Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maðurinn látinn Maðurinn sem slasaðist í hlíðum Helgafells í nágrenni Hafnarfjarðar í gær lést í nótt á Landspítalanum, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins á þessari stundu en hann var rúmlega þrítugur. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann manninn mikið slasaðan í hlíðum fjallsins síðdegis í gær eftir að björgunarsveit hafði leitað hans um nokkra stund. 13.1.2012 12:09
Mál Más ekki á borði Steingríms Steingrímur J. Sigfússon segir efnahags- og viðskiptaráðuneytið ekki eiga eftir að skipta sér af deilu Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, og seðlabankans. Allir eigi rétt á að bera ágreining undir dómstóla. 13.1.2012 12:07
Tæpur þriðjungur hunda í Reykjavík óskráðir Talið er að uppundir 30% hunda í Reykjavík séu óskráðir - og það leysir engan vanda að skylda hundaeigendur til að sækja námskeið, segir formaður heilbrigðisnefndar Reykjavíkur. Í nýrri hundasamþykkt borgarinnar er hundum á bannlista fjölgað um níu tegundir. 13.1.2012 12:00
Fékk grýlukerti á sig Grýlukerti á þakbrún á húsi við Dalbrekku féll á mann í Dalbrekku í Kópavogi um níuleytið í morgun. Hann er ekki alvarlega slasaður en sjúkrabifreið var kölluð til, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eftir klukkan tíu í morgun féll maður utandyra á Álfhólsvegi við Álfhólsskóla. Sjúkrabíll var kallaður til en ekki er vitað nánar um meiðsl hans. 13.1.2012 11:23
Forsetahjónin fagna með drottningunni Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú munu um helgina taka þátt í hátíðardagskrá í Kaupmannahöfn í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur varð drottning Danmerkur. 13.1.2012 10:38
Fleiri þráðlaus net á næstunni Reykjavíkurborg er að fjölga þráðlausum nettengingum í félagsmiðmiðstöðvum sínum. 13.1.2012 10:15
Lítið um vatnsflóð enn sem komið er Tíðindalítið hefur verið hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu þrátt fyrir leysingarnar sem gengnar eru í garð. Þar á bæ beina menn þó eindregnum tilmælum til borgarbúa að þeir hreinsi vel frá niðurföllum við kjallara og á svölum sérstaklega. Eins minna þeir forsvarsmenn fyrirtækja sem verða lokuð yfir helgina að ganga vel frá þannig að vatn eigi örugglega greiða leið í niðurföll. 13.1.2012 09:37
Samþykkja flestar beiðnir um hleranir Dómstólar samþykkja meirihluta beiðna lögreglu um heimild til símhlerana. Túlka verður lög um hleranir þröngt segir fyrrverandi ríkissaksóknari. Segir einstök tilvik líta út eins og sérstakur saksóknari sé að fiska með hlerunum. 13.1.2012 09:30
Kristján Möller stakk óþægilegri skýrslu undir stól Kristján Möller þáverandi samgönguráðherra virðist hafa stungið skýrslu um Vaðlaheiðagöng undir stól en skýrsluna fékk hann í hendur sumarið 2010. Í henni kemur fram að veggjald þurfti að vera tvöfalt hærra en rætt hefur verið um og að framkvæmdin sé mjög áhættusöm. 13.1.2012 09:28
Meiri áhersla á sölu leyfa til útlendinga Sala til fyrirtækja og útlendinga mun standa undir hærri leigu í Þverá og Kjarrá segir nýr leigutaki. Mun bjóða Litlu-Þverá sem nýtt tveggja stanga veiðisvæði. Gamlar hefðir verða endurvaktar við Kjarrá og veiðimenn fá undir sig hesta. 13.1.2012 09:15
Aldrei fleiri farið um Leifsstöð Um 21 þúsund erlendir ferðamenn fóru úr landi um Leifsstöð í desember. Eru það ríflega 11 prósentum fleiri en í desember árið 2010. Samanlagt fóru því 541 þúsund erlendir ferðamenn úr landi um Leifsstöð á árinu 2011 sem er metfjöldi og tæplega 18 prósentum fleiri en árið 2010. Áður var árið 2008 metár þegar 473 þúsund erlendir ferðamann fóru um Leifsstöð. 13.1.2012 09:00
Vökum yfir líðan barna okkar „Það hefur ekkert foreldri meðfædda vitneskju um hvernig bregðast eigi við áfallastreitu barna, en það er okkar hlutverk að miðla, fræða og kenna, og það gerum við með ráðstefnum sem þessari og því að setja inn á heimasíðu okkar gagnlegar upplýsingar sem foreldrar og forráðamenn barna geta nýtt sér,“ segir Linda Kristmundsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans (BUGL). 13.1.2012 09:00
Fuglavernd styður bannið Fuglavernd styður eindregið niðurstöðu meirihluta svartfuglanefndar umhverfisráðherra um að veiðar á svartfugli verði bannaðar í fimm ár. Í tilkynningu segir að ástundun veiða úr hnignandi stofnum sé siðlaus umgengni við náttúruna og veiðibann eina siðlega viðbragðið við stofnhruni tegunda. 13.1.2012 08:15
Mikið af síld inn á Kolgrafarfirði Talið er að mikið sé af síld inn á Kolgrafarfirði á norðanverðu Snæfellsnesi, en síldveiðiskip komast ekki undir brúnna, sem þverar fjörðinn. 13.1.2012 08:01
Barroso segir þörf á stefnu um vöxt og atvinnu José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að þótt gríðarlega mikilvægt sé að aðildarríkin nái saman um aukið aðhald í ríkisfjármálum, sé það ekki nóg. 13.1.2012 08:00
Lögreglan klippti númer af hátt í 50 bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði í gær athugun á tryggingum og skoðun bíla, sem endaði með því að númer voru klippt af hátt í 50 bílum. 13.1.2012 07:59
Asahláka og slæmt ferðaveður víða um landið Veðurstofan varar við slæmu ferðaveðri sunnan- og vestanlands í dag. Það verður hvöss sunnanátt, allt upp í 20 metra á sekúndu og má búast við snöprum vindstrengjum við fjöll. 13.1.2012 07:47
Fundu nýja loðnugöngu út af Langanesi Loðnuskipin fundu nýja loðnugöngu norðaustur af Langanesi í nótt og eru byrjuð að veiða úr henni. Það er þó engin kraftur komin í veiðarnar enn sem komið er og stendur loðnan djúpt. 13.1.2012 07:27
Maðurinn sem féll í Helgafelli er þungt haldinn Maðurinn, sem áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann í hlíðum Helgafells, ofan við Hafnarfjörð um miðjan dag í gær, reyndist mjög alvarlega slasaður og liggur hann þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. 13.1.2012 07:21
Aflétta þarf óvissu verktaka Stjórn Vaðlaheiðarganga hf. segir að unnið hafi verið að gerð ganga undir Vaðlaheiði á faglegum forsendum í fullu samráði við „þar til bæra aðila“, eins og segir í yfirlýsingu. 13.1.2012 07:15
„Hefðbundið stjórnsýsluklúður“ Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur eru ósáttir við að tillaga um skipun samstarfshóps um mál tengd ÍTR skuli hafa komið fram í menningar- og ferðamálaráði og verið send beint þaðan til borgarráðs. Frumkvæðið hafi átt að vera hjá íþrótta- og tómstundaráði. 13.1.2012 07:00
Vara sterklega við asahlákunni Sterklega er varað við vetrarumhleypingunum sem fylgja vatnsveðrinu sem nú dynur á landsmönnum. Asahlákan um helgina verður mun meiri en um síðustu helgi og hætt við eignaspjöllum og hálkuslysum. 13.1.2012 07:00
Tugir ökumanna í vandræðum við Litlu kaffistofuna Ökumenn á 20 til 30 bílum lentu í vandræðum í hálku og ófærð á nýjum vegkafla á Suðurlandsvegi fyrir neðan Litlu kaffistofuna laust fyrir miðnætti. 13.1.2012 06:52
Verða af hundruðum milljóna króna „Ljóst er að Hafnarfjörður hefur orðið af tekjum sem skipta tugum ef ekki hundruðum milljóna vegna þessa,“ bókuðu fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks eftir að meirihluti skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar ákvað að gera átak í að leiðrétta skráningu fasteigna. 13.1.2012 06:30
