Fleiri fréttir

Hundrað fá sumarvinnu

Liðlega 450 manns sóttu um sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli og hafa rúmlega eitt hundrað verið ráðnir úr þeim hópi, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins. Fjöldinn er sagður svipaður og undanfarin ár.

Vilja hert eftirlit með dýralyfjagjöf og búfjárafurðum

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) telur að herða þurfi opinbert eftirlit á Íslandi til að tryggja að kjöt og mjólk innihaldi ekki efnaleifar af dýralyfjum. Yfirdýralæknir segir niðurstöður ESA frekar hastarlegar og sumar byggðar á misskilningi, þó sé þar að finna gagnlegar ábendingar sem unnið verði úr. Nýtt rafrænt skráningarkerfi með skráningu dýralyfja og lyfjasölu dýralækna er í burðarliðnum, en það er forsenda þess að unnt verði að sinna lögboðnu eftirliti.

Helmingur kolmunnans á land

Íslenski flotinn hafði í gær veitt rúmlega 35 þúsund tonn af kolmunna af rúmlega 60 þúsund tonna kvóta, samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu. Alls hafa fimmtán skip aflaheimildir sem gefa tilefni til veiða, eða frá tveimur til sex þúsunda tonna.

Fjöldamet sett 11 mánuði 2011

Tæplega 541 þúsund ferðamenn komu til Íslands um Leifsstöð árið 2011 eða 17,8 prósentum fleiri en árið 2010. Fjöldamet í brottförum ferðamanna um Leifsstöð voru slegin í öllum mánuðum ársins nema mars en þá kom álíka fjöldi og á árinu 2010. Þetta má lesa í tölfræðiúttekt Ferðamálastofu fyrir árið 2011.

Í varðhaldi grunaður um grófa misnotkun

Rúmlega fertugur karlmaður af Suðurnesjum hefur setið í gæsluvarðhaldi í um sex vikur grunaður um að hafa beitt stjúpdóttur sína grófu kynferðisofbeldi með reglulegu millibili um margra ára skeið.

Umhverfisstofnun svarar fyrir sig

Umhverfisstofnun segir það ekki rétt sem haldið var fram í fréttum Stöðvar 2 og hér á Vísi í kvöld að stofnunin hafi sent Nesskel reikning vegna afturköllunar áminningar og afsökunarbeiðni.

Slógu mann ítrekað með járnröri

Rösklega þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa, ásamt félaga sínum, veist að mann og slegið hann í hnéð með járnröri þannig að hann féll í jörðina. Síðan slógu þeir manninn nokkrum höggum í höfuðið með járnröri þar sem hann lá í jörðinni. Maðurinn hlaut þrjá skurði í höfuðið og tognun og ofreynslu á hægra hné. Árásin átti sér stað í fjölbýlishúsi að Áflaskeiði í Hafnarfirði í júlí í fyrra.

Lögreglumaður ber vitni gegn Vítisenglum

Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að ríkissaksóknara sé hemilt að leiða lögreglumann sem skrifaði skýrslu um starfsemi vélhjólasamtakanna Vítisengla sem vitni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í máli sem ríkissaksóknari hefur höfðað gegn sex einstaklingum sem allir tengjast vélhjólasamtökunum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki mætti leiða lögreglumanninn sem vitni fyrir dóminn.

Þyrlan fer í fyrramálið að sækja rússneska sjúklinginn

Þyrla Landhelgisgæslunnar mun fara í loftið klukkan fimm í fyrramálið til þess að sækja sjómann á rússneskum togara sem veiktist þegar skipið var um 260 sjómílum frá Reykjavík. Aðstoðarbeiðni barst um klukkan hálfþrjú í dag vegna mannsins.

Auðveldara að verða forseti N-Kóreu en ASÍ

Það er auðveldara að verða forseti Norður-Kóreu en ASÍ, segir Vilhjálmur Birgisson formaður verkalýðsfélags Akraness. Í samtali við Reykjavík síðdegis í dag sagðist Vilhjálmur hafa verið að skoða þann möguleika að leggja fram tillögu um lagabreytingar á ársfundi Alþýðusambands Íslands. Með breytingunum hefði forseti alþýðusambandsins gríðarlega stórt bakland vegna þess að hann yrði kosinn í allsherjaratkvæðagreiðslu á meðal allra félagsmanna innan ASÍ en ekki á ársfundi eins og núna.

Kostnaður vegna Herjólfs lækkar um 60 milljónir

Áætlað er að kostnaður ríkisins vegna rekstrar Herjólfs á næstunni verði nokkuð lægri en hann var í fyrra, samkvæmt nýjum samningi sem gerður hefur verið. Samningurinn nær til áranna 2012 - 2014. Styrkur Vegagerðarinnar til rekstrar Herjólfs var 740 milljónir króna en hann verður 681 milljón á ári samkvæmt nýja samningnum.

Fullyrt að Nubo muni leigja Grímsstaði

Hlutafélag í eigu sveitarfélaga á Norðurlandi munu kaupa 70% hlut í Grímsstöðum á Fjöllum og leigja það kínverska fjárfestinum Huang Nubo til fjörutíu ára. Þetta hefur fréttastofa RÚV eftir heimildarmönnum sínum. RÚV segir að Nubo muni greiða leiguna fyrirfram og þannig verði kaupin fjármögnuð.

Veikur sjómaður þarf aðstoð

Landhelgisgæslunni barst aðstoð um hjálp frá rússneskum togara nú síðdegis. Um borð er rússneskur sjómaður sem mun vera veikur. Landhelgisgæslan gaf þær upplýsingar að skipið væri fyrir utan 200 sjómílur og því nokkuð langt að sækja hann.

Sumarbústaður stórskemmdist í bruna

Sumarbústaður í Efstadalsskógi í Laugardal í Bláskógabyggð stórskemmdist í bruna nú síðdegis. Allt tiltækt slökkvilið frá Reykholti og Laugarvatni var kallað á staðinn, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum dfs. Að auki var sjúkra- og lögreglulið sent frá Selfossi.

Kræklingarækt rædd á þingi: "Frétt Stöðvar 2 var sláandi“

Þingmennirnir Unnur Brá Konráðsdóttir og Kristján L. Möller lýstu því bæði yfir í þingsal í dag að reglugerðarfarganið sem einkenni kræklingarækt hér á landi beri að endurskoða hið snarasta. Stöð 2 hefur undanfarið fjallað um málið en til þess að hefja kræklingaeldi, sem er í eðli sínu einfalt í sniðum, þarf að sækja um leyfi og fá umsagnir hjá fjölda aðila og stofnana.

Pétur Blöndal: Siðlausir vildarpunktar

Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að vildarpunkta flugfélaga vera ósiðlega. Pétur vekur athygli á málinu á Facebook-síðu sinni.

Hefur þú séð rauðan bíl með númerið AX-599?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir rauðum Peugeot 307 með skráningarnúmerið AX-599 en bílnum var stolið frá bifreiðaverkstæði við Gylfaflöt í Grafarvogi um þar síðustu helgi. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is

Ísland mótmælir tillögu um heimild til refsiaðgerða

Íslendingar mótmæltu formlega í dag fyrirliggjandi tillögu ESB um reglugerðarheimild til að beita viðskiptaaðgerðum gegn ríkjum sem stundi ósjálfbærar firskveiðar. Yfirlýsing þessa efnis var lesin á fundi Sameiginlegu EES nefndarinnar sem fram fór í dag. Í yfirlýsingu Íslands eru ítrekuð sú afstaða að efni reglugerðarinnar brjóti í bága við alþjóðalög og EES samninginn.

Íslenskir kokkar settu heimsmet

Íslenskir matreiðslumeistarar tóku þátt í að setja heimsmet í Suður Kóreu í morgun. Metið var sett í borginni Daejoeon þegar 2.111 matreiðslumenn komu saman en það mun vera mesti fjöldi matreiðslumanna á einum stað í sögunni.

Lokanir á Reykjanesbraut

Vinstri akrein suðurleiðar á Reykjanesbraut, á milli Hnoðraholts og Vífilsstaðarvegar verður lokuð í dag. Í tilkynningu frá lögreglu segir að unnið sé að uppsetningu vegriðs á vegarkaflanum og því þurfi að loka á meðan á vinnu stendur.

Uppteknir foreldrar vanrækja börn sín

Foreldrar eru oft svo uppteknir af sjálfum sér og eigin vandamálum að þeir vanrækja samskipti við börn sín. Börn geta til dæmis búið við efnahagslegt öryggi en ekki fengið þau tilfinningalegu tengsl sem þau þurfa. Tilfinningaleg vanræksla getur leitt til þess að börnin þroskast seinna á ýmsum sviðum en önnur börn. Afleiðingarnar geta orðið alvarlegar og keðjuverkunin óheillavænleg.

Íslenskir unglingar ánægðir með líf sitt

Íslenskir unglingar eru með þeim ánægðustu í heimi. Um 95 prósent unglinga hér á landi segjast ánægðir með líf sitt, samkvæmt niðurstöðum nýrrar, alþjóðlegrar rannsóknar sem birt verður í dag.

Vill innheimta peninga sem Kópavogsbær varð af vegna sérkjara

Guðrún Pálsdóttir, sem lét af embætti bæjarstjóra í Kópavogi í febrúar, fékk í tíð sinni sem fjármálastjóri hjá bæjarfélaginu hagstæðari vaxtarkjör en aðrir vegna einbýlishúsalóðar auk þess sem hún fékk vaxtalaus lán fyrir gatnagerðargjöldum.

Mikið áfall að missa góðan vin

„Það var mikið áfall að heyra af þessu. Ég talaði við hann á laugardaginn og þá lét hann vel af sér,“ segir sundkappinn Jakob Jóhann Sveinsson.

Búið að hreinsa Vísi

Tæknimenn Vísis og hýsingaraðilans Advania hafa nú fundið og hreinsað út kóða á síðunni sem óprúttnir aðilar komu fyrir í nótt.

Fyrrum FBI maður leitar að Lagarfljótsorminum

Bandarískt kvikmyndatökulið á vegum NBC sjónvarpsstöðvarinnar var við tökur í Fljótsdal í síðustu viku við leit að Lagarfljótsorminum. Stjórnandi hópsins er fyrrum sérsveitarmaður úr bandarísku alríkislögreglunni FBI.

Atvinnuþátttaka dróst lítillega saman

Á fyrsta ársfjórðungi ársins voru að jafnaði 176.200 manns á vinnumarkaði og fjölgaði um 300 einstaklinga frá sama tímabili í fyrra. Jafngildir þetta 78,8 prósent atvinnuþátttöku en hún var 79,2 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2011. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri umfjöllun Hagstofunnar um stöðu mála á vinnumarkaði á fyrsta ársfjórðungi ársins.

Yfir 500 bátar komnir á strandveiðar

Smábátar umhverfis allt land hafa streymt út til veiða frá því undir morgun, en í dag er fyrsti veiðidagur strandveiðiflotans í sumar.

Rannsaka hvað varð um muni úr einvígi aldarinnar

Skáksamband Íslands ætlar að skipa nefnd sem á að rannsaka hvað varð um muni, tengda svonefndu einvígi aldarinnar, þegar Boris Spassky og Bobby Fischer telfdu um heimsmeistaratitilinn í skák í Laugadalshöll árið 1972.

Ökumaður í gallabuxum missti stjórn á hjóli sínu

Ökumaður bifhjóls datt af hjóli sínu á Breiðholtsbrautinni um klukkan sjö í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var ökumaðurinn einungis klæddur í gallabuxur og með mótorkrosshjálm á hausnum. Hann slapp tiltölulega vel frá slysinu, miðað við aðbúnað og aðstæður. Breiðholtsbrautin var lokuð um tíma.

Á rúmlega 160 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni

Lögreglumenn á Suðurnesjum stöðvuðu í dag ökumann sem ók bifreið sinni á 163 km/klst hraða á Reykjanesbraut en þar er hámarkshraði 90 km/klst. Samkvæmt reglugerð um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum er sektarfjárhæðin við broti ökumannsins 140.000 krónur.

Myndir frá hátíðarhöldum í miðbænum

Fjöldi fólks kom saman í miðbæ Reykjavíkur í tilefni af baráttudegi verkalýðsins. Fjölmenn skrúðganga gekk frá horni Snorrabrautar og Laugavegs klukkan hálf tvö. Gengið var niður Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og inn á Ingólfstorg. Útifundur var svo á Ingólfstorgi þar sem nokkrir ræðumenn tóku til máls. Hátíðarsamkomur og kaffisamsæti eru á að minnsta kosti 38 stöðum á landinu.

Svona er dagskráin um allt land í dag

Baráttudagur verkalýðsins, 1.maí, er í dag, af því tilefni eru hátíðarsamkomur og kaffisamsæti á að minnsta kosti 38 stöðum á landinu. Í Reykjavík verður safnast saman á Hlemmi klukkan eitt og leggur kröfuganga af stað klukkan hálf tvö, göngunni lýkur á Ingólfstorgi þar sem útifundur hefst klukkan tíu mínútur yfir tvö.

Ný lög ætti frekar að kalla lög um bann við skeldýrarækt

Nýleg lög um skeldýrarækt ætti frekar að kalla lög um bann við skeldýrarækt. Þetta segir formaður Samtaka atvinnulífsins sem gagnrýnir þann frumskóg eftirlitsaðila og stofnana sem komast þarf í gegn um til að hefja ræktun kræklinga.

Sjá næstu 50 fréttir