Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gagnrýna meirihlutann fyrir seinagang vegna umsagnar Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði gagnrýndu meirihlutann í borgarstjórn á borgarráðsfundi í dag fyrir að Reykjavíkurborg hafi ekki skilað inn umsögn vegna frumvarps að lögum um veiðigjöld. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum segir að frumvarpið hafi verið sent borginni til umsagnar frá Alþingi fyrir um mánuði síðan. "en sú beiðni þingsins var aldrei kynnt borgarráði og engin umsögn um þetta stóra hagsmunamál því farið frá stærsta sveitarfélagi landins. Frestur til að skila inn umsögnum til Alþingis er liðin, en að beiðni borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins verður málið tekið upp aftur á næsta fundi borgarráðs,“ segir svo í tilkynningunni. 3.5.2012 15:11
Málum fjölgar hjá Persónuvernd en starfsmönnum fækkar Erindum sem Persónuvernd fær inn á sitt borð hefur fjölgað verulega eða um 75 prósent frá árinu 2008. Á sama tíma hefur starfsmönnum fækkað. Á heimasíðu stofnunarinnar segir að haldi áfram sem horfi megi búast við því að "umtalsverðar tafir, umfram það sem nú er, verði á afgreiðslu mála hjá stofnuninni seinni part árs auk þess sem stofnunin sér ekki fram á að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum með fullnægjandi hætti.“ 3.5.2012 14:40
Óhefðbundnar lækningar: Lausnirnar verða bara brjálaðri "Það er eins og fólk skorti stundum þau verkfæri hugans að spyrja gagnrýna spurninga um svona hluti og leita sér frekari upplýsinga,“ segir læknirinn Svanur Sigurbjörnsson, sem gagnrýnir umræðu um óhefðbundnar lækningar hér á landi. Sjálfur gagnrýndi hann umfjöllun Fréttatímans harðlega en þar var fjallað um konu sem náði sér eftir að hafa veikst af krabbameini, en fyrirsögn greinarinnar var: "Sigraðist á krabba án geisla og lyfja“. 3.5.2012 14:39
Bíð eftir að vakna upp af draumnum Magnús Samúelsson vaxtarræktarmaður hefur unnið til fernra verðlauna á fjórum alþjóðlegum mótum á síðastliðnum fjórum vikum. "Þessi árangur er ótrúlega góður og ég er ekki enn farinn að átta mig á þessu. Fólk í kringum mig er búið að vera að reyna að berja það inn í hausinn á mér en ég er bara að bíða eftir að ég vakni af draumi,“ segir Magnús. 3.5.2012 13:00
Halldór Guðmundsson nýr forstjóri Hörpu Halldór Guðmundsson hefur verið ráðinn forstjóri Hörpu, tónlistar og ráðstefnuhúss. Í tilkynningu frá Hörpu segir að Halldór hafi frá vori 2008 verið til skamms tíma framkvæmdastjóri verkefnisins "Sögueyjan Ísland"- þegar Ísland var heiðursgestur bókamessunar í Frankfurt. 3.5.2012 12:34
Spyr um gríðarlegt tap hótela í eigu Bændasamtakanna "Ég var búinn að biðja lengi um þetta, samtökin hummuðu þetta af sér. Það bendir margt til þess að það hafi verið að reyna að fela þessar upplýsingar, enda vita þeir upp á sig skömmina," segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, í samtali við Vísir en hann skrifaði grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann spyr Bændassamtökin spurninga vegna ársreikninga sem hann fékk sjálfur að lokum frá landbúnaðaráðuneytinu eftir að hafa óskað eftir þeim frá samtökunum. 3.5.2012 12:18
Vilja draga kvótafrumvörpin til baka Kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar munu hafa neikvæð áhrif á sjávarbyggðirnar og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Þetta kemur fram í greinargerð sérfræðingahóps á vegum atvinnuveganefndar Alþingis. Þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja að ríkisstjórnin dragi frumvörpin til baka. 3.5.2012 12:18
Eldsvoði við Vesturvör: Íbúðirnar ósamþykktar Vistarverur í iðnaðarhúsi við Vesturvör í Kópavogi, þar sem fimm manneskjur, voru hætt komnar þegar eldur kviknaði í nótt, eru ekki samþykktar sem íbúðarhúsnæði. 3.5.2012 12:09
Sakaðir um málþóf Þingmenn Sjálfstæðisflokks voru sakaðir á Alþingi í morgun um að beita málþófi í umræðu um tillögu forsætisráðherra varðandi breytingar á Stjórnarráði Íslands. Þingmenn ræddu málið í sex klukkustundir í gær. 3.5.2012 12:04
Strandveiðimenn minntir á rás 16 Nú þegar strandveiðar standa sem hæst hafa mörg tilfelli komið upp þar sem erfitt hefur verið að ná í þá sem eru að veiðum en þeir eiga að nota rás 16 og ber skylda til að hafa hana opna. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að allnokkur atvik hafi komið upp þar sem nærstaddir bátar hafi verið kallaðir til aðstoðar. Þá segir að ánægjulegt sé að sjá að í mörgum tilfellum virðist bátarnir halda hópinn sem auki til muna öryggi þeirra. 3.5.2012 11:57
Rúmlega helmingur 18 ára nema með of hátt hlutfall líkamsfitu Rúmlega helmingur átján ára nema greindust með of hátt hlutfall líkamsfitu samkvæmt niðurstöðum um holdafar, úthald, hreyfingu og efnaskiptasnið meðal 18 ára íslenskra framhaldsskólanema en niðurstöðurnar voru birtar í nýjasta hefti Læknablaðsins. 3.5.2012 10:46
Laun hækka almennt - stjórnendur hækka þó mest Laun æðstu stjórnenda hækkuðu um 9,9%, laun millistjórnenda um 8,3% en tekjur annarra hópa hækkuðu um 1-7%. Þetta kemur fram í launagreiningu PricewaterhouseCoopers (PwC). 3.5.2012 10:04
Skuldir dagaði uppi í læstum skáp Verðbréf dagaði uppi óinnheimt í læstum skjalaskáp hjá Kópavogsbæ. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri leitar skýringa á kjörum sem Guðrún Pálsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, naut við lóðakaup er hún var fjármálastjóri bæjarins. 3.5.2012 10:00
Milljaður í endurbætur á sundlaugum í Reykjavík Leiktæki, nýir heitir pottar, endurgerð búningsaðstöðu, eimböð og viðgerðir eru meðal þeirra atriða sem vinna á að í sundlaugum Reykjavíkur á þessu ári. Sérstakt stórhuga átaksverkefni sem borgarráð samþykkti á síðasta fundi sínum gerir ráð fyrir nær milljarði til þessa verkefnis næstu þrjú árin. 500 milljónir í ár, 400 milljónir á því næsta og 70 milljónir árið 2014. 3.5.2012 09:39
Launamunur kynjanna eykst á ný Launamunur kynjanna dróst saman í kreppunni árin 2009 og 2010 en hefur nú aukist á ný. Opinberir starfsmenn eru langþreyttir á aðgerðarleysi stjórnvalda og vilja aðgerðir en ekki fundahöld um málið. Aðilar vinnumarkaðarins hafa unnið að jafnlaunastaðli síðan 2008. Stefnt er að því að hann taki gildi á þessu ári. 3.5.2012 08:00
Strandveiðibátar streyma áfram á miðin Strandveiðibátarnir streyma nú til veiða í hundraða tali líkt og í gærmorgun, fyrsta dag strandveiðanna. 3.5.2012 07:09
