Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Forsætisráðherra á leið til Færeyja Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fer í dag í opinbera heimsókn til Færeyja. 6.9.2010 17:11
Herjólfur siglir á morgun Gert er ráð fyrir að Herjólfur sigli frá Vestmannaeyjum til Landeyjarhafnar klukkan sex í fyrramálið og aftur til baka um einni og hálfri klukkustund seinna. 6.9.2010 19:00
Launakostnaður lækkaður um milljarð Launakostnaður á Landspítala hefur dregist saman um 973 milljónir króna á fyrstu átta mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, í mánudagspistli sínum. 6.9.2010 16:58
Stálu loftgæðamælistöð og skildu hana eftir á golfvelli Loftgæðamælistöð í Vík í Mýrdal, sem Umhverfisstofnun hefur rekið til að fylgjast með öskufalli og síðan öskufoki vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, var stolið um helgina. Stöðin, sem vegur um 70 kíló, fannst út á golfvelli bæjarins í um það bil kílómeters fjarlægð þar sem hún stóð. 6.9.2010 16:34
Ekið á tíu ára dreng Ekið var á tíu ára gamlan dreng á Hvaleyraholtinu í Hafnarfirði í dag. Drengurinn hlaut skurð á höfði og eymsl í vinstri fæti en slapp við beinbrot samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 6.9.2010 16:08
Sjálfstæðismenn: Stjórnarráðsfrumvarpið vanbúið Sjálfstæðismenn í allsherjarnefnd, þau Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal, hafa lagt fram minnihlutaálit varðandi frumvarp forsætisráðherra til breytinga á lögum um stjórnarráðið. Í álitinu er sett fram hörð gagnrýni á undirbúning og framsetningu frumvarpsins og það sagt fullkomlega vanbúið til afgreiðslu á Alþingi. 6.9.2010 15:35
Krossgötu-detox sýknað Eignarhaldsfélagið K 107 ehf. var sýknað af endurgjaldskröfu konu í Héraðsdómi Reykjavíkur í á föstudaginn. Félagi á og rekur Krossgötu-detox sem gerir út sína starfsemi á Hótel Glym. 6.9.2010 14:46
Ný siglingaáætlun unnin fyrir Herjólf Siglingastofnun Íslands vinnur nú að nýju útreikningum um við hvaða flóðhæð skal miða fyrir siglingar Herjólfs í Landeyjahöfn. Guðmundur Petersen, rekstarstjóri Herjólfs, segist bíða eftir niðurstöðunni og er hennar líklega að vænta síðar í dag. 6.9.2010 14:38
Rannsaka hníf sem unglingar fundu í smábátahöfninni Lögregla rannsakar nú hníf sem fannst við smábátahöfnina í Hafnarfirði. Tveir 15 ára piltar gáfu sig fram við lögreglu um helgina og framvísuðu hnífi sem þeir höfðu fundið í smábátahöfninni í Hafnarfirði. 6.9.2010 14:36
Katrín hittir samstarfsráðherra í Færeyjum Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra situr fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn á Færeyjum á morgun. 6.9.2010 14:22
Starfsmenn biskupsstofu gáfu mótmælanda kaffi „Við fórum þarna út og gáfum honum kaffi,“ segir Elín Jóhannesdóttir hjá fræðslusviði biskupsstofu á Laugaveginum en hún bauð mótmælanda sem þar stendur, upp á kaffibolla. Það gerði hún ásamt konu sem rekur verslun í sama húsi. 6.9.2010 14:11
Vill nýjan byskup Einn mótmælandi stendur fyrir utan Biskupsstofu á Laugaveginum og krefst þess, samvkæmt skilti sem hann heldur á, að nýr biskup taki við starfinu. 6.9.2010 13:36
Eftirlitsnefnd: Staða Vestmannaeyjabæjar er traust Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga vill árétta að fjárhagsstaða Vestmannaeyjabæjar er traust og að ekki eru fyrirsjáanleg vandkvæði í fjármálum bæjarins. Áréttingin kemur eftir að forsvarsmenn bæjarins lýstu yfir óánægju með umfjöllun um stöðu 12 sveitarfélaga sem eftirlitsnefndin hafði sent fyrirspurnarbréf. 6.9.2010 13:30
Fundur um Herjólf stendur yfir Boðað var til fundar klukkan eitt um hvort Herjólfur siglir aftur í dag. Fundurinn stendur enn yfir en að honum loknum verður ljóst hvenær þeir sem hugðust fara með Herjólfi komast á áfangastað. 6.9.2010 13:25
Rúður brotnar í Litlu Kaffistofunni Skömmu fyrir klukkan fimm á sunnudagsmorgninum voru brotnar tvær rúður í Litlu kaffistofunni samkvæmt lögreglunni á Selfossi. 6.9.2010 12:58
Gengislánamálið: Ráðherra útilokar ekki lagasetningu Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ekki útilokað að gripið verði til lagasetningar eftir að niðurstaða hæstaréttar í gengislánamálinu liggur fyrir. Hart var deilt á ríkisstjórnina á Alþingi í morgun fyrir aðgerðarleysi vegna skuldavanda heimilanna. 6.9.2010 12:22
Hitametin falla á hlýjustu dögum ársins Hitamet hafa fallið á földa veðurstöðva, bæði norðanlands og vestan, í hitabylgunni sem leikið hefur um landið undanfarna daga, meðal annars á Akureyri, og laugardagurinn var hlýjasti dagur ársins til þessa yfir landið, sem þykir ótrúlegt, miðað við að komið er fram í septembermánuð. 6.9.2010 12:22
Þétt setið í dómssalnum - málflutningi lokið Málflutningur hófst í Hæstarétti í morgun í máli Lýsingar um vexti á gengistryggðu bílaláni. Þar með gæti óðum styst í að skorið verði úr óvissunni sem hvílt hefur á þúsundum landsmanna um vaxtakjör slíkra lána. 6.9.2010 12:04
Gagnrýna flutning á málefnum fatlaðra Ríkisendurskoðun og Öryrkjabandalag Íslands eru sammála um að framkvæmd og skipulag á þjónustu við fatlaða sé í mörgu ábótavant. Ekki liggur fyrir hvort hagkvæmara er að ríki eða sveitarfélög veiti þjónustuna. Formaður Öryrkjabandalagsins segir að félagsmálaráðuneytið hafi ekki unnið vinnuna sína. 6.9.2010 12:02
Ólíklegt að starfssamningur við holræsaþjónustu verði endurnýjaður Ólíklegt þykir að starfssamningur við Holræsa og stífluþjónustu Suðurlands verði endurnýjaður, þegar hann rennur út um áramót. Þetta er haft eftir Ingibjörgu Harðardóttur, Sveitarstjóra í Grímsnes og Grafningshreppi á vefnum Sunnlenska. 6.9.2010 12:01
Kafarar hafa hætt leit að morðvopninu - beðið eftir lífsýnum Að leita að morðvopninu í manndrapsmálinu í smábátahöfninni í Hafnarfirði er í raun eins og að leita að nál í heystakki. Morðvopnið er ófundið og kafarar munu ekki leita í dag. 6.9.2010 12:00
Lúðvík aftur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar Fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirsson, tekur sæti á ný í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Lúðvík féll úr bæjarstjórn í síðustu kosningum en hann gaf kost á sér í 6. sæti á lista Samfylkingarinnar en náði ekki kosningu. 6.9.2010 11:09
Kókaín á sextán þúsund grammið Kókaín hefur sjaldan verið dýrara en nú og kostar grammið um 15.800 samkvæmt verðkönnun SÁÁ. Verð á kannabis hefur síðan lækkað mikið eftir sumarið og kostar nú 2.500 krónur. Ef miðað er við verðkannanir SÁÁ hefur hass ekki verið lægra síðan í árslok 2008. Kókaínverð er hins vegar í hæstu hæðum þessa mánuðina. 6.9.2010 11:07
