Fleiri fréttir

Fréttu af leigjendunum fyrir nokkrum dögum

Talsmaður Dróma segir fyrirtækið hafa frétt af leigjendum og ástandi brunavarna í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í Kópavogi fyrir nokkrum dögum. Eignin er í eigu fyrirtækisins en leigusamningur var gerður við fyrrum eiganda.

Berklameðferðir hafa skilað góðum árangri

"Þetta er viðráðanlegt mál og þær meðferðir sem er boðið upp á hér á landi ganga vel,“ segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir um berkla. Krummi Björgvinsson, oft kallaður Krummi í Mínus, greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi að hann hefði farið í rannsóknir á lungnadeild Borgarspítalans sem hafi leitt í ljós að hann gæti verið með berkla. Það skýrist þó bráðlega hvort það sé rétt.

Telja nýjar EES-reglur ekki standast stjórnarskrána

Nýjar reglur Evrópusambandsins (ESB) sem Íslandi ber að taka upp vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES) stangast á við íslensku stjórnarskrána, samkvæmt mati sérfræðinga í stjórnskipunarrétti.

Vel horfir með Evrópustyrk til rannsókna á eldfjöllum

Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands mun í samvinnu við Veðurstofu Íslands leiða samevrópskt verkefni 26 rannsóknastofnana og fyrirtækja sem góðar líkur eru á að verði fjármagnað með styrk frá Evrópusambandinu. Verkefnið nefnist Evrópsk ofurstöð í eldfjallafræði á Íslandi (FutureVolc).

Bremsulaus vörubíll með of þungan farm

Lögreglan hafði afskipti af vörubíl með eftirvagn í austurborginni í gærmorgun en grunsemdir vöknuðu um að verið væri að flytja farm sem væri í engu samræmi við heimild.

Krummi í einangrun - gæti verið með berkla

Það skýrist bráðlega hvort að Krummi Björgvinsson, oft kallaður Krummi í Mínus, sé með berkla. Hann var lagður inn á lungnadeild Borgarspítalans í gær og hefur verið í einangrun síðan.

Þetta á ekki að vera styrjöld

Styr hefur staðið um frumvörp Steingríms J. Sigfússonar um fiskveiðistjórnunarkerfi og veiðigjöld. Fjöldi umsagna hefur litið dagsins ljós og eru þær nánast allar neikvæðar. Á miðvikudag var lagt fram álit sérfræðinga atvinnuveganefndar sem segja frumvarpið munu ganga af fjölda sjávarútvegsfyrirtækja dauðum.

Persónuvernd varar við töfum

Þrátt fyrir að málum sem berast Persónuvernd hafi stöðugt fjölgað hefur starfsmönnum þar fækkað. „Það sem af er þessu ári hafa 612 ný mál verið skráð hjá stofnuninni. Til samanburðar voru nýskráð mál þann 1. maí 2008 alls 361. Er því um 75 prósenta aukningu að ræða á fjórum árum,“ segir í frétt Persónuverndar.

Stjórnarskráin stöðvar eftirlitsstofnanir

Íslandi ber vegna aðildar að EES að innleiða reglugerðir um nýjar evrópskar stofnanir með miklar heimildir tengdar fjármálamörkuðum. Sérfræðingar í stjórnskipunarrétti telja að með því myndu stjórnvöld brjóta stjórnarskrá.

Ísland vill fá að sleppa við sumartímann

Samningsafstaða Íslands varðandi flutningastarfsemi annars vegar og frjálsa vöruflutninga hins vegar í samningaviðræðum Íslands og Evrópusambandsins hefur verið kynnt framkvæmdastjórn ESB og aðildarríkjunum. Meðal þess sem þar kemur fram er að Ísland vill sleppa við að taka upp sumartíma, komi til aðildar.

Guðrún J. Halldórsdóttir látin

Guðrún J. Halldórsdóttir, fyrrverandi skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur og alþingismaður fyrir Kvennalistann, lést miðvikudaginn 2. maí 77 ára að aldri.

Íbúar í Mosfellsbæ vilja ekki Sorpu áfram

Íbúafundur sem haldinn var í Mosfellsbæ í gærkvöldi um starfssemi Sorpu í Álfsnesi, skorar á stjórn Sorpu og aðildarsveitarfélög að finna nýtt framtíðarsvæði fyrir starfssemi Sorpu, en sorphaugar eru í Álfsnesi.

Erfitt að halda athöfn með presti

Theodór Kr. Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarfirði og Dölum, segir líkgeymslumál í Borgarfirði í ólestri. Vandamálið sé í senn viðkvæmt og aðsteðjandi og nauðsynlegt að bregðast við því hið fyrsta.

Staða íslenska laxins góð í alþjóðlegu tilliti

Íslenski laxastofninn stendur frekar vel. Af 400 laxám í Noregi hefur verið lokað fyrir veiði í 124 ám. Vestanhafs er Atlantshafslax á lista yfir dýr í útrýmingarhættu. Mjög misjafnt er milli landa hversu miklu af veiddum laxi er sleppt.

Hægfara þing haldi áfram fram á sumar

Alþingi mun starfa fram í júní eða júlí gerist þess þörf. Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í þinginu í gær. Hún sagði þó að vel ætti að vera hægt að ljúka þingstörfum fyrir 31. maí eins og starfsáætlun gerir ráð fyrir, ef vilji væri fyrir hendi.

Erfitt að tæma ósamþykkta brunahúsið

„Við tæmum yfirleitt svona hús en þarna er leigusamningur í gildi þannig að við getum í rauninni ekki tæmt það,“ segir Magnús Steinþór Pálmarsson, talsmaður eignaumsýslufélagsins Dróma, um ósamþykkt íbúðarhúsnæði að Vesturvör 27 í Kópavogi, þar sem eldur kom upp í fyrrinótt.

Ofbeldi gagnvart starfsfólki algengt

Tæpur þriðjungur starfsfólks geðsviðs Landspítalans hefur orðið fyrir líkamlegu ofbeldi síðasta hálfa árið. Um helmingur hefur orðið fyrir andlegu ofbeldi og tæplega fjórtán prósent fyrir kynferðislegu ofbeldi. Gerendur eru í langflestum tilvikum sjúklingar.

Þurfa að halda sig inni vegna ruslalyktar

Grafarvogsbúar hafa fengið sig fullsadda af súrri gaslykt og óþef af rusli sem leggur frá urðunarstaðinum á Álfsnesi og vilja starfsemina burt. Dæmi eru um að íbúar hafi þurft að halda sig inni við vegna ólyktar.

"Ef ég hefði vaknað klukkutíma seinna hefði ég dáið"

Þriggja ára gömul stúlka og fjórir fullorðnir voru í lífshættu þegar eldur kom upp í ósamþykktu íbúðarhúsnæði í eigu Dróma í Kópavogi í nótt. Íbúi segir engar brunavarnir vera í húsinu og að það hafi verið lán að ekki fór verr.

Þórólfur: Allt opinberar upplýsingar

"Þetta heitir að hlaupa í manninn en láta boltann vera. Allar þær upplýsingar sem ég nefni þarna eru opinberar upplýsingar, eða upplýsingar sem ég hef fengið eftir öðrum leiðum," segir Þórólfur Matthíasson, sem ritaði grein í Fréttablaðið í dag um ársreikninga Bændasamtakanna.

Dallas snýr aftur á Stöð 2 í sumar

"Það sat öll þjóðin spennt á miðvikudagskvöldum eftir þessum þáttum,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri Stöðvar 2. Þann 13. júní næstkomandi mun stöðin taka til sýninga hina gífurlega vinsælu þætti Dallas.

Sakar Þórólf um að hafa skaðað skuldaendurskoðun hótelanna

"Hann er þarna að tjá sig um fyrirtæki sem eru á viðkvæmu stigi og hefur valdið okkur miklum skaða með þessari grein,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtakanna, um grein sem Þórólfur Matthíasson, ritaði í Fréttablaðið í dag.

Hæstaréttardómari hafði betur í Hæstarétti

Hæstaréttardómarinn Viðar Már Matthíasson hafði í dag sigur í Hæstarétti í máli sem Lánasjóður íslenskra námsmanna höfðaði á hendur honum. Lánasjóðurinn krafðist ógildingar á úrskurði málskotsnefndar, sem hafði úrskurðað að ábyrgð sem Viðar Már gekkst í árið 1985 væri úr gildi fallin.

Fálkaorður seldar dýrum dómum

Stórriddarakross með stjörnu var sleginn á 2.600 evrur á vef danska uppboðshússins Bruun Rasmussen í dag. Upphæðin jafngildir um 475 þúsund krónum.

Fá ekki útskrift af símtali Davíðs og Geirs

Seðlabanki Íslands hefur hafnað beiðni þess efnis að útskrift af símtali Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra og Davíðs Oddssonar þáverandi formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands, verði afhent fjárlaganefnd og efnhags- og viðskiptanefnd Alþingis. Formenn nefndanna, þau Sigríður Ingibjörg Ingadóttir formaður fjárlaganefndar og Helgi Hjörvar formaður efnahags- og viðskiptanefndar óskuðu eftir því að Seðlabankinn léti þeim í té útskriftina.

Meintur flassari handtekinn - beraði sig fyrir utan grunnskóla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um mann sem fletti sig klæðum fyrir framan börn fyrir utan Breiðagerðisskóla skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Samkvæmt lögreglunni gat tilkynnandi gefið lýsingu á þessum manni sem og bifreiðinni sem hann var á.

Gagnrýna meirihlutann fyrir seinagang vegna umsagnar

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði gagnrýndu meirihlutann í borgarstjórn á borgarráðsfundi í dag fyrir að Reykjavíkurborg hafi ekki skilað inn umsögn vegna frumvarps að lögum um veiðigjöld. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum segir að frumvarpið hafi verið sent borginni til umsagnar frá Alþingi fyrir um mánuði síðan. "en sú beiðni þingsins var aldrei kynnt borgarráði og engin umsögn um þetta stóra hagsmunamál því farið frá stærsta sveitarfélagi landins. Frestur til að skila inn umsögnum til Alþingis er liðin, en að beiðni borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins verður málið tekið upp aftur á næsta fundi borgarráðs,“ segir svo í tilkynningunni.

Málum fjölgar hjá Persónuvernd en starfsmönnum fækkar

Erindum sem Persónuvernd fær inn á sitt borð hefur fjölgað verulega eða um 75 prósent frá árinu 2008. Á sama tíma hefur starfsmönnum fækkað. Á heimasíðu stofnunarinnar segir að haldi áfram sem horfi megi búast við því að "umtalsverðar tafir, umfram það sem nú er, verði á afgreiðslu mála hjá stofnuninni seinni part árs auk þess sem stofnunin sér ekki fram á að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum með fullnægjandi hætti.“

Óhefðbundnar lækningar: Lausnirnar verða bara brjálaðri

"Það er eins og fólk skorti stundum þau verkfæri hugans að spyrja gagnrýna spurninga um svona hluti og leita sér frekari upplýsinga,“ segir læknirinn Svanur Sigurbjörnsson, sem gagnrýnir umræðu um óhefðbundnar lækningar hér á landi. Sjálfur gagnrýndi hann umfjöllun Fréttatímans harðlega en þar var fjallað um konu sem náði sér eftir að hafa veikst af krabbameini, en fyrirsögn greinarinnar var: "Sigraðist á krabba án geisla og lyfja“.

Bíð eftir að vakna upp af draumnum

Magnús Samúelsson vaxtarræktarmaður hefur unnið til fernra verðlauna á fjórum alþjóðlegum mótum á síðastliðnum fjórum vikum. "Þessi árangur er ótrúlega góður og ég er ekki enn farinn að átta mig á þessu. Fólk í kringum mig er búið að vera að reyna að berja það inn í hausinn á mér en ég er bara að bíða eftir að ég vakni af draumi,“ segir Magnús.

Halldór Guðmundsson nýr forstjóri Hörpu

Halldór Guðmundsson hefur verið ráðinn forstjóri Hörpu, tónlistar og ráðstefnuhúss. Í tilkynningu frá Hörpu segir að Halldór hafi frá vori 2008 verið til skamms tíma framkvæmdastjóri verkefnisins "Sögueyjan Ísland"- þegar Ísland var heiðursgestur bókamessunar í Frankfurt.

Spyr um gríðarlegt tap hótela í eigu Bændasamtakanna

"Ég var búinn að biðja lengi um þetta, samtökin hummuðu þetta af sér. Það bendir margt til þess að það hafi verið að reyna að fela þessar upplýsingar, enda vita þeir upp á sig skömmina," segir Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, í samtali við Vísir en hann skrifaði grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann spyr Bændassamtökin spurninga vegna ársreikninga sem hann fékk sjálfur að lokum frá landbúnaðaráðuneytinu eftir að hafa óskað eftir þeim frá samtökunum.

Vilja draga kvótafrumvörpin til baka

Kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar munu hafa neikvæð áhrif á sjávarbyggðirnar og rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Þetta kemur fram í greinargerð sérfræðingahóps á vegum atvinnuveganefndar Alþingis. Þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja að ríkisstjórnin dragi frumvörpin til baka.

Sakaðir um málþóf

Þingmenn Sjálfstæðisflokks voru sakaðir á Alþingi í morgun um að beita málþófi í umræðu um tillögu forsætisráðherra varðandi breytingar á Stjórnarráði Íslands. Þingmenn ræddu málið í sex klukkustundir í gær.

Strandveiðimenn minntir á rás 16

Nú þegar strandveiðar standa sem hæst hafa mörg tilfelli komið upp þar sem erfitt hefur verið að ná í þá sem eru að veiðum en þeir eiga að nota rás 16 og ber skylda til að hafa hana opna. Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að allnokkur atvik hafi komið upp þar sem nærstaddir bátar hafi verið kallaðir til aðstoðar. Þá segir að ánægjulegt sé að sjá að í mörgum tilfellum virðist bátarnir halda hópinn sem auki til muna öryggi þeirra.

Rúmlega helmingur 18 ára nema með of hátt hlutfall líkamsfitu

Rúmlega helmingur átján ára nema greindust með of hátt hlutfall líkamsfitu samkvæmt niðurstöðum um holdafar, úthald, hreyfingu og efnaskiptasnið meðal 18 ára íslenskra framhaldsskólanema en niðurstöðurnar voru birtar í nýjasta hefti Læknablaðsins.

Skuldir dagaði uppi í læstum skáp

Verðbréf dagaði uppi óinnheimt í læstum skjalaskáp hjá Kópavogsbæ. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri leitar skýringa á kjörum sem Guðrún Pálsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri, naut við lóðakaup er hún var fjármálastjóri bæjarins.

Sjá næstu 50 fréttir