Innlent

Stálu loftgæðamælistöð og skildu hana eftir á golfvelli

Loftgæðamælistöðin sem var stolið um helgina.
Loftgæðamælistöðin sem var stolið um helgina.

Loftgæðamælistöð í Vík í Mýrdal, sem Umhverfisstofnun hefur rekið til að fylgjast með öskufalli og síðan öskufoki vegna eldgossins í Eyjafjallajökli, var stolið um helgina. Stöðin, sem vegur um 70 kíló, fannst út á golfvelli bæjarins í um það bil kílómeters fjarlægð þar sem hún stóð.

Skemmdir urðu á stöðinni við þetta og er því nauðsynlegt að flytja hana til Reykjavíkur til viðgerðar. Ljóst er að þeir sem þarna voru að verki hafa þurft að leggja all nokkuð á sig, þar sem stöðin var fest við staur og í 4 m hæð, auk þess sem hún vegur 70 kíló eins og fyrr greinir frá.

Loftgæðamælistöðin sem hefur mælt svifryk við Raufarfell undir Eyjafjöllum, er nú í Reykjavík vegna viðhalds og kvörðunar og eru þar af leiðandi engar svifryksmælingar á Suðurlandi núna. Umhverfisstonfun þykir miður að mælitæki sem eru meðal annars til þjónustu og upplýsinga fyrir almenning skuli vera eyðilögð með þessum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×