Skuldir dagaði uppi í læstum skáp 3. maí 2012 10:00 Guðrún segir mannleg mistök hafa leitt til að hún fékk hagstæðari vaxtakjör en aðrir vegna lóðakaupa er hún var fjármálastjóri hjá Kópavogsbæ. „
Ég er að sjálfsögðu að kalla eftir frekari skýringum á þeim og met stöðuna þegar þær liggja fyrir,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, um vaxtakjör sem Guðrún Pálsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri naut vegna lóðakaupa af bænum í fjármálastjóratíð sinni. Ármann segist fyrst nú hafa fengið gögn um vaxtakjörin á sitt borð og undirstrikar að upplýsingarnar hafi verið teknar saman að beiðni Guðríðar Arnardóttur, þáverandi formanns bæjarráðs, í byrjun ágúst í fyrra. Í Fréttablaðinu í gær kom fram að Guðrún fékk hagstæðari vexti en tíðkuðust hjá bænum á um 2,6 milljóna króna skuldabréfum sem gefin voru út 1996 vegna lóðakaupa. Einnig að hún borgaði ekki vexti af um 1,1 milljóna króna gatnagerðargjöldum sem hún greiddi upp á árunum 1999 til 2002. Skýrði hún vaxtakjörin á skuldabréfunum sem "mannleg mistök" og vaxtaleysið á gatnagerðargjöldunum sem bætur fyrir tafir vegna deiliskipulagsbreytinga. Haft var eftir Guðríði Arnardóttur í Fréttablaðinu í gær að meðal annars þessi mál Guðrúnar hafi orðið til þess að Samfylkingin hafi ekki lengur stutt hana til setu í bæjarstjórastólnum. „Ég hef engar forsendur til að draga þessar skýringar í efa að svo komnu máli,“ segir Guðríður þó nú um skýringar Guðrúnar. „En enn sem fyrr er ég þeirrar skoðunar að málið þurfi að skoða miklu betur og meðal annars fara rækilega yfir það í hvaða tilfellum heimildir til niðurfellinga vaxta voru veittar og þá af hverjum.“ Upphafspunktur skoðunarinnar á kjörum Guðrúnar Pálsdóttur í lóðaviðskiptunum var í læstum skjalaskápi á bæjarskrifstofunni. Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte var ráðið í fyrra til að kanna skjöl úr skápnum sem er steyptur inn í vegg í opnu rými á skrifstofu bæjarins. „Einn lykill er til að skápnum sem er tvískiptur, annar hlutinn er geymdur inni á skrifstofu fjármálastjóra og hinn í skjalageymslu bæjarins. Margir starfsmenn vita af þessari ráðstöfun og hafa þannig hugsanlega aðgang að skápnum en enginn ætti að fara í skápinn nema með vitneskju fjármálastjóra,“ segir í skýrslu Deloitte. Endurskoðunarfyrirtækið rannsakaði ávísanir, tryggingavíxla og skuldabréf úr skjalaskápnum. Komu meðal annars í ljós um og yfir tíu ára gamlar ávísanir sem bærinn hafði aldrei innleyst. Ólag virtist á ýmsum verðbréfum. „Skuldabréfið virðist hafa dagað uppi í skjalaskápnum án frekari innheimtuaðgerða,“ segir sem dæmi um 911 þúsund króna skuldabréf frá því á árinu 2002. „Teljum við augljóst að sú meðhöndlun á gögnum sem hér hefur verið lýst er ekki ásættanleg,“ segir Deloitte sem leggur til að um slík viðskipti verði settar skýrar og samræmdar reglur og farið sé að öllu leyti eftir þeim reglum. gar@frettabladid.is
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Innlent Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Innlent Fleiri fréttir Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Sjá meira