Innlent

Tveir fluttir á slysadeild eftir bílveltu

Karl og kona á þrítugsaldri voru flutt á slysadeild Landspítalans eftir að bíll valt í Biskupstungum á Suðurlandi klukkan rúmlega hálf fimm nótt. Þrennt var í bílnum en fólkið sem var flutt til Reykjavíkur var talið beinbrotið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi eru tildrög slyssins óljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×