Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dómurinn ekki bundinn við refsikröfur saksóknara "Framkvæmdin á að vera nokkuð augljós af löggjöfinni, fari svo að þingið ákveði að kalla saman Landsdóm,“ segir Ásmundur Helgason héraðsdómari, sem áður starfaði sem lögfræðingur á Alþingi. "Þingið þarf að kjósa sérstakan saksóknara, sem mun reka málið áfram. Þingið kýs líka nefnd 13.9.2010 05:00
Óflokkspólitískt mál "Ég er enn þá að fara yfir gögnin og geri ekki ráð fyrir að tjá mig um þetta fyrr en í ræðu í þinginu,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, inntur eftir viðbrögðum við skýrslu þingmannanefndar um rannsóknarskýrslu Alþingis. 13.9.2010 05:00
Gríðarlega gott gagn „Ég ætla ekki að úttala mig um skýrsluna fyrr en ég er í fyrsta lagi búinn að lesa hana,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sem var þó langt kominn með hana um miðjan dag í gær. „Ég er búinn að lesa síðan átta á laugardagskvöld. Ég ætla eins og aðrir að klára það, hlusta síðan á framsögurnar og taka þátt í umræðum á Alþingi. Mér finnst það rétti vettvangurinn.“ 13.9.2010 04:00
Lárus var of tengdur klíku Jóns Ásgeirs Lárus Welding tók sem forstjóri Glitnis gjarnan ákvarðanir með hagsmuni stærstu hluthafa bankans í huga, frekar en almennra hluthafa. Þannig var honum mjög áfram um að veita félögum á borð við Baug, FL Group og Fons óeðlilega há og mörg lán, vegna óþægilega náinna tengsla hans við 13.9.2010 04:00
GPS-tæki í strætó Endurbætur á upplýsingakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu standa nú yfir og er grunnbúnaður nú þegar kominn í um fjörutíu bifreiðar. Brátt munu allir vagnar verða útbúnir GPS-tæki sem sendir upplýsingar um staðsetningu vagnsins, hraða og akstursstefnu til stjórnstöðvar. 13.9.2010 03:15
Auglýsingaherferð vestanhafs Bandaríska verslunarkeðjan Whole Food Market setur íslenskt lambakjöt á oddinn í markaðsátaki sem hleypt verður af stokkunum nú í haust. Átakið ber yfirskriftina „Einfaldlega bragðbesta lambakjöt í heimi“. 13.9.2010 03:15
Gangnamaður fannst óhultur Gangnamaður sem björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu leituðu í allan gærdag fannst um klukkan tíu í gær, heill á húfi 13.9.2010 00:00
Meinti kynþáttahatarinn áður handtekinn af sérsveit lögreglunnar Karlmaðurinn sem hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna árásar á heimili kúbverskra feðga um helgina heitir Jón Hilmar Hallgrímsson, oft kallaður Jón stóri. 13.9.2010 19:13
Kanna samhengi milli bólusetningar við svínaflensu og drómasýki Landlæknisembættið kallar eftir upplýsingum frá læknum til að kanna hvort samhengi sé á milli bólusetningar við svínaflensu og drómasýki. 150 þúsund Íslendingar hafa verið bólusettir við inflúensunni. 12.9.2010 18:50
Stúlkan komin fram Arna Víf Hlynsdóttir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir er fundin. Ekki hafði spurst til hennar frá því á fimmtudag. Móðir hennar biðlaði til almennings í fréttum Stöðvar 2 í gær og bað fólk um að hafa augnun opin og hjálpa þannig til við að finna Örnu. 12.9.2010 20:02
Atli sat hjá Afstaða Atla Gíslasonar, þingmanns Vinstri grænna, varð til þess að ekki náðist meirihluti innan uppgjörsnefndar Alþingis um að rannsaka á ný einkavæðingu ríkisbankanna. Atli sat hjá við afgreiðslu málsins. 12.9.2010 20:00
Leita gangnamanns Björgunarsveitir úr Skagafirði og Húnavatnssýslu leita nú gangnamanns sem saknað hefur verið við Hrossafell síðan í morgun. Maðurinn var við leitir þegar hann missti frá sér hestinn þannig að hann þurfti að fara á eftir honum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. 12.9.2010 19:32
Feðgar flúðu land eftir ofsóknir Tveir karlmenn eru í haldi lögreglu fyrir að hóta feðgum lífláti. Feðgarnir sem eru af kúberskum uppruna eru íslenskir ríkisborgarar og hafa búið Íslandi í meira en áratug. Þeir flúðu land í dag og fylgdi lögreglumaður þeim út á flugvöll. Greint var frá málinu í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 12.9.2010 19:09
Útrás Mannvits skapar störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga Stærsta verkfræðistofa landsins er í hitaveituútrás í Ungverjalandi og hefur með því skapað trygg störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga, en atvinnuleysi í þeirri stétt tífaldaðist við bankahrunið. Íslendingarnir eru að reisa stærstu umhverfisvænu hitaveitu Ungverjalands. 12.9.2010 19:05
