Innlent

Mikið um sjúkraflutninga í nótt

Valur Grettisson skrifar

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu snúast í nótt en alls var slökkviliðið kallað sextán sinnum út til sjúkraflutninga. Þar af voru sex slasaðir færðir á spítala með forgangsflutningum.

Að sögn varðstjóra slökkviliðsins sinnir slökkviliðið um 10 til 25 sjúkraflutningum á nóttu. Enginn þeirra sem var fluttur á spítala var illa slasaður.

Þá var slökkviliðið kallað út í nótt vegna olíuleka á Snorrabrautinni. Þar hafði orðið árekstur og olía lak úr öðru bílnum. Hreinsunarstarfið tók nokkurn tíma en er lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×