Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Safnar áfram tækjum fyrir sjúklinga Samfélagsmál Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) fékk góðar gjafir á dögunum, en Þorbjörg Elín Friðriksdóttir og fjölskylda afhentu stofnuninni ytri öndunarvél, vökvadælu, og tvo hjólastóla. Þessi tæki eru afrakstur söfnunar sem Þorbjörg hefur staðið fyrir, en hún er sjálf sjúklingur á HSS. 23.9.2010 06:00
Kate Winslet stofnar samtök fyrir Sólskinsdrenginn Breska Óskarsverðlaunaleikkonan Kate Winslet í samstarfi við Margréti Dagmar hefur stofnað alþjóðlegu góðgerðasamtökin The Golden Hat Foundation, eða Gullna hattinn, sem eiga að styðja við og styrkja einhverf börn og foreldra þeirra. 23.9.2010 06:00
Bankinn blés lífi í kvikmyndahúsið Nýtt kvikmyndahús Sambíóanna opnar í Egilshöll í Grafarvogi snemma í nóvember. Nokkur ár eru síðan fyrirhugað var að opna dyr kvikmyndahússins en verkið var margsinnis lagt í salt. 23.9.2010 06:00
Lóðin fyrir PrimaCare til reiðu Samningar um lóð í Sólvallalandi í Mosfellsbæ fyrir einkasjúkrahús og hótel PrimaCare ehf. verða undirritaðir á næstu vikum, að sögn Gunnars Ármannssonar, framkvæmdastjóra félagsins. 23.9.2010 05:30
Átakið framlengt til áramóta Ferðamenn Markaðsátakið Inspired by Iceland virðist hafa borið nokkurn árangur í því að bæta ímynd Íslands á erlendri grundu, að því er fram kemur í tilkynningu frá framkvæmdanefnd átaksins. Vísað er til nýlegrar könnunar MMR sem mældi viðhorf til Íslands í Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku. 23.9.2010 05:00
Fjölskyldan úr Múlakaffi í Hörpuna „Þetta er hápunkturinn á mínum ferli,“ segir Jóhannes Stefánsson, veitingamaður í Múlakaffi, sem varð hlutskarpastur í útboði á veitingaþjónustu í tónlistarhúsinu Hörpunni. 23.9.2010 04:30
Ákært fyrir amfetamínafbrigði sem olli vanda Ríkissaksóknari hefur ákært tvo karlmenn fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Þeim er gefið að sök að hafa staðið að ólögmætum innflutningi á tæpum fjórum kílóum af svokölluðu 4-flúoroamfetamíni frá Hollandi hingað til lands. 23.9.2010 04:00
Ekki er útlit fyrir heilsutjón vegna gossins Gosið í Eyjafjallajökli kemur ekki til með að hafa mikil áhrif á heilsu Íslendinga. Kemur þetta fram í nýrri, breskri rannsókn sem gerð var á vegum Durham-háskóla sem sérhæfir sig í rannsóknum og greiningu á hættu í umhverfinu. 23.9.2010 03:30
Auðlindir þarf að skoða heildstætt Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að verja þurfi sameiginlegt eignarhald þjóðarinnar á auðlindum og tryggja áhrif ríkisins á hvernig orkunni sé ráðstafað. Þetta sagði hún á málþingi um orkumál í gær, en það var haldið af stýrihópi ráðuneytisins um mótun heildstæðrar orkustefnu. Ráðherra sagði að skoða þyrfti auðlindamál heildstætt þar sem tekið væri jafnt á orkumálum sem og fiskistofnum og olíuvinnslu. 23.9.2010 03:15
Umboðsmaður skuldara vill endurskoðun á lagalegum úrræðum Þann 1. ágúst síðastliðinn voru 550 einstaklingar sem höfðu fengið samþykktan nauðasamning til greiðsluaðlögunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umboðsmanni skuldara. 22.9.2010 21:28
Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhald Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskruð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir einum þeirra sex sem handteknir voru í tengslum við rannsókn lögreglu á fjársvikamálinu svokallaða. Heima hjá manninum fundust tólf kíló af hassi þegar lögregla gerði þar húsleit. 22.9.2010 19:06
