Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síðasta verk Kristjáns Möller: Veitti herfyrirtækinu ECA leyfi Samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, Kristján L. Möller, hefur veitt flugmálastjóra heimild til að hefja undirbúning á skráningu loftfara fyrir hollenska fyrirtækið ECA Program Limited hér á landi. 2.9.2010 12:43
Brýnt að bæta viðbragðsáætlanir vegna eldgosa Brýn þörf er á að bæta úr viðbragðsáætlunum almannavarna vegna Kötlugosa og annarrar eldgosahættu á Suðurlandi. Þetta er niðurstaða doktorsrannsóknar á vegum Háskóla Íslands og Macquarie háskólans í Ástralíu. Doktorsverkefnið vann Deanne K. Bird en hún flytur fyrirlestur um niðurstöður sínar í Háskólanum á morgun. 2.9.2010 12:28
Hver er þessi Guðbjartur Hannesson? Guðbjartur Hannesson, nýr ráðherra velferðarmála á Íslandi, hefur skotist hratt upp á stjörnuhiminn íslenskra stjórnmála. Samfylkingarmenn hafa lengi þekkt Guðbjart sem traustan og vinnusaman baráttumann en hann vakti fyrst athygli landans þegar hann lét til sín taka í Icesave-málinu sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Þá var ljóst að vegsauki hans yrði mikill innan flokksins 2.9.2010 12:02
Suðurgata verður einstefnugata Suðurgata verður einstefnugata fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi en tvístefnugata fyrir hjólandi umferð. Þetta var samþykkti í umhverfis- og samgönguráði í vikunni samkvæmt tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar. 2.9.2010 11:52
Ríkisráðsfundur á Bessastöðum - 20 mál sett á oddinn Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan hálftólf þar sem ný ráðherraskipan verður kynnt. Ögmundur Jónasson kemur að nýju inn í ríkisstjórn og Guðbjartur Hannesson kemur nýr inn. Þá verður Árni Páll Árnason ráðherra Efnahags- og viðskiptamála og utanþingsráðherrarnir Gylfi Magnússon og Ragna Árnadóttir hverfa á braut. 2.9.2010 11:45
Nýr efnahagsráðgjafi ráðinn Forsætisráðherra hefur ráðið Sigurð Snævarr, hagfræðing, í stöðu ráðgjafa á sviði efnahags- og atvinnumála og hefur hann störf í dag. Fimm umsóknir bárust um stöðuna samkvæmt fréttatilkynningu á heimasíðu forsætisráðuneytisins. 2.9.2010 11:23
Tölvuhakkarar réðust á DV.is Tölvuhakkarar réðust inn á auglýsingakerfi á vefnum DV.is og hefur hann legið niðri í morgun vegna þessa. 2.9.2010 10:51
Ögmundur tekur við dóms- og samgöngumálum Ögmundur Jónasson verður dóms- og samgöngumálaráðherra þegar ný ráðherraskipan tekur gildi. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra mun hverfa úr ríkisstjórninni en þetta eru einu breytingarnar sem gerðar verða á ráðherraliði VG að því er heimildir fréttastofu herma. 2.9.2010 10:29
Þingflokksfundi VG lokið - Einhugur innan flokksins Þingflokksfundi VG er lokið en þar voru tillögur um ráðherraskipti kynntar. Þingmenn vildu ekki tjá sig að fundi loknum en Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG og fjármálaráðherra, sagði eftir fundinn að einhugur ríkti innan þingflokksins og að menn væru sáttur við breytingarnar. 2.9.2010 10:18
Flokksstjórnarfundur: Fjölmiðlum bannaður aðgangur Fulltrúar á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum greiddu um það atkvæði hvort fjölmiðlum ætti að vera heimilaður aðgangur að fundinum. Allir fundarmenn, utan einn, voru á þeirri skoðun að banna fjölmiðlum aðgang og því hefur þeim verið vísað úr salnum. 2.9.2010 10:17
Guðbjartur inn - Kristján út og Árni skiptir um stól Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingarinnar, verður ráðherra í ríkisstjórn Íslands og Kristján L. Möller mun láta af embætti samgöngumálaráðherra. Þetta hefur fréttastofa eftir öruggum heimildum en nú stendur yfir flokksráðsfundur Samfylkingarinnar á Hótel Loftleiðum þar sem Jóhanna Sigurðardóttir formaður flokksins og forsætisráðherra kynnir tillögur að nýrri ráðherraskipan. 2.9.2010 09:52
Ásmundur Einar: Ögmundur verður ekki þægur ráðherra „Menn eru komnir í algjört öngstræti með þessa stjórnarandstöðu innanborðs. Nú á að kippa henni inn fyrir borðstokkinn," segir Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.„Þegar órólega deildin er tekin inn þá er það væntanlega til þess að hún verði róleg. 2.9.2010 09:33
Þing kemur saman í dag Alþingi kemur saman i dag að loknu sumarleyfi. Þingfundur hefst klukkan hálftvö með því að Benedikts Gröndals, fyrrverandi forsætisráðherra og þingmanns, verður minnst, en hann lést í sumar. 2.9.2010 09:16
Nokkur vafasöm ummæli stjórnmálamanna Þau vöktu athygli, orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur, sem sagði við fréttamann Ríkisútvarpsins í gær að hann skyldi segja frænda sínum að hoppa upp í rassgatið á sér. Þótt mörgum finnist ummælin þess eðlis að vart sé hægt að hafa þau eftir, er þetta síður en svo í fyrsta sinn sem ummæli íslenskra stjórnmálamanna vekja eftirtekt. Vísir rifjaði upp nokkur ummæli sem hefðu ef til vill best verið látin ósögð. Og þó…. 2.9.2010 09:00
Umferðartafir á Glerárgötu vegna malbikunar Umferðatafir verða á Glerárgötu á Akureyri vegna malbikunar í dag og á morgun. 2.9.2010 08:59
Hundrað ára afmælis berklahælisins minnst Berklahælið að Vífilsstöðum verður 100 ára á sunnudaginn, en hælið tók formlega til starfa 5. september árið 1910. Í tilefni tímamótanna verður dagskrá í aðalbyggingu hælisins á laugardaginn kemur, 4. september, með viðburðum fyrir alla fjölskylduna milli klukkan 13 og 16. 2.9.2010 08:58
Þingflokkarnir funda Þingflokkar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar hittast klukkan níu til að ráða ráðum sínum um breytingar á ríkisstjórninni, og hundrað manna flokksstjórn Samfylkingarinnar hefur verið kölluð til fundar klukkan tíu. 2.9.2010 08:56
Leiðbeiningar fyrir lögreglu í mansalsmálum birtar Greiningadeild ríkislögreglustjóra hefur tekið saman upplýsingar og leiðbeiningar um verklag fyrir lögreglu í mansalsmálum. Leiðbeiningarnar eru að stórum hluta byggðar á handbók norsku lögreglunnar um mansal. Þetta var gert í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn mansali. 2.9.2010 08:38
Gíslatökumaður skotinn til bana Lögregla í Maryland í Bandaríkjunum skaut í gær til bana mann sem hafði ráðist inn á starfsstöð Discovery sjónvarpsstöðvarinnar og tekið þrjá starfsmenn í gíslingu. Hann var vopnaður skammbyssu auk þess sem hann hafði spent á sig nokkrar áldósir sem lögregla óttaðist að væru sprengjur. 2.9.2010 08:33
Mörg fordæmi fyrir því að dómsmálaráðherra sé ekki löglærður Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, mun, eftir því sem heimildir herma, taka við embætti dóms- og mannréttindamálaráðherra á ríkisráðsfundi sem boðaður hefur verið í hádeginu í dag. 2.9.2010 08:30
Kveikt í rusli og mikið að gera í sjúkraflutningum Eldur var kveiktur í rusli uppi á þaki í leikskóla í Grafarvogi um tíu leytið í gærkvöldi, en slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins áður en hann ylli teljandi tjóni. Þakið er slétt og klætt tjörupappa, þannig að eldhaf hefði orðið, ef ekki hefði verið slökkt í tæka tíð. Talið er að börn eða unglingar hafi verið þarna að verki. 2.9.2010 07:32
Rafmagnstruflanir víða um land Eldur kviknaði í raftengibúnaði álversins á Grundartanga í gærkvöldi og truflanir urðu líka í álverinu í Straumsvík og á Reyðarfirði, vegna rafmagnstruflana víða um land á tíunda tímanum í gærkvöld. 2.9.2010 07:23
Óvíst hvern Jóhanna velur Óvissa ríkti um það í gærkvöldi hver kæmi nýr inn í ríkisstjórn fyrir hönd Samfylkingarinnar. Ögmundur Jónasson verður nýr ráðherra Vinstri grænna en úr Samfylkingunni eru nöfn Guðbjarts Hannessonar og Oddnýjar G. Harðardóttur helst nefnd. 2.9.2010 06:30
Breyttur miðbær er á umræðustigi „Allt er þetta svolítið í höndum Strætós enn þá,“ segir Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi Besta flokksins og formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur. Strætó bs. kynnti í gær hugmyndir sem miða að því að færa skipti- og endastöð vagna frá Hlemmi að BSÍ og breyta akstri um miðborg Reykjavíkur. 2.9.2010 06:15
Stefnir í aðhaldsaðgerðir Reykjanesbær freistar þess nú að selja eignir til að geta greitt upp 1,8 milljarða króna lán, og er undir smásjá stjórnvalda vegna fjárhagsvanda. Bæjarstjórinn segir að skýrast muni í september hvert framhaldið verði og hvort bærinn þurfi að ráðast í harkalegar aðhaldsaðgerðir. 2.9.2010 06:00
Einoka aðgang að ljósleiðara Upplýsingatækni Míla vinnur gegn markmiðum ríkisins um samkeppni á fjarskiptamarkaði með því að meina Vodafone um aðgang að ljósleiðarahringtengingu um landið. Þetta er mat Vodafone sem fengið hefur afhentan frá utanríkisráðuneytinu einn af átta ljósleiðaraþráðum í svokölluðum NATÓ-ljósleiðara sem Varnarmálastofnun hafði áður umráð yfir. 2.9.2010 06:00
Yfirheyrslur enn í gangi „Það eru yfirheyrslur í gangi og verða áfram,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, spurður um gang rannsóknar á morðinu sem framið var í Hafnarfirði í síðasta mánuði. 2.9.2010 05:45
Niðurstöður þingmannanefndar fyrirferðarmestar Tveggja vikna septemberþing verður sett í dag. Það er fyrst og fremst hugsað til að afgreiða mál sem ekki tókst að klára fyrr í ár. Fjölmiðlalög og lagabálkur um útlendinga og flóttamenn meðal þess sem ræða á. 2.9.2010 05:45
Fjarskiptasjóður er að ljúka verki sínu Lög um Fjarskiptasjóð gera að verkum að hann getur ekki styrkt verkefni á borð við ljósleiðaratengingu Öræfasveitar. Við jaðar útbreiðslusvæðis Fjarskiptafélags Öræfinga kunna hins vegar að vera staðir sem falla undir styrkhæfar aðgerðir sjóðsins. 2.9.2010 05:15
Ljósleiðaratenging meiri bylting en hringvegurinn Formleg opnun ljósleiðaranets fyrir um 50 sveitabæi í Öræfasveit fer fram á morgun, föstudaginn 3. september. „Haldin verður opnunarhátíð í Hólmgarði í Öræfasveit,“ segir Knútur Bruun, stjórnarformaður Fjarskiptafélags Öræfinga. „Bæjarstjórinn á Höfn telur þetta meiri framfarir en opnun hringvegarins. Enda getur maður nú setið í Öræfasveit og átt viðskipti við heiminn allan, auk möguleika í tengslum við fjarkennslu og annað slíkt. Þetta bætir öll búsetuskilyrði og heldur ungu fólki heima í sveitinni.“ 2.9.2010 05:15
Eldhús OR kostar 120 milljónir á ári Eldhús í húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur (OR) kostaði 61 milljón í uppsetningu. Eldhúsið var sett upp árið 2003 og þremur árum síðar var bætt við innréttingum fyrir 9 milljónir til viðbótar. Rekstrarkostnaður eldhússins árið 2009 var 119,7 milljónir króna. 2.9.2010 05:00
Ellisif Tinna skilar góðu búi Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri Varnarmálastofnunar, var leyst undan reglubundnum starfsskyldum sínum frá og með deginum í gær. Hún verður á launum til áramóta þrátt fyrir engar sérstakar starfsskyldur þangað til. 2.9.2010 05:00
Segja ráðherra brjóta lögin Niðurstaða lögfræðiálits sem Landssamband íslenskra útvegsmanna lét vinna er að sjávarútvegsráðherra hafi farið á svig við lög þegar hann ákvað að gefa ekki út aflamark í úthafsrækju fyrir komandi fiskveiðiár. 2.9.2010 04:45
Endurgerð Vaktarabæjarins að ljúka Framkvæmdum við endurgerð Vaktarabæjarins, næstelsta timburhúss Grjótaþorpsins, lýkur á næstu tveimur mánuðum að sögn Þorsteins Bergssonar, framkvæmdastjóra Minjaverndar. 2.9.2010 04:30
Tvö þúsund blöðrur í loftið Nemendur í leik- og grunnskólum munu sleppa 2.000 blöðrum til himins þegar ljósanótt í Reykjanesbæ verður sett í 11. sinn við Myllubakkaskóla í dag. Nemendur koma til athafnarinnar í skrúðgöngu með trommuslætti þar sem þeir flagga litum skólanna. Gítarsveit nemenda Gítar Myllos stjórnar fjöldasöng sem endar á fyrsta ljósalaginu, Velkomin á Ljósanótt, og Árni Sigfússon bæjarstjóri setur hátíðina. 2.9.2010 04:00
