Innlent

Sextán manns sóttu um skólameistarastöðu í Hafnarfirði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sextán manns, fjórar konur og tólf karlar, sóttu um stöðu skólameistara Iðnskólans í Hafnarfirði. Umsóknarfrestur um stöðuna rann út föstudaginn 17. september síðastliðinn.





Umsækjendur eru:

Anna Vilborg Einarsdóttir, skólastjóri,

Anna Greta Ólafsdóttir, meistaranemi,

Árni Már Árnason, framhaldsskólakennari,

Ársæll Guðmundsson, skólameistari,

Eyjólfur Bragason, verkefnastjóri,

Hertha Lind Ólafsdóttir, hönnunar- og listgreinakennari,

Ingi Bogi Bogason, forstöðumaður,

Jens Benedikt Baldursson, áfangastjóri,

Jóhannes Ágústsson, framhaldsskólakennari,

Jóhannes Sigurðsson, verkefnastjóri og framhaldsskólakennari,

Kristján Kristjánsson, verkefnastjóri,

Magnús Ingvason, kennslustjóri,

Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari,

Sigfús Grétarsson, fyrrverandi skólastjóri,

Steinn Jóhannsson, forstöðumaður og

Þór Pálsson, áfangastjóri.

Miðað er við að mennta- og menningarmálaráðherra skipi í stöðuna til fimm ára frá 1. janúar næstkomandi, að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, með síðari breytingum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×