Einn af hverjum sjö körlum hafa farið á Vog Fjórtán prósent karla á aldrinum 60 til 70 ára hafa farið í meðferð á Vogi og sex prósent kvenna á sama aldri. Þeir sem eru látnir, jafnvel úr áfengissýki, eru ekki taldir með. „Það er því von að spurt sé við hverju megum við búast þegar kannabis- og amfetamínkynslóðirnar eru komnar á sama aldur," ritar Þórarinn Tyrfingsson í nýjum pistli á vef SÁÁ. 6.9.2010 10:48
Viðar Már og Þorgeir metnir hæfastir í Hæstarétt Viðar Már Matthíasson prófessor og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg eru hæfastir umsækjenda til að gegna embætti hæstaréttardómara. Dómnefnd sem skipuð var til að meta hæfni umsækjenda hefur komist að þessari niðurstöðu. Fjórir skiluðu inn umsóknum, en auk þeirra Viðars Más og Þorgeirs sóttust héraðsdómararnir Sigríður Ingvarsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir, eftir embættinu. 6.9.2010 10:34
Landeyjahöfn „eitt stórt klúður“ „Þetta er bara eitt stórt klúður," segir Grétar Mar Jónsson, fyrrverandi þingmaður Frjálslynda flokksins, sem varaði mjög við byggingu Landeyjahafnar fyrir Herjólf. Grétar á að baki þrjátíu ára reynslu sem sjómaður og þegar hann sat á þingi talaði hann gegn því að Landeyjahöfn yrði byggð á þann hátt sem gert var. 6.9.2010 10:09
Mótmælanda Íslands minnst í kvöld „Í dag er liðið ár frá andláti Helga Hóesasonar og við ætlum að minnast þess með lítilli minningarhellu,“ segir Alexander Freyr Einarsson, sem ásamt meðlimum Vantrúar og velgjörðarmanna af Facebook, mun afhjúpa minningarhellu á horni Langholtsvegar og Holtavegar í dag. 6.9.2010 10:06
Umferðartafir á Hörgárbraut fram að hádegi Búast má við umferðartöfum á Akureyri vegna malbikunar á Hörgárbraut milli Stórholts og Undirhlíðar fram að hádegi í dag. 6.9.2010 08:37
Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjahafnar Vestmannaeyjaferjan Herjólfur getur ekki lengur siglt til Landeyjahafnar, að mati Ívars Gunnlaugssonar skipstjóra, þar sem höfnin er orðin of grunn vegna framburðar á sandi og gosefnum, sem berst inn í höfnina. 6.9.2010 07:49
Eldur í bíl á Selfossi Eldur gaus upp í bíl í gærkvöldi, sem verið var að rífa fyrir utan íbúðarhús við Eyrarveg á Selfossi. 6.9.2010 07:45
Bílvelta á Grundarstíg Bíl var ekið utan í handrið við Grundarstíg í miðborg Reykjavíkur um tvö leitið í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn valt. 6.9.2010 07:39
Klukkutíma tók að ná konu úr bílflaki eftir veltu Kona slasaðist, en þó ekki lífshættulega, þegar bíll hennar valt ofan í skurð við þjóðveginn á milli Selfoss og Eyrarbakka á fimmta tímanum í morgun. 6.9.2010 07:37
Málflutningur í Hæstarétti um greiðslur af myntkörfuláni Málflutningur í máli Lýsingar gegn skuldara um hvernig greiða beri af myntkörfuláni hefst fyrir Hæstarétti klukkan níu nú á eftir. 6.9.2010 07:27
Unnusta Hannesar: Játning Gunnars gríðarlegt áfall „Ég er búin að vera að bíða eftir niðurstöðum úr þessu máli, hvort sem þetta hafi verið Gunnar eða einhver annar, en þetta eru þær verstu sem gátu verið," segir unnusta Hannesar Þórs Helgasonar sem var myrtur á heimili sínu 15. ágúst. Hún er einnig æskuvinkona Gunnars Rúnars Sigþórssonar, 23 ára gamals karlmanns, sem hefur nú játað á sig morðið. „En auðvitað er ég ánægð að það séu komin málalok." 6.9.2010 06:00