Raunhæft að auðga sjávarrétti og halda gæðum Matís og fyrirtækin Iceprotein á Sauðárkróki og Grímur kokkur í Vestmannaeyjum eru að ljúka verkefninu Auðgaðir sjávarréttir, en þróaðar voru nokkrar frumgerðir af vörum úr íslensku sjávarfangi þar sem bætt hefur verið við lífefnum eins og þörungaþykkni og lýsi. 3.5.2012 07:00
Tvær þyrlur sóttu skipverja af rússneskum togara Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar komu til Reykjavíkur laust fyrir klukkan hálf átta eftir leiðangur út í rússneskan togara djúpt suðvestur af landinu í morgun, þangað sem þær sóttu veikan sjómann. 3.5.2012 06:46
Innbrot í raftækjaverslun og nokkur fíkniefnamál í nótt Brotist var inn í raftækjaverslun í borginni um fjögur leitið í nótt. Þegar lögregla var á leið á vettvang, stöðvaði hún bíl, sem var á leið af vettvangi, og fannst þýfi í honum. 3.5.2012 06:44
Fimm manns í lífshættu í eldsvoða í Kópavogi Fimm manneskjur, þar af eitt barn, voru hætt komnar þegar eldur kviknaði í eldhúsi í iðnaðarhúsi við Vesturvör í Kópavogi um klukkan hálf þrjú í nótt. 3.5.2012 06:35
Hundrað fá sumarvinnu Liðlega 450 manns sóttu um sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli og hafa rúmlega eitt hundrað verið ráðnir úr þeim hópi, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins. Fjöldinn er sagður svipaður og undanfarin ár. 3.5.2012 05:00
Vilja hert eftirlit með dýralyfjagjöf og búfjárafurðum Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) telur að herða þurfi opinbert eftirlit á Íslandi til að tryggja að kjöt og mjólk innihaldi ekki efnaleifar af dýralyfjum. Yfirdýralæknir segir niðurstöður ESA frekar hastarlegar og sumar byggðar á misskilningi, þó sé þar að finna gagnlegar ábendingar sem unnið verði úr. Nýtt rafrænt skráningarkerfi með skráningu dýralyfja og lyfjasölu dýralækna er í burðarliðnum, en það er forsenda þess að unnt verði að sinna lögboðnu eftirliti. 3.5.2012 04:00
Helmingur kolmunnans á land Íslenski flotinn hafði í gær veitt rúmlega 35 þúsund tonn af kolmunna af rúmlega 60 þúsund tonna kvóta, samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu. Alls hafa fimmtán skip aflaheimildir sem gefa tilefni til veiða, eða frá tveimur til sex þúsunda tonna. 3.5.2012 04:00
Fjöldamet sett 11 mánuði 2011 Tæplega 541 þúsund ferðamenn komu til Íslands um Leifsstöð árið 2011 eða 17,8 prósentum fleiri en árið 2010. Fjöldamet í brottförum ferðamanna um Leifsstöð voru slegin í öllum mánuðum ársins nema mars en þá kom álíka fjöldi og á árinu 2010. Þetta má lesa í tölfræðiúttekt Ferðamálastofu fyrir árið 2011. 3.5.2012 03:15
Í varðhaldi grunaður um grófa misnotkun Rúmlega fertugur karlmaður af Suðurnesjum hefur setið í gæsluvarðhaldi í um sex vikur grunaður um að hafa beitt stjúpdóttur sína grófu kynferðisofbeldi með reglulegu millibili um margra ára skeið. 3.5.2012 00:01
Umhverfisstofnun svarar fyrir sig Umhverfisstofnun segir það ekki rétt sem haldið var fram í fréttum Stöðvar 2 og hér á Vísi í kvöld að stofnunin hafi sent Nesskel reikning vegna afturköllunar áminningar og afsökunarbeiðni. 2.5.2012 22:34
Slógu mann ítrekað með járnröri Rösklega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa, ásamt félaga sínum, veist að mann og slegið hann í hnéð með járnröri þannig að hann féll í jörðina. Síðan slógu þeir manninn nokkrum höggum í höfuðið með járnröri þar sem hann lá í jörðinni. Maðurinn hlaut þrjá skurði í höfuðið og tognun og ofreynslu á hægra hné. Árásin átti sér stað í fjölbýlishúsi að Áflaskeiði í Hafnarfirði í júlí í fyrra. 2.5.2012 19:57
Lögreglumaður ber vitni gegn Vítisenglum Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríkissaksóknara sé hemilt að leiða lögreglumann sem skrifaði skýrslu um starfsemi vélhjólasamtakanna Vítisengla sem vitni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í máli sem ríkissaksóknari hefur höfðað gegn sex einstaklingum sem allir tengjast vélhjólasamtökunum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki mætti leiða lögreglumanninn sem vitni fyrir dóminn. 2.5.2012 19:45
Þyrlan fer í fyrramálið að sækja rússneska sjúklinginn Þyrla Landhelgisgæslunnar mun fara í loftið klukkan fimm í fyrramálið til þess að sækja sjómann á rússneskum togara sem veiktist þegar skipið var um 260 sjómílum frá Reykjavík. Aðstoðarbeiðni barst um klukkan hálfþrjú í dag vegna mannsins. 2.5.2012 18:52
Auðveldara að verða forseti N-Kóreu en ASÍ Það er auðveldara að verða forseti Norður-Kóreu en ASÍ, segir Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness. Í samtali við Reykjavík síðdegis í dag sagðist Vilhjálmur hafa verið að skoða þann möguleika að leggja fram tillögu um lagabreytingar á ársfundi Alþýðusambands Íslands. Með breytingunum hefði forseti alþýðusambandsins gríðarlega stórt bakland vegna þess að hann yrði kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu á meðal allra félagsmanna innan ASÍ en ekki á ársfundi eins og núna. 2.5.2012 20:41
Kostnaður vegna Herjólfs lækkar um 60 milljónir Áætlað er að kostnaður ríkisins vegna rekstrar Herjólfs á næstunni verði nokkuð lægri en hann var í fyrra, samkvæmt nýjum samningi sem gerður hefur verið. Samningurinn nær til áranna 2012 - 2014. Styrkur Vegagerðarinnar til rekstrar Herjólfs var 740 milljónir króna en hann verður 681 milljón á ári samkvæmt nýja samningnum. 2.5.2012 19:19
Fullyrt að Nubo muni leigja Grímsstaði Hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Norðurlandi munu kaupa 70% hlut í Grímsstöðum á Fjöllum og leigja það kínverska fjárfestinum Huang Nubo til fjörutíu ára. Þetta hefur fréttastofa RÚV eftir heimildarmönnum sínum. RÚV segir að Nubo muni greiða leiguna fyrirfram og þannig verði kaupin fjármögnuð. 2.5.2012 18:07
Veikur sjómaður þarf aðstoð Landhelgisgæslunni barst aðstoð um hjálp frá rússneskum togara nú síðdegis. Um borð er rússneskur sjómaður sem mun vera veikur. Landhelgisgæslan gaf þær upplýsingar að skipið væri fyrir utan 200 sjómílur og því nokkuð langt að sækja hann. 2.5.2012 17:47
Sumarbústaður stórskemmdist í bruna Sumarbústaður í Efstadalsskógi í Laugardal í Bláskógabyggð stórskemmdist í bruna nú síðdegis. Allt tiltækt slökkvilið frá Reykholti og Laugarvatni var kallað á staðinn, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum dfs. Að auki var sjúkra- og lögreglulið sent frá Selfossi. 2.5.2012 17:12
Kræklingarækt rædd á þingi: "Frétt Stöðvar 2 var sláandi“ Þingmennirnir Unnur Brá Konráðsdóttir og Kristján L. Möller lýstu því bæði yfir í þingsal í dag að reglugerðarfarganið sem einkenni kræklingarækt hér á landi beri að endurskoða hið snarasta. Stöð 2 hefur undanfarið fjallað um málið en til þess að hefja kræklingaeldi, sem er í eðli sínu einfalt í sniðum, þarf að sækja um leyfi og fá umsagnir hjá fjölda aðila og stofnana. 2.5.2012 15:50
Pétur Blöndal: Siðlausir vildarpunktar Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að vildarpunkta flugfélaga vera ósiðlega. Pétur vekur athygli á málinu á Facebook-síðu sinni. 2.5.2012 15:29
Hefur þú séð rauðan bíl með númerið AX-599? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir rauðum Peugeot 307 með skráningarnúmerið AX-599 en bílnum var stolið frá bifreiðaverkstæði við Gylfaflöt í Grafarvogi um þar síðustu helgi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is 2.5.2012 14:50
Ísland mótmælir tillögu um heimild til refsiaðgerða Íslendingar mótmæltu formlega í dag fyrirliggjandi tillögu ESB um reglugerðarheimild til að beita viðskiptaaðgerðum gegn ríkjum sem stundi ósjálfbærar firskveiðar. Yfirlýsing þessa efnis var lesin á fundi Sameiginlegu EES nefndarinnar sem fram fór í dag. Í yfirlýsingu Íslands eru ítrekuð sú afstaða að efni reglugerðarinnar brjóti í bága við alþjóðalög og EES samninginn. 2.5.2012 14:40
Íslenskir kokkar settu heimsmet Íslenskir matreiðslumeistarar tóku þátt í að setja heimsmet í Suður Kóreu í morgun. Metið var sett í borginni Daejoeon þegar 2.111 matreiðslumenn komu saman en það mun vera mesti fjöldi matreiðslumanna á einum stað í sögunni. 2.5.2012 14:29
Lokanir á Reykjanesbraut Vinstri akrein suðurleiðar á Reykjanesbraut, á milli Hnoðraholts og Vífilsstaðarvegar verður lokuð í dag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að unnið sé að uppsetningu vegriðs á vegarkaflanum og því þurfi að loka á meðan á vinnu stendur. 2.5.2012 14:15
Uppteknir foreldrar vanrækja börn sín Foreldrar eru oft svo uppteknir af sjálfum sér og eigin vandamálum að þeir vanrækja samskipti við börn sín. Börn geta til dæmis búið við efnahagslegt öryggi en ekki fengið þau tilfinningalegu tengsl sem þau þurfa. Tilfinningaleg vanræksla getur leitt til þess að börnin þroskast seinna á ýmsum sviðum en önnur börn. Afleiðingarnar geta orðið alvarlegar og keðjuverkunin óheillavænleg. 2.5.2012 13:30
Íslenskir unglingar ánægðir með líf sitt Íslenskir unglingar eru með þeim ánægðustu í heimi. Um 95 prósent unglinga hér á landi segjast ánægðir með líf sitt, samkvæmt niðurstöðum nýrrar, alþjóðlegrar rannsóknar sem birt verður í dag. 2.5.2012 13:00
Vill innheimta peninga sem Kópavogsbær varð af vegna sérkjara Guðrún Pálsdóttir, sem lét af embætti bæjarstjóra í Kópavogi í febrúar, fékk í tíð sinni sem fjármálastjóri hjá bæjarfélaginu hagstæðari vaxtarkjör en aðrir vegna einbýlishúsalóðar auk þess sem hún fékk vaxtalaus lán fyrir gatnagerðargjöldum. 2.5.2012 12:48
Lögreglumenn neyðast til að borga sjálfir fyrir varnarbúnað Þriðjungur lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu telur sig skorta öryggis eða varnarbúnað við störf. Lögreglumenn hafa neyðst til að fjárfesta sjálfir í slíkum búnaði. 2.5.2012 12:12
Mikið áfall að missa góðan vin „Það var mikið áfall að heyra af þessu. Ég talaði við hann á laugardaginn og þá lét hann vel af sér,“ segir sundkappinn Jakob Jóhann Sveinsson. 2.5.2012 11:00