Hnífur fannst í garði - gæti verið morðvopnið Fjölskylda í Setberginu í Hafnarfirði fann hníf í bakgarðinum sínum í gærkvöldi og kom í hendurnar á lögreglunni. Samkvæmt heimildum Vísis fann íbúi hnífinn og spurðist fyrir hjá nágrönnum hvort þeir könnuðust við hann. 2.9.2010 10:39
Fleiri styðja samningaviðræður við ESB Niðurstaða nýrrar skoðanakönnunar þar sem spurt var um afstöðu til aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem Capacent gerði fyrir Sterkara Ísland daganna 18 - 25 ágúst, kemur í ljós að af þeim sem taka afstöðu eru 38,8% sem styðja áframhaldandi samningaviðræður Íslands við ESB. Andvígir áframhaldandi samningaviðræðum eru 45,5%, óákveðnir eru 15,7%. 1.9.2010 23:32
Úrsagnir álíka margar og 1996 Haukur Ingibergsson, forstjóri Þjóðskrár, segir að svipaður fjöldi fólks hafi skráð sig úr þjóðkirkjunni að undanförnu líkt og árið 1996. Það ár skráðu um 1% allra þeirra sem þá voru skráðir í þjóðkirkjuna sig úr kirkjunni eftir að nokkrar konur stigu fram og sögðu Ólaf Skúlason, þáverandi biskup, hafa beitt sig kynferðisofbeldi. 1.9.2010 22:00
Reykurinn í rofasal Bilun varð í rofahúsi álvers Norðuráls á Grundartanga í kvöld sem varð til þess að rafmagn var slegið af álverinu. Minniháttar bruni olli því að reykur kom úr rýminu og fóru lögreglu- og slökkviðiliðsmenn á vettvang. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglunni í Borgarnesi var fólk ekki í hættu. Starfi slökkviliðsmana lýkur innan skamms en nú er unnið að því að hleypa rafmagni á álverið á nýjan leik. 1.9.2010 22:22
Ósátt við ákvörðun Guðlaugs Þórs Stór hluti landsmanna er óánægður með þá ákvörðun Guðlaugs Þór Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að segja ekki af sér þingmennsku. Að sama skapi eru fjölmargir ósáttir við þá fyrirætlun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformanns Sjálfstæðisflokksins, að setjast á nýjan leik á þing í haust. Þetta kemur fram í könnun sem MMR vann fyrir Viðskiptablaðið og greint er frá á vef blaðsins í kvöld. 1.9.2010 21:50
Ósátt við vinnubrögð eftir slys Fleiri en eitt dæmi eru um að láðst hafi að tilkynna foreldrum að börn þeirra hafi lent í alvarlegum slysum þegar að þau lenda á slysadeildum. 1.9.2010 21:00
Björgvin gerir upp bankahrunið Aðdragandi og eftirmálar efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008 er veigamikill þáttur í bók sem Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, skrifar um þessar mundir. Hann nýtur aðstoðar Karls Th. Birgissonar, blaðamanns og fyrrverandi framkvæmdastjór Samfylkingarinnar, við skrifin. 1.9.2010 20:00
Flokksráð VG ekki kallað saman Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman klukkan níu í fyrramálið í þinghúsinu. Flokksráð VG verður ekki boðað til fundar vegna uppstokkunar á ríkisstjórninni. „Það er þingflokkurinn sem raðar upp sínum ráðherrum,“ sagði Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri þingflokksins, í samtali við fréttastofu í kvöld. 1.9.2010 21:00
Reykur í álverinu á Grundartanga Reykur kom upp í rými í álverinu á Grundartanga nú undir kvöld og var slökkviliðið á Akranesi kallað út vegna þess. Ekki er vitað á þessari stundu hvað veldur reyknum. Allt starfsfólk sem var inni í álverinu þegar að reyksins varð vart er komið út úr húsinu, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi. 1.9.2010 21:31
Senda persónuupplýsingar um flugfarþega til bandarískra yfirvalda Íslensk flugfélög þurfa að senda persónuupplýsingar úr farþegaskrám sínum til bandarískra yfirvalda á grundvelli samkomulags sem stjórnvöld hér á landi og í Bandaríkjunum hafa gert. Samkvæmt samkomulaginu njóta upplýsingarnar sömu verndar og upplýsingar um flugfarþega sem miðlað er til Bandaríkjanna frá ríkjum Evrópusambandsins. Greint er frá þessu á vef Persónuverndar. 1.9.2010 20:33