Endurgerð Vaktarabæjarins að ljúka 2. september 2010 04:30 Enn er óvíst hvað gert verður við húsið að endurgerð lokinni. Þorsteinn segir ýmsar hugmyndir uppi, ein sé sú að leigja húsið til ferðamanna. Fréttablaðið/GVA
Framkvæmdum við endurgerð Vaktarabæjarins, næstelsta timburhúss Grjótaþorpsins, lýkur á næstu tveimur mánuðum að sögn Þorsteins Bergssonar, framkvæmdastjóra Minjaverndar. Reykjavíkurborg keypti húsið árið 2008 og afsalaði því til Minjaverndar sem hefur haft veg og vanda af framkvæmdunum sem hófust fyrir nokkrum árum. Vaktarabærinn, sem stendur við Garðastræti 23, var byggður á árunum 1844 til 1848. Húsið, sem er friðað, var upphaflega byggt sem pakkhús við gamla Vaktarabæinn, sem var torfbær. Vaktarabærinn dregur nafn sitt af Guðmundi vaktara Gissurarsyni, sem bjó þar. Húsinu var breytt úr pakkhúsi í íbúðarhús um árið 1886. Þá keyptu hjónin Sesselja Sigvaldadóttir og Stefán Egilsson húsið og bjuggu þar ásamt börnum sínum, sem öll fæddust í húsinu. Þeirra á meðal voru tónskáldið ástsæla Sigvaldi Kaldalóns og bróðir hans stórsöngvarinn Eggert Stefánsson. Þorsteinn segir að búið hafi verið í húsinu til ársins 1960 en síðan þá og þar til framkvæmdir við endurgerð þess hófust hafi það verið í niðurníðslu og meðal annars notað sem málningarskúr. Hann segir enn óvíst hvað gert verður við húsið að loknum endurbótum. Ýmsar hugmyndir séu uppi, ein sé sú að leigja húsið ferðamönnum. Elsta timburhús Grjótaþorpsins er hús Innréttinganna við Aðalstræti 10. Það var reist árið 1764. - th
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira