Innlent

Synjun ráðuneytis á lambakjötsinnflutningi ólögmæt

Umboðsmaður Alþingis segir að synjanir landbúnaðarráðherra á umsókn um að hefja innflutning á lambakjöti frá Nýja-Sjálandi hafi ekki verið í samræmi við lög.

Forsaga málsins er sú að fyrirtæki sótti tvívegis um leyfi til að flytja inn lambakjöt en ráðuneytið synjaði beiðninni tvívegis með vísan í lög um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og með vísan til reglugerðar um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins. Forsvarsmenn fyrirtækisins sættust ekki á úrskurð ráðuneytisins og kvörtuðu því til umboðsmanns.

Róbert Spanó, settur umboðsmaður í málinu, beinir því þeim tilmælum til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að það taki mál fyrirtækisins til endurskoðunar, komi fram beiðni þess efnis frá félaginu.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×