Innlent

Þrettán ára drengur gekk berserksgang

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Þrettán ára drengur gekk berserksgang í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi í morgun og var lögregla kölluð til. Drengurinn réðist bæði að samnemendum sínum og starfsfólki skólans. Hann braut einnig innanstokksmuni og rúðu en engin slys urðu á fólki.

Drengurinn hljóp á brott eftir að skólayfirvöld höfðu samband við lögreglu en lögreglumenn náðu að hlaupa drenginn uppi. Hann var færður á lögreglustöð þar sem félagsráðgjafi var kallaður til, eins og lög gera ráð fyrir, sem og forráðamenn. Drengurinn kemur til með að fá viðeigandi aðstoð.

Ekki náðist tal af skólastjóra Valhúsaskóla við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×