Innlent

Krossgötu-detox sýknað

Eignarhaldsfélagið K 107 ehf. var sýknað af endurgjaldskröfu konu í Héraðsdómi Reykjavíkur í á föstudaginn. Félagi á og rekur Krossgötu-detox sem gerir út starfsemi sína á Hótel Glym.

Konan krafðist þess að fá rúmlega þrjár milljónir greiddar til baka en féð hafði hún lagt í félagið áður en það hóf störf en sjálf sagðist hún starfa hjá því sem framkvæmdastjóri. Hún dró sig út úr starfseminni vegna deilna rétt áður en fyrirtækið byrjaði að selja þjónustu sína.

Fyrirtæki er sýknað í ljósi þess að gögn sýndu ekki ótvírætt fram á að konan hefði starfað sem framkvæmdastjóri hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×