Blönduð hjónabönd bönnuð Hæstiréttur Ísraels hefur staðfest umdeild lög sem meina flestum Palestínuaröbum sem gifst hafa Ísraelum búsetu í landinu. 13.1.2012 04:15
Fimm Vítisenglar í gæsluvarðhaldi Fimm einstaklingar, tengdir Vítisenglum á Íslandi, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna líkamsárása á konu í Hafnarfirði. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Þar sagði einnig að leiðtogi þeirra, Einar Marteinsson, sé á meðal þeirra sem sitja í varðhaldi en hann var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í dag. Samkvæmt heimildum RÚV telur lögregla að hann hafi fyrirskipað árásirnar á konuna. 13.1.2012 18:12
Ofur-amma hélt upp á afmælið ásamt 73 barnabarnabörnum Bresk amma hélt upp á 85. afmælisdaginn sinn í vikunni. Í veisluna mættu 10 börn hennar, 48 barnabörn og 73 barnabarnabörn. 12.1.2012 23:11
Símaviðtal við Fanneyju: Tók sín fyrstu skref í dag Hin 19 ára Fanney Þorbjörg Guðmundsdóttir stóð upp úr hjólastólnum og tók sín fyrstu skref í dag eftir að hafa lent í alvarlegu skíðaslysi í Noregi á aðfangadag. 12.1.2012 21:00
Óveðrið ekki búið - flughált og versnandi veður í nótt Uppáhald okkar Íslendinga, veðrið, fer versnandi suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt. Seint í kvöld verður hríðarbylur á Hellisheiði og Þrengslum og það mun svo hlána og fer svo fljótlega í slyddu og rigningu, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni. 12.1.2012 20:00
Jens grunaður um skattsvik Grunur leikur á að einkarekstur Jens Kjartanssonar lýtalæknis hafi ekki verið í samræmi við skattalög. Málinu verður vísað til fjármálaráðuneytisins til frekari skoðunar. 12.1.2012 18:30
Íslendingar gerðu tæknibrellur fyrir Contraband Íslenskt tæknibrellu og eftirvinnslu fyrirtæki hannaði allar brellur í nýjustu mynd Baltasar Kormáks, Contraband. Tuttugu og fimm manns unnu í hátt í fjóra mánuði við að gera myndina eins raunverulega og hægt er. 12.1.2012 19:00
Már ekki í deilu við Seðlabankann - heldur við kjararáð Lögmaður seðlabankastjóra segir málaferli hans vegna launakjara ekki vera deilu við Seðlabankann sjálfan heldur kjararáð sem hafi skort lagaheimild til að úrskurða um laun. Í lagarökum segir að ekki fái staðist að Már njóti ekki sömu réttinda á aðrir embættismenn. 12.1.2012 18:45
Lögðu hald á 200 kannabisplöntur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjórar kannabisræktanir í jafnmörgum íbúðum í fjölbýlishúsum í Reykjavík í gær. Samtals var lagt hald á um 200 kannabisplöntur en á einum staðnum var jafnframt að finna ýmsa muni sem grunur leikur á að séu illa fengnir. Tveir menn voru handteknir í þessum aðgerðum lögreglu. 12.1.2012 17:54
Hvað á að gera til að koma í veg fyrir vatnstjón? Rigningartíðin sem von er á næstu daga þýðir að fólk þarf nú að undirbúa sig fyrir leysingarnar. Tryggingafyrirtækið Sjóvá hefur sent frá sér leiðbeiningar til fólks hvernig best sé að bera sig að til þess að koma í veg fyrir vatnstjón. 12.1.2012 16:51
Leituðu að manni við Helgafell Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitamenn leituðu að við Helgafell í dag er fundinn.. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var þyrlan að koma úr eftirlitsflugi þegar óskað var eftir að hún aðstoðaði við leitina. Áhöfn þyrlunnar fann hann fljótlega. Sigmaður og læknir sigu niður til hans. Þyrlan þurfti síðan frá að hverfa til að taka eldsneyti og samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni var hún komin aftur á staðinn um klukkan fimm til þess að sækja hann. 12.1.2012 16:18
Keppt um hönnun á Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur Auglýst hefur verið samkeppni um hönnun nýbyggingar og lóðar fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Í tilkynningu frá Framvkæmdasýslu ríkisins segir að áætlað sé að byggingin verði um 4000 m², en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar. Byggingin mun rísa á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu í Reykjavík og munu göng undir Suðurgötu tengja bygginguna við Háskólatorg. 12.1.2012 15:40
Búist við mun meiri leysingum en síðast Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að vatnsveðrið sem búist er við að hefjist á höfuðborgarsvæðinu í kvöld og næstu daga verði mun meira en um síðastliðna helgi, sem mörgum þótti nú nóg um. Í tilkynningu frá tryggingafélaginu VÍS er haft eftir Einari og úrkoman gæti fram á laugardag numið 30 til 40 millimetrum og jafnvel meiru í efri byggðum. 12.1.2012 14:51
Bruggari á þriggja mánaða skilorð Þrjátíu og sex ára gamall karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa framleitt gambra og landa í september síðastliðnum. Í húsnæði sem hann hafði til leigu fundust ríflega 900 lítrar af gambra og 84 lítrar af landa. Áfengið fannst þegar lögreglan gerði leit í húsnæðinu. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi. Hann hefur ekki áður gerst brotlegur við lög. 12.1.2012 13:49
Styðja friðun svartfugla Fuglavernd styður eindregið niðurstöðu meirihluta svartfuglanefndar Umhverfisráðuneytisins, sem hefur lagt til að friða eigi fimm tegundir af svartfuglum. 12.1.2012 13:40
Óvenjumargir bensínlausir í borginni Óvenjumörg dæmi hafa komið upp að undanförnu í borginni þar sem menn verða bensínlausir á miðri leið. Lögregla bendir á að gerist þetta á stofnbrautum geti hætta beinlínis verið á ferðum, ekki síst í skammdeginu. 12.1.2012 13:06
Gylfi segir launamálin klúður frá upphafi Forseti ASÍ segir ákvarðanir stjórnvalda sem snúa að launum seðlabankastjóra og annarra háttsettra embættismanna vera klúður frá upphafi. Hann segir lögsókn seðlabankastjóra gagnvart seðlabankanum hafa mjög slæm áhrif á trúverðugleika bankans. 12.1.2012 12:06
Mörður hvetur Steinþór til að segja upp Mörður Árnason alþingismaður hvetur Steinþór Pálsson bankastjóra Landsbankans til að segja upp störfum. Tilefnið er umsögn bankaráðs Landsbankans við frumvarpi um kjararáð þar sem lagt er til að bankaráðið úrskurði um laun Landsbankastjóra en ekki kjararáð. Þetta er í samræmi við skoðun Steinþórs sem hann lét ljósa í Klinkinu á Vísi á dögunum en þar sagði Steinþór að laun sín væru ekki samkeppnishæf. Laun Steinþórs eru um þriðjungur af launum bankastjóra hinna bankanna, Arion og Íslandsbanka. 12.1.2012 11:38
Lífshættulegt fyrir kjúklinga að fara í sláturhús Um tvö þúsund kjúklingar lentu í lífsháska þegar þeir runnu út úr bíl sem var á leið með þá í sláturhús á Hellu í morgun. Um var að ræða kjúklinga frá kjúklingabúinu á Ásmundarstöðum. Kjúklingarnir voru í á annað hundrað kössum sem voru svo fluttir á bíl í sláturhúsið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli vildi ekki betur til en svo að hleri á bílnum opnaðist með þeim afleiðingum að kassarnir runnu út. Bílstjórinn áttaði sig hins vegar ekki á atvikinu fyrr en hann var kominn á staðinn. Fóru þá menn frá sláturhúsinu og frá hænsnabúinu til þess að bjarga málum. 12.1.2012 11:17
Umferð dróst saman um 5,3% Umferð hefur aldrei dregist meira saman á einu ári síðan mælingar Vegagerðarinnar á völdum stöðum hófust árið 2005. 12.1.2012 11:00
Skaðsemi púðanna rannsökuð í Evrópu Þúsundir íslenskra kvenna eru með sílíkonpúða í brjóstunum. Greinilegt er að aðgerðin nýtur mikilla vinsælda og virðast lýtalæknar almennt sammála um að fyllingarnar geti hjálpað konum við að öðlast sjálfstraust og líða betur með líkama sinn. 12.1.2012 10:30