Lengsta ferðasumarið á Vestfjörðum 17. september 2010 18:45 Hjónin Hafsteinn og Kiddý eru búin að vera byggja upp sjóferðir sínar um Hornstrandir og Djúp.
Ferðaþjónustan á Vestfjörðum er að upplifa lengsta ferðamannasumarið til þessa. Erlendir ferðahópar eru enn að mæta í Hornstrandasiglingar, sem venjulega hafa hætt um miðjan ágústmánuð. Hjónin Hafsteinn og Kiddý eru búin að vera byggja upp sjóferðir sínar um Hornstrandir og Djúp í tuttugu ár og komin með þrjá báta sem taka samtals um 120 farþega. Spurð um hvernig sumarið hafi verið svarar Guðrún Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Kiddý, að það hafi gengið ljómandi vel. Veðrið hafi verið yndislegt þó að það hafi ekki byrjað vel. En sumarið er sko alls ekki búið. Þau voru í morgun að gera tvo báta klára enda 65 manna hópur norskra ferðamanna á leið niður á bryggju. Þetta eru arkitektanemar og kennarar þeirra sem ætla að sigla út í eyna Vigur í Ísafjarðardjúpi og dvelja þar dagsstund við að teikna upp gömlu bæjarhúsin. Þau Hafsteinn og Kiddý hafa ekki átt því að venjast að fá stóra hópa erlendra ferðamanna um þetta leyti árs. Hafsteinn Ingólfsson segir að þetta sé langlengsta sumar frá því þau hófu rekstur. Meira að segja eigi eftir að koma eitt skemmtiferðaskip eftir helgi og þau fari með farþega af því í friðlandið á Hornströndum; til Hesteyrar í Jökulfjörðum. Norsku arkitektanemarnir eru búnir að dvelja á Ísafirði síðustu fjóra daga og hafa sett svip sinn á bæinn. Kiddý segir þá hafa farið víðsvegar um bæinn með blokkirnar sínar að teikna upp hús. Þetta sé innspýting og svakalega gott að fá hóp slíka hópa.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Erlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira