Innlent

Guðmundar- og Geirfinnsmálið - Öll umfjöllunin á einum stað

Guðmundar- og Geirfinnsmálið er eitt af stærstu sakamálum Íslandssögunnar og hefur verið í almennri umræðu reglulega síðustu 36 ár.

Nú eru komin fram ný gögn sem vakið hafa mikil viðbrögð í samfélaginu og það eru dagbækur Tryggva Rúnars Leifssonar sakbornings í málinu. Einn virtasti réttarsálfræðingur í heimi, Gísli Guðjónsson telur tilefni til að hefja rannsókna á málinu að nýju með tilliti til falskra játninga með tilkomu þessara dagbóka. Þær gefi góða heimild um hvernig meðferð sakborninga í málinu hafi verið háttað og nauðsynlegt sé að rannsaka málsmeðferðina og lögreglurannsóknina að nýju.

Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar, Vísis og Ísland í dag hafa fjallað ítarlega um málið nú í vikunni. Hér fyrir neðan er samantekt á umfjölluninni sem unnin var af þeim Helgu Arnardóttur og Jóni Grétari Gissurarsyni.

Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur.
SUNNUDAGUR 2. OKTÓBER

Ný gögn í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu kalla á rannsókn

Upplýsingar úr dagbókum Tryggva Rúnars birtast í fyrsta skipti opinberlega. Gísli Guðjónsson, einn fremsti réttarsálfræðingur í heimi, segir nauðsynlegt að rannsaka málið að nýju í ljósi dagbókanna með tilliti til falskra játninga.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.




MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER


Ákveður í vikunni hvort málið verði tekin upp

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ætla að ákveða hvort Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin til rannsóknar að nýju, fyrir vikulok.



Guðmundar og Geirfinnsmálið rifjað upp

Burðarsteinninn í umfjölluninni um málið, ítarlegur Ísland í dag þáttur Helgu Arnardóttur og Jóns Gissurarsonar.

Mynd úr dagbókum Tryggva.
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER

Vill aðstoða verði Geirfinnsmálið tekið upp

Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur segist reiðubúinn að aðstoða við rannsókn á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu verði það tekið upp aftur, þrátt fyrir að hann hafi starfað hjá rannsóknarlögreglunni á sama tíma og málið var í rannsókn. Mikilvægt sé að almenn sátt ríki um hans störf.



Hóf að rannsaka málið eftir andlát Sævars Ciesielskis

Helga Arnardóttir fréttamaður ræddi samantekt sína um Guðmundar- og Geirfinnsmálið í þættinum Í bítið á Bylgjunni. Helga mætti einnig í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og fór yfir málið.



Björgvin G. vill sannleiksnefnd um málið

Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram tillögu á Alþingi um að sérstök sannleiksnefnd verði skipuð til rannsóknar á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Hann segir fólk úr öllum flokkum styðja tillöguna og mikilvægt sé fyrir samfélagið að gera þessi mál upp.



Dóttir Tryggva um dagbækurnar

Tilviljun ein réði því að dagbækur Tryggva Rúnars komu fram í dagsljósið segir dóttir hans.



Erla Bolladóttir: Við vorum ranglega dæmd

Annar hluti ítarlegrar umfjöllunar Helgu Arnardóttur í Íslandi í dag um Guðmundar- og Geirfinnsmálið

Morgunblaðið 30. desember 1975.
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER

Gjörbreytt umhverfi málsmeðferða

Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands, ræddi það í Reykjavík síðdegis hvort hætt sé á að mál svipað Guðmundar- og Geirfinnsmálinu komi upp aftur. Hann segir reglur um meðferð mála nú með gjörólíkum hætti.





FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER

Ráðherra lætur skoða Guðmundar- og Geirfinnsmálið

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun tilkynna um stofnun starfshóps sem á að fara yfir Guðmundar- og Geirfinnsmálið á morgun. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið fyrr en í fyrramálið.



Áfangasigur segir dóttir Tryggva Rúnars

„Þetta er áfangasigur," segir Kristín Anna Tryggvadóttir dóttir Tryggva Rúnars Leifssonar eftir að innanríkisráðherra tilkynnti um skipun starfshóps sem kanna skal Guðmundar- og Geirfinnsmálin að nýju. Tryggvi var einn sakborninga í málinu og leggur Kristín áherslu á það að þetta sé hvorki endapunkturinn í málinu né byrjunin á því.



Erla Bolladóttir gleðst yfir stofnun starfshópsins

Erla Bolladóttir, einn sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segist glöð yfir því að búið sé að stofna starfshóp sem mun fara yfir rannsókn málsins. „En ég finn líka fyrir trega yfir því að Sævar og Tryggvi Rúnar skuli vera farnir og ekki upplifa þetta með okkur," segir Erla.

Frá blaðamannafundinum.
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER

Fjórir skipa starfshópinn

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur skipað fjögurra manna starfshóp til að fara yfir svonefnd Guðmundar- og Geirfinnsmál. Starfshópurinn skal skila ráðherra áfangaskýrslu fyrir lok apríl á næsta ári en þetta kom fram á blaðamannafundi sem ráðherra hélt í dag.



Slæmt ef samfélagið telur að réttarkerfið hafi brugðist

„Almenningur hefur látið sig Guðmundar- og Geirfinnsmálið varða. Þannig hef ég í vikunni fengið 1190 undirskriftir þar sem krafist er rannsóknar og endurupptöku þessara mála," sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra þegar að hann tilkynnti um stofnun sérstaks starfshóps sem mun rannsaka Guðmundar- og Geirfinnsmálin.



LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER

Dagbækur Tryggva studdu ákvörðunina

Þau sjónarmið hafa ítrekað komið fram að margt hafi farið svo alvarlega úrskeiðis við rannsókn svonefnds Guðmundar- og Geirfinnsmáls að það varði almannahag að rannsókn fari fram á sjálfri rannsókninni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×