Forkastanlegt að draga ráðherrana fyrir landsdóm Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi þingmaður og varaformaður Samfylkingarinnar, segir hugmyndir um að stefna fjórum fyrrverandi ráðherrum fráleitar og málsmeðferðin sé forkastanlegt. Þingmenn sem þetta vilja viti ekki hvað þeir gera. 12.9.2010 18:04
Þinglokum líklega frestað um nokkra daga Alþingi kemur saman fyrir hádegi á morgun. Aðeins eitt mál er á dagskrá en það er skýrsla þingmannanefndar sem undanfarna mánuði hefur fjallað um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og birt var opinberlega í gær. Þinglokum verður líklega frestað um nokkra daga. 12.9.2010 17:41
Arna ófundin Arna Víf Hlynsdóttir sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir er enn ófundin. Arna er fædd 1995. Hún er 157 sentímetrar að hæð grannvaxin, með græn augu og ljóst hár. Arna var klædd í ljósar gallabuxur og ljósa peysu þegar hún fór að heiman þann 9. september síðastliðinn. 12.9.2010 17:03
Áfram siglt til Þorlákshafnar Nú er orðið ljóst að dýpkun Landeyjahafnar muni taka lengri tíma en upphaflega var ætlað og af þeim sökum mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar næstu daga. Þetta kemur fram á heimasíðu Eimskips sem rekur Herjólf. 12.9.2010 15:47
Eldur í vörubíl við Norðlingaskóla Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að Norðingaskóla í Norðlingaholti á þriðja tímanum í dag eftir að tilkynnt var um eld í vörubíl við skólann. Svo virðist sem að kveikt hafi verið í rusli og öðru lauslegu sem staflað var fyrir framan vörubílinn. Að lokum barst eldurinn í bílinn en það tók slökkviliðismenn skamma stund að slökkva eldinn. vörubílinn er talsvert skemmdur. 12.9.2010 15:42
Meints barnaníðings enn leitað Karlmaður, sem grunaður er um að hafa sýnt börnum ósæmilega kynferðislega hegðun í Laugarneshverfi í Reykjavík síðastliðinn föstudag, er enn ófundinn. Málið er í fullri vinnslu, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá varðstjóra. Ekki er vitað hver maðurinn er en börnin sem eru á grunnskólaaldri telja að hann sé milli fimmtugs og sjötugs. Maðurinn þuklaði á einu þeirra og sýndi öðrum börnum kynferðislega hegðun. 12.9.2010 15:27
Ráðherrar eins og trillukarlar „Á stundum hefur mér fundist að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands séu eins og 12 trillukarlar sem hittast í kaffi tvisvar í viku, bera saman aflabrögð og horfur, standa saman gegn utanaðkomandi áreiti eða ógnunum en eru jafnframt í samkeppni innbyrðis um aflanna," segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi umhverfisráðherra. 12.9.2010 15:03
Samfylkingin gerði engar athugasemdir 2007 Sturla Böðvarsson, fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis, segir að þegar Samfylkingin myndaði ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum árið 2007 hafi ráðherrar flokksins ekki gert neinar athugasemdir gert við stöðu mála hér á landi og þess í stað talið að efnahagsstaða landsins væri sterk og að bankakerfið myndi rétta úr kútunum. Að öðrum kosti hefði stjórnin brugðist strax hart við. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi Sturlu til þingmannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 12.9.2010 14:45
Stórefast um hæfi stjórnmálamanna til að dæma vinnufélaga sína Skýrsla þingmannanefndarinnar er of lituð af pólitík og stjórnmálamenn eru ekki sérstaklega vel til þess fallnir að rannsaka sakamál né dæma í þeim. Þetta segir doktor í sagnfræði. 12.9.2010 13:15
Fyrsta haustlægðin Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir að lægðin sem nú fari vaxandi á sunnanverðu Grænlandshafi hafi öll einkenni haustlægðar. Skil hennar með tilheyrandi rigningu fer yfir landið í dag. 12.9.2010 12:55
Framhaldið í höndum Alþingis „Ég hef áður sagt að ég muni ekkert gera sem geti truflað störf þingsins í þessu mikilvæga máli. Sú yfirlýsing stendur og því mun ég ekki tjá mig um málið opinberlega fyrr en þingið hefur lokið afgreiðslu málsins," segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi viðskiptaráðherra, í yfirlýsingu. Hann segir málið nú í höndum Alþingis. 12.9.2010 12:40