Eitt stærsta hrossabú landsins í vestfirskum afdal Á sama tíma og hefðbundin sveitabyggð er brostin við norðanverðan Arnarfjörð hefur í einum afskekktasta dal landsins, lengst vestur á Vestfjörðum, byggst upp eitt veglegasta hrossabú landsins, með reiðhöll, skeiðvelli og öðru sem tilheyrir. Eigandinn, sem er líka með einkasundlaug og hefur svín á beit útí haga, segist vera að fjárfesta í skemmtilegum stundum og minningum. 22.9.2010 18:46
Nafn mannsins sem lést Karlmaðurinn sem lést í vinnuslysi á Grænlandi í gærkvöldi hét Árni Þór Steinarsson. Hann var fæddur 1984 og var ókvæntur og barnlaus. Hann starfaði hjá Ístaki. 22.9.2010 18:37
Lokakaflinn að klárast Síðasti kafli Suðurstrandarvegar, milli Þorlákshafnar og Grindavíkur, hefur verið boðinn út og sér nú loks fyrir endann á verkefni, sem kallað hefur verið margsvikna kosningaloforðið 22.9.2010 19:43
Pilturinn kominn með fósturfjölskyldu Búið er að finna drengnum, sem var laumufarþegi í Norrænu, fósturfjölskyldu. Forstöðumaður hælissviðs Útlendingastofnunar segir hann með yngstu börnum sem hingað hafa komið einsömul og leitað hælis. Nokkur hundruð vegalaus börn leita til Noregs ár hvert 22.9.2010 18:52
Þrír Íslendingar með gervifætur í haldi í Ísrael Þrír Íslendingar og einn Suður-Afríkumaður eru í haldi í Ísrael en þeir voru stöðvaðir á flugvellinum í Tel Aviv í dag. Þeim hefur ekki enn verið hleypt inn í landið. Þetta kom fram í sex fréttum RÚV. Þeir munu vera á leið með gervifætur á Gasa-svæðið. 22.9.2010 18:00
Medvedev vill til Íslands Dmitry Medvedev forseti hefur áhuga á að heimsækja Ísland, meðal annars til að kynna sér árangur Íslendinga við að nýta hreina orku. Þetta kom fram á fundi Medvedevs með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands í dag. 22.9.2010 16:53
Mjög viðkvæmt verkefni framundan Ekki liggur fyrir hvort 2,8 milljarða gat í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár verður brúað með niðurskurði í rekstri borgarinnar eða auknum álögum á borgarbúa, segir Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, í samtali við Vísi. 22.9.2010 16:45
Allsherjarnefnd gefur Atlanefndinni umsögn Allsherjarnefnd mun fá þingsályktunartillögur um ákærur gegn ráðherrunum fjórum til umsagnar. Samkvæmt heimildum Vísis verður fyrsti fundur í nefndinni klukkan fjögur í dag. 22.9.2010 15:47
Jóhanna lagði áherslu á réttindi kvenna og barna Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lagði áherslu á réttindi kvenna og barna í ræðu sinni á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna um þúsaldarmarkmiðin svokölluðu í dag. Í ræðunni sagði Jóhanna meðal annars að jafnrétti kynjanna væri einn lykillinn að markmiðunum. Tryggja yrði börnum viðunandi menntun, aðbúnað og skilyrði til vaxtar. 22.9.2010 16:05
Sökuð um ólöglega hundaræktun á Akranesi „Hann er algjörlega geðveikur þessi hundaeftirlitsmaður. Hann leggur mann í einelti,“ segir Margrét Tómasdóttir, formaður hundaræktunarfélagsins Íshunda, en hún gerði athugasemdir við störf hundaeftirlitsmanns á Akranesi á dögunum. 22.9.2010 15:59
Ráðið frá sjósundi vegna hættu á saurgerlamengun Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ráðleggur sjósundsfólki að fara ekki í sund í Nauthólsvík dagana 27.- 29. september. Ástæðan er möguleg saurgerlamengun vegna viðgerða á dælustöð fráveitukerfisins við Hafnarbraut í Kópavogi. 22.9.2010 15:59
Tvöföldun Suðurlandsvegar hafin Ögmundur Jónasson samgönguráðherra tók fyrstu skóflustunguna að tvöföldun Suðurlandsvegar við hátíðlega athöfn klukkan þrjú í dag. Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag var um að ræða kaflann Fossvellir - Draugahlíðar. Auk Ögmundar var Hreinn Haraldsson vegamálastjóri viðstaddur við þetta tækifæri. 22.9.2010 15:31
Stefán Sölvi fjórði sterkasti maður heims Sterkasti maður Íslands, aflraunamaðurinn Stefán Sölvi Pétursson, hafnaði í fjórða sæti í keppninni Sterkasti maður heims 2010. Keppnin var haldin í borginni Sun City í Suður-Afríku. 22.9.2010 14:33
Önnur mál ekki til umræðu á Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór í dag fram á það að umræður um brýn hagsmunamál þjóðarinnar færu fram á þingi á meðan þingmannanefnd Atla Gíslasonar fjallar um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að beiðninni hafi verið hafnað. 22.9.2010 14:11
Georg Bjarnfreðarson sverti ímynd hjólreiða Jón Gnarr borgarstjóri hefur beðist afsökunar á þeim ímyndarskaða sem hjólreiðar kunna að hafa orðið fyrir þegar Jón ákvað að láta Georg Bjarnfreðarson fara leiða sinna á reiðhjóli. 22.9.2010 14:07
Reykjavíkurborg þarf að loka 2,8 milljarða gati Um 2,8 milljarða króna þarf til að loka fjárlagagati í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár. Þetta kemur fram í bókun Besta flokksins og Samfylkingarinnar á borgarstjórnarfundi í gær. 22.9.2010 13:10
Ræða Jóhönnu hafin í í New York - bein útsending Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ávarpar í dag leiðtogaráðstefnu um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem haldin er í New York. 22.9.2010 13:07
Reykjanesbær reynir að semja um risalán Tveir starfsmenn þýsk-írska bankans Depfa, eru hér á landi til þess að semja við Reykjanesbæ um greiðslu á tæplega tveggja milljarða króna skuld bæjarins. Starfsmennirnir komu hingað til lands í síðustu viku. 22.9.2010 13:01
Laumufarþeginn í umsjá barnaverndar Drengurinn sem kom sem laumufarþegi með Norrænu í gær var í nótt í umsjá stuðningfjölskyldu á vegum barnavendar Reykjanesbæjar. 22.9.2010 12:10
Einn enn í lífshættu Einn kínverjanna sex, sem lentu í bílslysi á Biskupstungnabraut í gærmorgun, er enn í lífshættu. Lögregla rannsakar nú hvort bíllinn hafi verið skráður löglega, miðað við afnot, og hvort hinir slösuðu hafi ekki verið í bílbeltum. 22.9.2010 12:05
Samgönguráðherra tekur sér skóflu í hönd Framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar, Fossvellir - Draugahlíðar, hefjast með hátíðlegri athöfn í dag. Ögmundur Jónasson samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri verða viðstaddir við þetta tækifæri og segir í tilkynningu frá Vegagerðinni að líklegt sé að Ögmundur muni grípa sér skóflu í hönd. Athöfnin mun fara fram klukkan þrjú nokkuð fyrir vestan Litlu kaffistofuna og norðan við vegamót við Bolaöldu. 22.9.2010 11:56
Hnúfubakur festist í þorskaneti Stór hnúfubakur flæktist í veiðarfærum netaveiðibátsins Hafborgarinnar í Skagafirði í gær. Ómögulegt var að losa hnúfubakinn þar til búið var að aflífa hann. 22.9.2010 11:44
Skipstjóri dæmdur fyrir að sigla undirmönnuðu skipi Karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að hafa siglt skipi sínu undirmönnuðu. Ekki var yfirvélstjóri um borð í skipinu þegar að það sigldi úr höfn þann 12. nóvember í fyrra. Ákærði játaði brot sitt en taldi að skipið hefði verið í góðum höndum þrátt fyrir þetta, vegna reynslu þeirra manna sem voru í áhöfn. 22.9.2010 11:39
