Fékk nýtt hjarta í Svíþjóð Erla Hlynsdóttir skrifar 17. september 2010 15:56 Pálfríður Sigurðardóttir er laus af gjörgæslunni
Pálfríður Sigurðardóttir greindist með veiru í hjarta fyrir tíu árum, þá aðeins 29 ára gömul. Hún fékk nýtt hjarta á sjúkrahúsi í Svíþjóð fyrir örfáum vikum eftir að hafa glímt við erfið veikindi á undanförnum mánuðum. „Ég er aðeins byrjuð að labba aftur. Þetta er allt í rétta átt. Það koma samt dagar þar sem heilsan er upp og niður," segir hún.Engin lækning fannst Pálfríður þurfti að hætta að vinna þegar hún greindist með veiruna þar sem hjarta hennar stækkaði mikið og afköst þess minnkuðu. Pálfríður var þá einstæð móðir með tæplega árs gamlan dreng og hefur róðurinn verið þungur fjárhagslega. Engin lækning fannst við sýkingunni og undir það síðasta var blóðflæði frá hjartanu orðið aðeins um tíu prósent af því sem eðlilegt er. Pálfríður var orðin algjörlega ósjálfbjarga og dvaldist á sjúkrahúsi hér á landi svo mánuðum skipti áður en hún fékk pláss á sjúkrahúsi í Svíþjóð þar sem hún fékk nýtt hjarta.Á ungan son Systir Pálfríðar dvaldist hjá henni eftir aðgerðina en hún var í yfir þrjár vikur á gjörgæslu. Pálfríður losnaði af gjörgæslunni í þessari viku. Hún er nú ein í Svíþjóð en heyrir daglega í fjölskyldunni sinni. „Ég er með Skype og MSN," segir hún. Þannig nær hún að halda góðu sambandi við son sinn, sem nú er á ellefta ári og dvelur hjá ömmu sinni. Eftir aðgerðina þyngdist Pálfríður um 13 kíló vegna vökvasöfnunar og hafði það enn frekari áhrif á heilsu hennar. Hún hefur þó þegar náð aftur af sér níu kílóum. Aðgerðin sjálf gekk vel en hægri hluti gjafahjartans virkar ekki sem skyldi. Því er ljóst að hún þarf að fá gangráð til að tryggja að nýja hjartað starfi eðlilega. Pálfríður kemur því til með að dvelja í mánuð til viðbótar í Svíþjóð, hið minnsta. Þá tekur við árs endurhæfing á Íslandi.Skólafélagarnir standa fyrir söfnun Pálfríður er frá Stafholtsey í Borgarfirði og vegna erfiðrar stöðu hennar hafa gömlu skólafélagar hennar frá Kleppjárnsreykjum sett af stað söfnun. Söfnunarfénu er ætlað að standa straum af kostnaði Pálfríðar vegna veikinda hennar og mögulega til að greiða fyrir ferð sonar hennar til Svíþjóðar.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Nei-hreyfingin kvíslast í nokkrar áttir Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Sjá meira