Furðar sig á vinnubrögðum 18. september 2010 05:00 Ross Beaty, kanadískur eigandi Magma Energy og Ásgeir Margeirsson, framkvæmdastjóri Magma á Íslandi. Ásgeir segist fagna því að endanleg niðurstaða varðandi lögmæti kaupa Magma á HS Orku sé komin fram.Fréttablaðið/GVA
Fréttaskýring Heldur samningurinn um kaup Magma á HS Orku? Lögskýringarleið sú sem sögð er sýna fram á að kaup Magma Energy í Svíþjóð á HS Orku kunni að hafa verið óheimil á ekki við samkvæmt því sem segir í minnisblaði lögfræðings iðnaðarráðuneytisins sem lagt var fyrir ráðherra í gær. Þrjár af fjórum lagaskýringarleiðum sem dregnar eru upp í skýrslu nefndar um orku- og auðlindamál um kaup Magma á HS Orku benda til lögmætis kaupanna. Skýrsla nefndarinnar var lögð fyrir ríkisstjórn í gær. „Í skýrslunni kemur meðal annars fram að skoðun nefndarinnar á þeim samningum sem hún fékk aðgang að leiddi ekki í ljós neina augljósa annmarka. Frá lagalegum sjónarhóli sé ekki tilefni til að gera athugasemdir við samningana,“ segir í tilkynningu. Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, fagnar því að nefndin hafi með þessu staðfest þá niðurstöðu sem nefnd hennar hafi áður komist að. Um leið kveðst hún undrast vinnubrögð Magmanefndarinnar. „Nefndin fékk gögn frá okkur en hafði aldrei fyrir því að tala við okkur að eigin frumkvæði eða leggja fyrir okkur neinar vangaveltur,“ segir hún og undrast að hafa ekki fengið tækifæri til að sjá skýrsluna og gera athugsemdir áður en hún var gerð opinber í gær. „Þetta tel ég vera afar gagnrýnivert.“ Unnur segir að í skýrslu Magmanefndarinnar sé ekki horft til þess að nefnd um erlenda fjárfestingu sé stjórnsýslunefnd og hefði því ekki getað vísað málum til dómstóla líkt og talið sé í skýrslunni að hún hefði átt að gera. Þá hafi nefnd um erlenda fjárfestingu, þrátt fyrir ítarlega leit og gagnaöflun, ekki getað sýnt fram á að Magma Sweden væri ekki raunverulegt fyrirtæki. „Fyrirtækið er með fullt af peningum og bankareikninga og ætlar sér kannski að fjárfesta í fleiri löndum en Íslandi,“ segir Unnur og bætir við að nefnd hennar hafi meira að segja fengið staðfest að gjaldeyrisyfirfærslur vegna kaupanna á HS Orku hafi allar verið á vegum Magma Sweden. Eins sé fyrirtækjaformið algengt. „Ég held meira að segja að Samherji eigi svona fyrirtæki. Það rekur útgerðina þeirra í Þýskalandi.“ Heimildir blaðsins herma að innan Magmanefndarinnar hafi togast á ólík sjónarmið um að hvaða niðurstöðu mætti komast. Því hafi í raun verið málamiðlun að setja upp ólíkar leiðir í lögskýringu og segja sem svo að ekki yrði skorið úr álitamálum nema fyrir dómi. Lögmenn sem rætt hefur verið við telja ólíklegt að sú eina lögskýringarleið af fjórum sem sýni ólögmæti kaupa Magma myndi verða tekin gild fyrir dómi. Til þess þyrfti bæði að falla frá hefðbundnum lögskýringarsjónarmiðum og færa sönnur á að dótturfyrirtæki Magma í Svíþjóð væri einhvers konar gervifyrirtæki. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fleiri fréttir „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Sjá meira