Meintar amfetamínkonur neita sök Tvær konur, sem eru ákærðar fyrir að hafa smyglað inn til landsins 20,9 kílóum af amfetamínsúlafati, neituðu báðar sök í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 22.9.2010 11:33
Ákærurnar fara til umfjöllunar í þingmannanefnd Þingsályktunartillögum um ákærur gegn fjórum ráðherrum sem störfuðu í aðdraganda bankahrunsins verður vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar . Þetta var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 16 á Alþingi í morgun. 22.9.2010 10:52
Lést í fjórhjólaslysi á Grænlandi Íslenskur karlmaður lést á Grændlandi í gærkvöldi. Maðurinn var starfsmaður Ístaks en fyrirtækið er að byggja virkjun á svæðinu Pakitsoq sem er 60 kílómetrum frá bænum Ilulissat á vesturströnd Grænlands. 22.9.2010 10:45
Vantraust ef tillögurnar fara í allsherjarnefnd Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, telur að ef þingsályktunartillögum um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum fyrir brot á ráðherraábyrgð verði ekki vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar feli það í sér vantraust á störf nefndarinnar. 22.9.2010 10:43
Atli: Ráðherrunum átti ekki að bregða Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar um niðurstöður Rannsóknarskýrslu Alþingis, segir að þeim fjórum ráðherrum sem lagt er til að verði ákærðir fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð hefði ekki átt að koma á óvart að nefndin væri að skoða þann möguleika. Hann segir að þeir hafi fengið bréf frá nefndinni þar sem kom fram að verið væri að skoða ráðherraábyrgð og vísað sérstaklega í kafla skýrslunnar sem fjalla um þau atriði. 22.9.2010 10:00
Felldu tillögu um sannleiksnefnd Meirihluti bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ felldu tillögu minnihlutans um að koma á fót þriggja manna nefnd sem átti að taka út stjórnkerfi og stjórnýslu Reykjanesbæjar. Fyrirmynd nefndarinnar hefði þá verið rannsóknarnefnd Alþingis. 22.9.2010 09:59
Sextán manns sóttu um skólameistarastöðu í Hafnarfirði Sextán manns, fjórar konur og tólf karlar, sóttu um stöðu skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út föstudaginn 17. september síðastliðinn. 22.9.2010 09:56
Svipt sjálfræði vegna alvarlegrar átröskunar Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að að ung kona verði svipt sjálfræði í tólf mánuði á meðan hún fær meðferð við átröskun. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar fór fram á sjálfræðissviptinguna en sjúkdómur konunnar er kominn á mjög alvarlegt stig og er það mat meðferðaraðila að án meðferðar sé hún í lífshættu. 22.9.2010 08:59
Mannekla í fiskvinnslu þrátt fyrir atvinnuleysi Skortur er á starfsfólki í fiskvinnslu í Grundarfirði þrátt fyrir að yfir tuttugu manns á svæðinu séu á atvinnuleysisskrá. Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Guðmundur Runólfsson hf., segir í samtali við Skessuhorn að hann fái ekki fólk til að fylla lausar stöður. Vegna þess hefur fyrirtækið neyðst til að draga úr veiðum og setja fisk á markað og í gáma í stað þess að vinna hann á staðnum. 22.9.2010 08:35
Atkvæðagreiðsla á Alþingi í dag Greidd verða atkvæði um það á Alþingi í dag hvort vísa beri málinu um ákærur á hendur fjórum fyrrverandi ráðherrum til allsherjarnefndar. 22.9.2010 07:58
Undirbúa samningsviðræður um makrílveiðarnar Samningamenn Íslands og Evrópusambandsins sem hittust til undirbúningsviðræðna um makrílveiðar Íslendinga í gærmorgun, tjá sig ekki um gang viðræðnanna fyrr en að þeim loknum, síðar í dag. 22.9.2010 07:46