Innlent

Fundur um Herjólf stendur yfir

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd: Arnþór

Boðað var til fundar klukkan eitt um hvort Herjólfur siglir aftur í dag. Fundurinn stendur enn yfir en að honum loknum verður ljóst hvenær þeir sem hugðust fara með Herjólfi komast á áfangastað.

Ferð Herjólfs, sem fara átti frá Vestmannaeyjum til Landleyjahafnar klukkan hálf átta í morgun, var frestað um óákveðinn tíma, jafnvel einhverja daga, vegna þess að sandur hafði safnast upp í höfninni. Þá var ákveðið að kalla saman fulltrúa Eimskips, sem sér um reksturinn, Vegagerðarinnar og Siglingastofnunar til að fjalla um málið. Niðurstöðu þess fundar er nú beðið.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×