Innlent

Undirbúa samningsviðræður um makrílveiðarnar

Samningamenn Íslands og Evrópusambandsins sem hittust til undirbúningsviðræðna um makrílveiðar Íslendinga í gærmorgun, tjá sig ekki um gang viðræðnanna fyrr en að þeim loknum, síðar í dag.

Ekki er búist afgerandi niðurstöðu af fundinum, því hann er til undirbúnings fundar allra strandríkja, sem málið varðar, síðar í haust.

Íslensk skip eru um það bil að klára 130 þúsund tonna makrílkvóta sinn í íslenskri lögsögu í ár, en Evrópusambandið hefur ekki viljað viðurkenna tilvist makríls við Íslandsstrendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×