Innlent

Einn enn í lífshættu

Einn kínverjanna sex, sem lentu í bílslysi á Biskupstungnabraut í gærmorgun, er enn í lífshættu. Lögregla rannsakar nú hvort bíllinn hafi verið skráður löglega, miðað við afnot, og hvort hinir slösuðu hafi ekki verið í bílbeltum.

Þeim sem mest slasaðist er haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans og þar liggja tveir aðrir, en eru á bata vegi. Sá fjórði, sem, slasaðist, var útskrifaður eftir aðhlynningu á sjúkrahúsum í gær, og tveir sluppu ómeiddir.

Það voru bílstjórinn, sem er kínversk kona með íslenskan ríkisborgararétt, og einn farþeganna, en þau voru sannanlega bæði í bílbeltum. Ekki liggur fyrir að svo hafi verið með hina fjóra og er það reyndar talíð ólíklegt. Meðal annars vegna þess að bíllinn valt ekki nema eina veltu og skemmdist ekki mjög mikið. Bíllinn, sem skráður er eins og venjulegur fólksbíll, er í eigu fyrirtækis sem stendur í bílaútgerð og leigir út bíla, með eða án bílstjóra og með eða án leiðsögumanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×