Framsóknarmenn verjast ásökunum 18. september 2010 04:00 Jón Sigurðsson
Það er rangt að breytingar á útlánareglum Íbúðalánasjóðs árið 2004 hafi ráðið úrslitum um þenslu í hagkerfinu. Bankarnir bera þar höfuðábyrgð. Þetta segja þrír fyrrum ráðherrar Framsóknarflokksins - hver í sínu lagi - í bréfum til þingmannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Í skýrslunni segir að breytingarnar, sem gerðar voru í framhaldi af kosningaloforði framsóknarmanna 2003, hafi verið þensluhvetjandi og með stærri hagstjórnarmistökum. Jón Sigurðsson, Jónína Bjartmarz og Valgerður Sverrisdóttir mótmæla þessu. Valgerður segir að þegar lögum um sjóðinn hafi verið breytt hafi bankarnir þegar lánað um 180 milljarða króna í nýjum fasteignalánum. Bætir hún við að innkoma bankanna á markaðinn hafi fyrst og fremst haft þann tilgang að „reyna að gera út af við Íbúðalánasjóð". Jónína bendir á að á átján mánaða tímabili hafi bankarnir veitt rúma 300 milljarða til íbúðalána. Þau hafi ekki verið einskorðuð við kaup eða byggingu íbúðahúsnæðis heldur „fóru að stórum hluta í neyslu og aðrar fjárfestingar". „Viðskiptabankarnir réðu algerlega úrslitum um framvindu mála á íbúðalánamarkaði," segir Jón.- bþs
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira