Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Reynir ekki aðrar leiðir til að eignast Grímsstaði Halldór Jóhannsson, aðstoðarmaður kínverska fjárfestisins Nubo, segir hann hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með ákvörðun innanríkisráðherra. Hann fullyrðir að Nubo muni ekki leita annara leiða til að komast yfir Grímsstaði á Fjöllum. Halldór segir að þrátt fyrir vonbrigðin virði Nubo íslensk lög og íslenskan vilja í málinu. Ekki verði reynt að fara neina bakdyraleið til að eignast Grímsstaði á Fjöllum. 26.11.2011 13:26
Leikmunabíll fauk út af vegi „Jú, hérna voru þrjátíu metrar á sekúndu. Og leikmunabíll hjá okkur fauk út af veginum. En það slasaðist enginn og allir leikmunir eru heilir. Þetta gerðist bara í „slow-motion“,“ segir Snorri Þórisson hjá Pegasus. Tökur á bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni Game of Thrones eru hafnar í Skaftafelli við Hótel Freysnes en mikið óveður reið yfir Austurland á fimmtudagskvöld með fyrrgreindum afleiðingum. 26.11.2011 13:00
Kafarar komnir til Eyja Kafarar komnir til Eyja til að vinna að viðgerð á Herjólfi ásamt vélstjórum skipsins. Enn er óvíst með seinni ferð Herjólfs í dag, en eins og kunnugt er var ferð sem átti að fara í morgun felld niður vegna bilunar í stýrisbúnaði. Þeir farþegar sem eiga bókað far með skipinu hafa fengið senda tilkynningu og eru beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi RUV. 26.11.2011 11:35
Ólafur afhendir verðlaun vegna Forvarnardagsins Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhendir í dag, laugardaginn verðlaun og viðurkenningar í ratleik og myndbandasamkeppni Forvarnardagsins 2011. Athöfnin fer fram á Bessastöðum. Verðlaunahafar koma bæði frá grunnskólum og framhaldsskólum víða að af landinu, svo sem frá Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri og Reykjavík. Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu segir að meðal gesta verði foreldrar og fjölskyldur verðlaunahafa sem og fulltrúar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Ungmennafélagi Íslands, Skátahreyfingunni og öðrum aðstandendum forvarnardagsins. 26.11.2011 10:28
Ferð Herjólfs var felld niður Fyrsta ferð Herjólfs, sem átti að fara frá Vestmannaeyjum klukkan 8 í morgun, var felld niður vegna bilunar í stýrisbúnaði ferjunnar. Á heimasíðu Eimskipa kemur fram að unnið sé að viðgerð. Óvissa er með seinni ferð Herjólfs í dag og eru farþegar beðnir um að fylgjast með framvindu mála í fréttum, á heimasíðu Herjólfs eða í síma 481-2800. 26.11.2011 09:59
Náttúruelskandi ljóðskáld skárri kaupandi en íslenskir útrásarvíkingar Fréttir af synjun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra á umsókn kínverjans Huang Nubo um að fá að kaupa Grímsstaði á Fjöllum vekur athygli erlendis. Á meðal fjölmiðla sem hafa látið málið sig varða eru The Wall Street Journal, Financial Times og Shanghai Daily. 26.11.2011 09:40
Fréttaskýring: Samfylkingarfólk orðið langþreytt Hvaða áhrif hefur ákvörðun um Grímsstaði á Fjöllum á stjórnarsamstarfið? "Það er ekkert leyndarmál að fullt af fólki í flokknum er orðið pirrað,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra. Ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um að veita félagi í eigu kínverska fjárfestisins Huang Nubo ekki heimild til kaupa á Grímsstöðum á Fjöllum hefur valdið titringi innan Samfylkingarinnar. 26.11.2011 09:00
Skulda hóteli í Boston fimmtán þúsund dali Sextíu manna hópur starfsmanna Brekkubæjarskóla sem urðu af ferð til Boston þarf að greiða hóteli í borginni rúma 15 þúsund dollara, eða ríflega 1,7 milljónir króna, vegna afpöntunarinnar. 26.11.2011 09:00
Skólastjóraskipti í Grindavík: Harma „ósanngjarna“ umræðu Pálmi Ingólfsson hefur verið ráðinn skólastjóri við Grunnskóla Grindavíkur eftir að Páll Leó Jónsson hætti störfum á dögunum. 26.11.2011 06:00
Nýtist í aðildarviðræðum við ESB Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp sérfræðinga um stefnumörkun vegna banns á innflutningi á hráum dýraafurðum og lifandi dýrum. 26.11.2011 04:00
Hugrakkar konur viðurkenndar Fimm konur og einn aðgerðahópur hlutu viðurkenningu Stígamóta í ár. Viðurkenningin var veitt í gær, á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi. 26.11.2011 03:00
Lögreglan herðir eftirlit með ölvunarkakstri Lögreglan hefur nú hafið átak til að sporna við ölvunarakstri og í kvöld voru fjölmargir bílar stöðvaðir í því skyni. „Ástæðan er einföld - ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum annarra vímuefna er dauðans alvara,“ segir í tilkynningu frá lögreglu. 25.11.2011 23:30
Sóley, Guðrún Ebba og Stóra systir fengu viðurkenningar Stígamót útdeildu viðurkenningum ársins í dag á alþjóðlegum degi gegn kynferðisofbeldi. Á heimasíðu samtakanna segir að í ár hafi sjónum verið beint að „þeim hugrökku konum sem á ólíka vegu hafa fylgt réttlætiskennd sinni og rutt brautina fyrir raunverulegt kvenfrelsi.“ 25.11.2011 21:26
Skotárás í Bryggjuhverfi - Laus úr varðhaldi en samt í fangelsi Karl á þrítugsaldri, sem var handtekinn í tengslum við rannsókn á skotárás í síðustu viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. nóvember, er laus úr haldi lögreglu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að maðurinn sé þó áfram í fangelsi, því hann hefur hafið afplánun vegna annarra mála. "Karl á svipuðum aldri er hins vegar áfram í haldi lögreglu vegna skotárásarinnar en sá var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 2. desember,“ segir ennfremur. 25.11.2011 18:49
Tölvur lítið notaðar í kennslustofunni Tölvur eru aðeins notaðar í tíu prósent kennslustunda í grunnskólum og tækjabúnaði skólanna hefur hrakað á síðustu árum. Lektor á menntavísindasviði við Háskóla Íslands segir kreppuna hafa bitnað helst á kaupum á tækjabúnaði. 25.11.2011 18:30
Norsku lærin duga í hangikjötið Íslendingar búsettir í Noregi, sem hvorki vilja sleppa hangikjöti né sviðahausum, deyja ekki ráðalausir. Þeir einfaldlega reykja norsk lambalæri útí skógi og svíða norska kindahausa. Hangikjöt með uppstúf er maturinn sem Gunnar Karl Garðarsson frá Bíldudal býður gestum frá Íslandi. 25.11.2011 18:15
Mikill meirihluti á móti því að lögreglan beri skotvopn Um 70 prósent eru andvígir því að lögreglumenn beri skotvopn við almenn skyldustörf samkvæmt niðurstöðu könnunar á vegum MMR. 25.11.2011 16:17
Þingkosningar í Rússlandi: Hægt að kjósa í rússneska sendiráðinu Sunnudaginn þann 4. desember nk. verða haldnar kosningar til rússneska þingsins, Ríkisdúmunnar. Rússneskum ríkisborgurum, 18 ára og eldri, sem dvelja á landi tímabundið eða eru búsettir hér, býðst á þeim degi að taka þátt í atkvæðagreiðslu í ræðisskrifstofu sendiráðs Rússlands, Túngötu 24, 101 Reykjavík, frá kl. 8:00 til kl. 20:00 að íslenskum tíma. 25.11.2011 15:04
Færri einir í einkabíl - hjólareiðafólki fjölgar um helming Færri keyra einir til og frá vinnu og skóla í Reykjavík en áður eða 61% - og börnum sem ganga í skólann fjölgar ef marka má niðurstöður nýrrar ferðamátakönnunar sem Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar hefur gert. 25.11.2011 14:55
Vilja að nýr Landspítali verði forgangsverkefni Félags atvinnurekenda vill að uppbygging nýs Landspítala Háskólasjúkrahúss verði gert að forgangsverkefni samkvæmt yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér í dag. Þar er vitnað í skýrslu norska ráðgjafarfyrirtækisins Hospitalitet, en þar kemur fram að talið er að nýr spítali muni skila u.þ.b. 2,6 ma.kr. árlegum sparnaði í rekstri. 25.11.2011 14:24
