Innlent

Hitametin falla á hlýjustu dögum ársins

Sundlaugin á Akureyri.
Sundlaugin á Akureyri. MYND/GVA
Hitamet hafa fallið á földa veðurstöðva, bæði norðanlands og vestan, í hitabylgunni sem leikið hefur um landið undanfarna daga, meðal annars á Akureyri, og laugardagurinn var hlýjasti dagur ársins til þessa yfir landið, sem þykir ótrúlegt, miðað við að komið er fram í septembermánuð.

Veðurstofan spáir því að hitinn í dag geti farið allt upp í 20 stig norðanlands, en það yrði þá sjötta daginn í röð sem slíkt gerðist. Nú laust fyrir hádegi var hitinn reyndar "bara" kominn upp 19 gráður á nokkrum stöðum, eins og á sunnaverðu Snæfellsnesi og í Öræfasveit, og var að nálgast 19 gráðurnar á Siglufirði.

Hlýindin á landinu þessa fyrstu sex daga septembermánaðar eiga sér ekkert fordæmi víða um land í sögu veðurmælinga, því hitamet hafa fallið í hrönnum. Trausti Jónsson veðurfræðingur nefnir til dæmis Akureyri og Húsavík og hitametið á Ísafirði var að minnsta kosti jafnað, en á laugardag mældist 24 stiga hiti víða norðanlands. Hæsta talan, 24,9 gráður, sást á mæli á Möðruvöllum í Hörgárdal.

Laugardaginn var raunar hlýjasti dagur ársins yfir landið til þessa, að því er lesa má um á heimasíðu Sigurðar Þórs Guðjónssonar, áhugamanns um veðurfræði. Það þykir ótrúlegt að slíkt skuli gerast á þessu árstíma, en í huga landsmanna hefur septembermánuður gjarnan verið talinn haustmánuður.

Sigurður Þór telur upp fjölda stöðva þar sem hitamet septembermánaðar féllu um helgina, eins og Blönduós, Hraun á Skaga, Torfur í Eyjafirði, Mánárbakka, Staðarhól og Skjaldþingsstaði í Vopnafirði. Þá féllu hitamet á Vestfjörðum, bæði í Æðey og á Hólum í Dýrafirði en þetta er í fyrsta sinn sem 20 stiga hiti mælist á Vestfjörðum í september á mannaðri veðurstöð.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×