Segir Geir þegar hafa axlað ábyrgð Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, segir að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sé þegar búinn að axla pólitíska ábyrgð á hruninu og því sé engin þörf á því draga hann né aðra fyrrverandi ráðherra fyrir landsdóm. 12.9.2010 12:00
Geir Haarde: Ég er ekki hræddur „Niðurstaða meirihluta þingmannanefndar, sem fjallað hefur um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, um ákærur á hendur fyrrverandi ráðherrum, veldur mér miklum vonbrigðum. Ég tel að meirihlutinn hafi komist að rangri niðurstöðu,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í yfirlýsingu sem hann fjölmiðlum skömmu fyrir klukkan 12. „Komi til þess að Alþingi samþykkti tillögu um að stefna mér fyrir landsdóm verður það þungbær reynsla en sá sem hefur hreinan skjöld er ekki hræddur við að fá úrlausn sinna mála fyrir óháðum og óvilhöllum dómstóli eins og landsdómi er ætlað að vera.“ 12.9.2010 11:54
Ráðherrarnir gátu ekki komið í veg fyrir hrunið Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir landsdóm leifar af 19. aldar réttarfari og sé þannig úreltur. Hann segir að eftir árið 2006 hafi ekki verið hægt að bjarga bönkunum og því eigi ekki að ákæra fyrrverandi ráðherra fyrir að koma ekki í veg fyrir bankahrunið vegna aðgerðarleysis árið 2008. 12.9.2010 11:41
Björn og Guðlaugur svöruðu ekki þingmannanefndinni Hvorki Björn Bjarnason né Guðlaugur Þór Þórðarson sáu ástæðu til að svara bréfum þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu Alþingis. Allir ráðherrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar fengu send bréf frá nefndinni um miðjan maí þar sem ráðherrunum fyrrverandi var gefinn kostur á senda nefndinni athugasemdir, upplýsingar eða svör við niðurstöðum skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 12.9.2010 11:04
Björgvin: Ég er ekki fullkominn Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, hafi setið fjölmarga fundi um um málefni fjármálamarkaðar sem hann hafi ekki verið boðaður á. Björgvin segir að Ingibjörg hefði átt að upplýsa hann um stöðu mála sem rædd hafi verið á umræddum fundum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi Björgvins til þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Björgvin segist taka ásakanir um vanrækslu mjög alvarlega. 12.9.2010 10:49
Geir Haarde: Mér var vísvitandi sagt ósatt „Ég hef varið mörgum árum í störf á vettvangi stjórnmála og kynnst þar mörgu fólki. En ég hef ekki átt því að venjast að mér sé vísvitandi sagt ósatt um mikilvæg mál hvað þá að málsmetandi ábyrgðarmenn stórra fyrirtækja geri sig seka um slíkt gagnvart forsætisráðherra,“ segir Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í bréfi til þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. „Slíku hafði ég ekki kynnt fyrr en í aðdraganda bankahrunsins og gerði mér ekki grein fyrir því fyrr en eftir á. Erfitt er að þurfa að sætta sig við slíka framkomu,“ segir Geir. 12.9.2010 10:21
Lýst eftir 15 ára stúlku Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Örnu Víf Hlynsdóttur en hún hefur verið týnd síðan á fimmtudag. Móðir hennar biðlaði til almennings í fréttum Stöðvar 2 í gær og bað fólk um að hafa augnun opin og hjálpa þannig til við að finna Örnu. 12.9.2010 09:37
Tveir fluttir á slysadeild eftir bílveltu Karl og kona á þrítugsaldri voru flutt á slysadeild Landspítalans eftir að bíll valt í Biskupstungum á Suðurlandi klukkan rúmlega hálf fimm nótt. Þrennt var í bílnum en fólkið sem var flutt til Reykjavíkur var talið beinbrotið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi eru tildrög slyssins óljós. 12.9.2010 09:09
Bjarni: Tillaga meirihlutans ótraustvekjandi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að tillaga meirihluta þingmannanefndar varðandi ráðherraábyrgð sé ekki trausvekjandi. Meirihlutinn vill að fjórir fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm vegna refsiverðrar háttsemi. 11.9.2010 19:01
Tvöfaldur næst í lottóinu Fyrsti vinningur í lottóinu gekk ekki út í kvöld og verður potturinn því tvöfaldur næst. Einn var með fjórar tölur réttar auk bónustölunnar og fær hver um sig tæpar 210 þúsund krónur. 11.9.2010 19:29
