafa komið alsírsku drengjunum úr fangelsi Piltarnir tveir, sem voru dæmdir í 30 daga fangelsi, eru ekki lengur í fangelsi, eins og hefur verið gagnrýnt, heldur er annar þeirra er vistaður á einkaheimili en hinn er á stofnun, eins og Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra orðar það, í viðtali við Síðdegisútvarpið á Rás 2. 9.5.2012 16:42
Segja fangelsun brjóta gegn barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna Málefnahópur Dögunar um málefni hælisleitenda og innflytjenda mótmælir harðlega dómi héraðsdóms yfir tveimur hælisleitendum frá Alsír, fimmtán og sextán ára drengjum, sem dæmdir voru í þrjátíu daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum við komuna til landsins. 9.5.2012 15:52
Segist næstum hafa misst formannsstól vegna orðaskipta við Baugsveldið "Kenningin sem þú nefnir spratt helst upp á bloggsíðum Björns Bjarnasonar. Sjálfur tapaði ég næstum formannssætinu fyrr en ella fyrir samskipti min ill og hörð við Baugsveldið," svarar Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, í svokallaðri Beinni línu á dv.is, þar sem almenningi gefst færi á að spyrja ráðherrann út í þau mál sem brenna þeim á brjósti. Þarna svaraði Össur spurningu Ara Brynjólfssonar sem spurði: 9.5.2012 15:20
Aron Karlsson: "Ég lýsi mig saklausan" "Ég lýsi mig saklausan af öllum sakargiftum,“ sagði Aron Karlsson kaupsýslumaður við þingfestingu ákæru á hendur honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 9.5.2012 14:25
Segir vel tekið á eineltismálum í skólanum "Þegar einelti kemur upp, eða ávæningur af slíku berst til okkar, fer af stað ákveðið ferli, þar sem meðal annars eru strax tekin viðtöl við þá sem eiga hlut að máli,“ útskýrir Birgir Edwald, skólastjóri Sunnulækjarskóla, en móðir nemanda skólans ræddi við sunnlenska fréttavefinn DFS í gær, þar sem hún lýsti því hvernig tíu ára sonur sinn þyrfti að þola rætið einelti í skólanum. 9.5.2012 13:56
Telja að piltarnir séu eldri en þeir segjast vera Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að rökstuddur grunur leiki á að þeir aðilar sem dæmdir voru til 30 daga fangelsisrefsingar þann 30. apríl síðastliðinn og sögðust vera 15 og 16 ára séu eldri en þeir fullyrða. 9.5.2012 13:50
Frikki aftur á meðal þeirra bestu í Kaupmannahöfn Íslenski veitingastaðurinn Laundromat Cafe á Gl. Kongevej í Kaupmannahöfn hefur verið tilnefndur til verðlaunanna "Best Brunch in Town" sem vefsíðan Alt om Kobenhavn heldur úti. Vefsíðan er í eigu dagblaðsins Berlinske Tidende. 9.5.2012 13:35