Innlent

Piltur tekinn á ofsahraða

Ungur maður var stöðvaður af lögreglunni á Akureyri fyrir að aka á 107 kílómetra hraða þar sem hámarkshraðinn var 50 kílómetrar.

Pilturinn var færður á lögreglustöðina á Akureyri þar sem hann var sviptur ökuleyfi fyrir ofsahraðann.

Pilturinn reyndist vera nýbúinn að fá ökuréttindi. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á Akureyri var hann búinn að vera með ökuskírteini í um þrjá mánuði.

Nú má hann búast við því að vera sviptur ökuréttindum að minnsta kosti jafn lengi og hann hefur verið með skírteini auk þess sem honum er gert að greiða 90 þúsund krónur í sekt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×