Bið múslíma eftir mosku brátt á enda Tíu ára bið múslima á Íslandi eftir lóð undir mosku í Reykjavík gæti senn verið á enda, en borgaryfirvöld eru vongóð um að geta fundið lóð á næstu vikum. 6.9.2010 06:00
Sameinað átak gegn svartri vinnu hafið Átaki gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði var hleypt af stokkunum um miðjan mánuðinn. Undirbúningur stendur yfir en á nýju ári verður nýjum reglum fylgt ákveðið eftir. 6.9.2010 05:30
Umræða nái yfir landamærin Fyrirkomulag og ákvarðanataka innan Evrópusambandsins er flókin málamiðlun 27 ríkja. Þau þurfa að ná samkomulagi um að hvers konar lýðræði nákvæmlega sé stefnt, áður en hægt er að minnka stofnanalegan lýðræðishalla sambandsins með kerfislægum umbótum. Þetta kom fram í máli Dr. Maximilians Conrad, lektors við Háskóla Íslands, í á vegum Alþjóðamálastofnunar skólans á föstudag. Conrad telur aðra leið að lausn vandans vera að auka umræðu sem nær milli landa. 6.9.2010 05:00
Skáksveit Rimaskóla Norðurlandameistari Skáksveit Rimaskóla sigraði á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fór um helgina í Osló í Noregi. Sveitin sigraði finnsku sveitina 3,5 - 0,5 í lokaumferðinni og hlaut 15 vinninga, 1,5 vinningi meira en Danir sem urðu aðrir. 5.9.2010 20:45
„Þjóð sem á ekki bót fyrir rassinn þarf erlent fjármagn“ Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var frummælandi á fundi aðildarfélaga Samfylkingarinnar í gær undir yfirskriftinni Naflaskoðunin í Samfylkingunni. Meðal þess sem Jón Baldvin ræddi voru þau verkefni sem stjórnvöld standa nú frami fyrir. 5.9.2010 18:57
Ræða Jóns Baldvins í heild sinni Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, var frummælandi á fundi aðildarfélaga Samfylkingarinnar í gær. Fundurinn var haldinn undir yfirskriftinni Naflaskoðunin í Samfylkingunni. 5.9.2010 18:55
Árni Páll ætlar að koma böndum á smálánin Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segist geta tekið við eftirliti með smálánafyrirtækjum ef því fylgir aukið fjármagn til stofnunarinnar. Nýr efnahags- og viðskiptaráðherra undirbýr lagafrumvarp sem á að koma böndum á starfsemi lánafyrirtækjanna. 5.9.2010 18:40
Atvinnuleysi mun aukast Fátt bendir til þess að dekkstu spár um atvinnuleysi muni rætast að mati forstjóra vinnumálastofnunar. Hann á hins vegar von á því að atvinnuleysi muni aukast í vetur og ná hámarki í byrjun næsta árs. 5.9.2010 19:21
Bera slasaðan ferðamann niður jökul Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hvolsvelli, Vík og Hellu voru kallaðar út klukkan korter í þrjú vegna manns sem slasaðist á göngu í skriðjökli sem gengur niður af Sólheimajökli. 5.9.2010 15:19
Brunakerfi Þjóðleikhússins bilaði „Þetta var sem betur fer bara falskt útkall, skulum við segja,“ segir Ari Matthíasson framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins. Sextíu ára afmælishátíð þjóðleikhússins er haldin í dag og eru margir komnir saman til að fagna þeim áfanga. Hinar ýmsu persónur leikrita þjóðleikhússins skemmta börnum og þá eru einnig grillaðar pylsur. 5.9.2010 14:58
Ögmundur er andvígari ESB aðild en áður Ögmundur Jónasson nýr innanríkisráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var gestur í Silfri Egils í dag. Þar sagðist hann meðal annars vera andvígur því að viðræðuferlið við Evrópusambandið sé að breytast í aðlögurnarferli. Hann sagðist einnig hafa hitt Evu Joly í fyrrakvöld. 5.9.2010 14:09