Gangast ekki við ábyrgð Þeir ráðherrar sem eru sakaðir um að hafa sýnt vanrækslu í starfi í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hafa hingað til ekki viljað gangast við ábyrgð. Erfitt getur orðið fyrir landsdóm að sakfella í málinu þar sem refsiákvæði eru óljós. 11.9.2010 19:17
Steingrímur: Nefndin vann mikið og vandað starf Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, segir að það hafi hafi verið óskandi að þingmannanefndin hefði komist að sameiginlegri niðurstöðu. Meirihluti nefndarinnar vill að fjórir fyrrverandi ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm vegna refsiverðrar háttsemi. 11.9.2010 18:53
Líðan eftir atvikum góð Líðan mannsins sem brenndist eftir að vatn úr djúpsteikingarpotti skvettist á hann á skyndibitastaðnum KFC er eftir atvikum góð, að sögn vakthafandi læknis á Lýtalækningadeild Landspítalans. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn, sem er rúmlega tvítugur Ungverji og starfaði á KFC, þarf lýtaaðgerð. Líklegt er að hann dvelji á spítala í að minnsta kosti tvær vikur til viðbótar, en hann brenndist illa á höndum og brjósti. 11.9.2010 18:40
Merkilegar tillögur Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að skýrsla þingmannanefndarinnar sem birt var í dag afar merkileg. Að hans mati er um umbótatillögur að ræða. 11.9.2010 18:30
Bilun í háspennubúnaði olli skammhlaupi „Varnarbúnaðuar brást við með eðlilegum hætti og aftengdi álver Norðuráls frá raforkukerfinu þegar bilun varð í háspennubúnaði álverssins fimmtudaginn 9. september,“ segir í tilkynningu frá Landsneti vegna bilunar sem olli skammhlaupi um mest allt land. Landsnet hefur að því er fram kemur í tilkynningunni þegar gert ráðstafanir til að reyna að koma í veg fyrir að slíkar truflanir valdi almennum notendum vandræðum í framtíðinni. 11.9.2010 18:05
Ferðamenn fari gætilega umhverfis Eyjafjallajökul Veðurstofa Íslands spáir mikilli rigningu á Eyjafjallajökli á morgun. Spáin hljóðar uppá að rigni frá klukkan 9 í fyrramálið og alveg fram til klukkan 17. Á tímabilinu milli klukkan 11 og 15 er spáð allt að 10 millimetra úrkomu á klukkustund. Reiknað er með að skilin fari yfir jökulinn á tímabilinu milli klukkan 10 og 12 en þá má reikna með að vindhraði verði allt að 20 metrar á sekúndu á fjallinu og að úrkoma verði áköfust þegar skilin fara yfir. 11.9.2010 18:00
Geir og Ingibjörg útilokuðu Björgvin Fulltrúar Samfylkingarinnar í þingmannanefndinni sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis fallast ekki á rökstuðning og niðurstöður meirihluta nefndarinnar sem vill að Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, verði dreginn fyrir landsdóm. Þeir segja að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hafi útilokað Björgvin frá ákvarðunum er vörðuðu ráðuneyti hans. 11.9.2010 17:48
Brutu af ásetningi eða sýndu stórkostlegt hirðuleysi Geir H. Haarde, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Árni Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson brutu á tímabilinu frá febrúar 2008 og fram í októberbyrjun sama ár af ásetningi eða stórkostlegu hirðuleysi gegn lögum um ráðherraábyrgð. Þetta er mat fulltrúar Framsóknarflokks, VG og Hreyfingarinnar í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Fulltrúar Samfylkingarinnar eru sammála meirihluta nefndarinnar nema þegar kemur að Björgvini. 11.9.2010 17:26
Skýrslunni útbýtt á Alþingi Skýrslu þingmannanefndar sem skipuð var til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar hefur verið útbýtt á Alþingi. Hún er aðgengileg á vef Alþingis. Þá hefur verið útbýtt niðurstöðum þingmannanefndar um ábyrgð ráðherra samkvæmt ráðherraábyrgðarlögum. Umræður um skýrslu þingmannanefndarinnar munu hefjast í þinginu næstkomandi mánudag klukkan 10:30. Ræðutími þingmanna verður rýmri en þingsköp ákveða. 11.9.2010 17:13
Fjórir ráðherrar verði dregnir fyrir landsdóm Þingmannanefnd undir forystu Atla Gíslasonar sem fór yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis klofnaði í afstöðu sinni til þess hvort og þá hvaða fyrrverandi ráðherra eigi að draga fyrir landsdóm. Fimm nefndarmenn af níu vilja að fjórir ráðherrar verði kærðir fyrir landsdóm. 11.9.2010 17:00