Innlent

Ný siglingaáætlun unnin fyrir Herjólf

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd: Stefán Karlsson

Siglingastofnun Íslands vinnur nú að nýju útreikningum um við hvaða flóðhæð skal miða fyrir siglingar Herjólfs í Landeyjahöfn. Guðmundur Petersen, rekstarstjóri Herjólfs, segist bíða eftir niðurstöðunni og er hennar líklega að vænta síðar í dag. Þá fyrst verður ljóst hvenær Herjólfur fer sína næstu ferð.

Veður er heldur slæmt við Stórhöfða í Vestmannaeyjum sem stendur, um 30 metrar á sekúndu, og væri því erfitt að sigla nú jafnvel þó bestu aðstæður væru við Landeyjahöfn.

Áætlun Siglingastofnunar verður höfð til hliðsjónar við áætlanir Herjólfs næstu daga, eða þar til hafist verður handa við að dýpka höfnina frekar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×