Fundað um Nubo á ríkisstjórnarfundi Ríkisstjórnarfundur stendur nú yfir í stjórnarráðshúsinu en meðal málefna sem eru á dagskrá, samkvæmt heimildum fréttastofu, er umsókn Kínverjans Huangs Nubo um undaþágu frá lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna vegna fjárfestingar á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum. 25.11.2011 12:05
Hundur beit þingmann „Ég endaði á Læknavaktinni eftir að smáhundur réðist á mig í gærmorgun og beit í fótinn á mér,“ skrifar þingmaðurinn Lilja Mósesdóttir á Facebook-síðu sinni, en svo virðist sem þingmaðurinn hafi lent í óvæntri hundaárás í gær. 25.11.2011 10:38
Veturinn er kominn - og helgarspáin er nokkuð góð Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að veturinn er kominn, í það minnsta á höfuðborgarsvæðinu. Þannig náði myndatökumaður fréttastofu mynd af mæðginum á leiðinni í leikskólann í hlíðunum í morgun. 25.11.2011 10:13
Dæmdir fyrir stórþjófnað - sprengdu sér leið inn í verkfæraskúra Tveir karlmenn um og rétt undir þrítugt búsettir á Suðurnesjunum voru dæmdir í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag, fyrir stórfelldan þjófnað. 25.11.2011 09:26
Afturför ef Reykjavikurflugvöllur hverfur Stjórn Landsambands heilbrigðisstofnana segir í ályktun, að ef Reykjavíkurflugvöllur hverfi, valdi það mikilli afturför í bráðaþjónustu við þá landsmenn, sem þurfi að komast á Landsspítalann í sjúkraflugi. 25.11.2011 07:51
Verkfallinu hjá Hafrannsókn frestað Rúmlega átta vikna verkfalli undirmanna á skipum Hafrannsóknastofnunar var frestað á fundi samningamanna sjómanna og ríkisins hjá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi með undirritun rammasamkomulags, sem á að verða fullbúið fyrir 11. desember. 25.11.2011 07:42
Ökumaður tekinn réttindalaus og dópaður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ökumann úr umferð í nótt eftir að í ljós koma að hann var undir áhrifum fíkniefna. Hann reyndist líka réttindalaus, eftir að hafa áður verið sviftur réttindum fyrir fíkniefnaakstur. Auk þess sem bíllinn, sem hann hafði fengið lánaðan, var ótryggður. 25.11.2011 07:29
Mikil skjálftavirkni norður af Grímsey Mikil skjálftavirkni er nú norður af Grímsey. Þar varð skjálfti upp á 3,1 í gærdag, með upptök innan við tvo kílómetar norður af eynni. 25.11.2011 07:26
Þyrla sótti slasaðan sjómann í nótt Sjómaður um borð í íslenskum togara slasaðist við vinnu þar um borð laust fyrir miðnætti, þegar togarinn var staddur rúmlega 50 sjómílur suðvestur af Reykjanesi, og var óskað eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar sækti hann. 25.11.2011 07:24
Óveður gekk yfir austanvert landið Óveður gekk inn á austanvert landið seint í gærkvöldi með allt að 23 metra vindi á sekúndu og talsverðri sjókomu eða slyddu. 25.11.2011 07:21
Ofbeldið ekki refsivert í þriðjungi ríkja 603 milljónir kvenna búa í löndum þar sem heimilisofbeldi er ekki skilgreint sem glæpur samkvæmt lögum. Þetta kemur fram í skýrslu UN Women, stofnunar Sameinuðu þjóðanna sem vinnur í þágu kvenna og jafnréttis. Skýrslan nefnist Staða kvenna í heiminum: Leitin að réttlæti. Fjallað verður um skýrsluna á morgunverðarfundi íslensku landsnefndar UN Women í dag. 25.11.2011 06:00
Rauðu nefin fara í sölu í dag Sala á rauðum nefjum hefst í dag, en dagur rauða nefsins verður haldinn í fjórða sinn 9. desember. Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari heimsforeldra UNICEF, setti upp fyrsta rauða nefið í ár. Nefin eru nú þrjú, Skjóða, Skotta og Skreppur. Vigdís valdi nefið Skottu auk þess sem hún valdi þrjú nef til viðbótar fyrir barnabörn sín. 25.11.2011 04:00
Ólafur Ragnar í slæmum félagsskap Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fékk ekki jólakort frá breska forsætisráðherranum í fyrra. Í breska dagblaðinu Daily Mail segir að með því að senda þjóðarleiðtogum ekki jólakort sé ráðherrann að sýna hverjir úr þeirra hópi séu í ónáð. 25.11.2011 03:15
Vesturbæjarlaugin 50 ára Á morgun eru liðin 50 ár frá vígslu Vesturbæjarlaugarinnar. Hafliði Halldórsson hefur starfað sem forstöðumaður laugarinnar í tvö ár. Hann hefur verið að skoða blaðagreinar að undanförnu til þess að minnast þeirra tíma þegar verið var að vígja laugina. 24.11.2011 17:42
Stofnfjárhafar höfðu betur Hæstiréttur staðfesti í dag dóm héraðsdóms þess efnis að stofnfjáreigendum í Byr og Sparisjóði Norðlendinga beri ekki að endurgreiða lán sem þeir tóku hjá hjá Glitni á sínum tíma til þess að taka þátt í stofnfjáraukningu sparisjóðanna árið 2007. 24.11.2011 16:21
Sviptir greiðslum fyrir neysluhlé: „Hrein kjaraskerðing“ „Sveitarstjórn sem er vönd að virðingu sinni gerir ekki svona,“ segir Sóley Tómasdóttir, oddviti VG í borgarstjórn, en meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar samþykktu í borgaráði í morgun að svipta leikskólakennara svokölluðu neysluhléi, en kennarnir fá greitt fyrir að borða með börnunum í hádegishléinu. 24.11.2011 14:29
Barkaígræðsla ratar í virtasta vísindatímarit heims Grein um plastbarkaígræðslu sem íslenskur læknir tók þátt í hefur nú verið birt í einu virtasta vísindatímariti heims, the Lancet. Barkaþeganum, sem er nemandi við Háskóla Íslands, heilsast vel. 24.11.2011 12:24
Kapall brann yfir - rafmagnslaust á Akureyri í hálftíma Rafmagnslaust varð í þorpinu á Akureyri um klukkan hálf níu í gærkvöldi, og varði straumleysið í um 30 mínútur. Ástæðan var að 11 þúsund volta kapall brann í spennistöð við Urðargil. 24.11.2011 09:46
Dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir manndráp Redouane Naoui var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 24.11.2011 09:10
Hleyptu af byssunni í miðri eftirför Mennirnir sem eru í haldi grunaðir um skotárás um síðustu helgi skutu í átt að fórnarlambi sínu úr bíl á ferð í miðri eftirför. Þetta fullyrðir fórnarlambið, að því er fram kemur í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir mönnunum. 24.11.2011 09:00
Stór rækjubátur sigldi á 15 tonna línubát Minnstu munaði að alvarlegt slys yrði, þegar rækjubáturinn Siglunes, sem er á annað hundrað tonna stálbátur, sigldi á rúmlega sjö mílna hraða á línubátinn Jonna, norður af Siglufirði í gær. 24.11.2011 07:59
Dregið í Víkingalottóinu klukkan níu Stefnt er að því að dregið verði í Víkingalottóinu klukkan níu fyrir hádegi, eftir drætti var frestað í gærkvöldi vegna misræmis milli sölukerfa og kerfisstjórnunar finnska lottósins. Stóri vinningurinn er kominn í 2,6 milljarða króna þannig að margir bíða spenntir eftir drættinum. 24.11.2011 07:27
Eiður Smári tapaði - DV mátti fjalla um fjármálin „DV var sýknað í Hæstarétti af kröfum Eiðs Smára. Dómi undirréttar snúið,“ sagði Reynir Traustason fyrir stundu á samskiptavefnum Facebook. 24.11.2011 16:16
Leikskólakennarar sturlaðir af reiði Félag leikskólakennara mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Borgarráðs frá því í morgun að svipta leikskólakennara svokölluðu neysluhléi. Í yfirlýsingu frá félaginu segir að greiðslurnar falli ekki niður hjá neinni annarri starfstétt hvorki hjá leiðbeinendum sem eru innan raða Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Eflingar eða innan vébanda BHM og ekki hjá aðstoðarleikskólastjórum sem eru í Félagi stjórnenda leikskóla. 24.11.2011 15:55
Líklega olía á Drekasvæðinu Meiri líkur eru taldar vera á því að olíulindir finnist á Jan Mayen-hryggnum en áður. Þetta er niðurstaða Olíustofnunar Noregs sem hefur rannsakað sýni af svæðinu í samstarfi við Orkustofnun og Háskólann í Bergen síðustu mánuði. 24.11.2011 10:00