Fleiri fréttir

Ræddu gagnrýni á Gylfa

Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ræddu saman í síma í kvöld um þá gagnrýni sem beinst

Styðja við bakið á Stjörnunni og Reykjadal

Bónus ætlar að styrkja Stjörnuna um 1,5 milljónir króna og sumarbúðirnar í Reykjadal um eina milljón króna. Ákvörðun um stuðninginn er tekin í tilefni af því að ný og stærri Bónusverslun er að opna í Kauptúni á morgun.

Traust Jóhönnu til Gylfa skilyrðum háð

Forsætisráðherra ber enn traust til viðskiptaráðherra, en traust hennar er því skilyrði háð að hann geti gefið greinargóðar skýringar á ásökunum sem settar hafa verið fram á hendur honum. Þingmenn Hreyfingarinnar ætla að leggja fram vantrauststillögu á hendur viðskiptaráðherra ef hann segir ekki af sér.

Flugfélag Íslands kærir hugsanlega aðgerðir slökkviliðsmanna

Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands íhugar að kæra aðgerðir slökkviliðsmanna. Hann segir tjón félagsins vegna aðgerðanna nema milljónum og harmar að þeir láti kjaradeiluna bitna á ferðafólki og fyrirtæki sem enga aðild eigi að kjaradeilunni.

Um 150 ný störf skapast til áramóta

Um 150 ný störf skapast fram að næstu áramótum með þeirri ákvörðun borgarráðs sem tekin var fyrr í sumar um að breyta forgangsröðun á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2010 og verja 500 milljónum í átaksverkefni skapast.

Lögreglan leitar að Sindra

Lögreglan á Selfossi leitar að Sindra Þór Ragnarssyni, fjórtán ára gömlum. Sindri Þór er 1,77 cm á hæð. Hann er klæddur í hvíta adidas peysu og beislitaðar carhartt buxur. Í dag er hárið á honum heldur styttra en það er á meðfylgjandi mynd og brúnleitt.

Gylfi brunar í bæinn

Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er á leiðinni í bæinn en hann hefur verið í sumarleyfi undanfarna daga og utan símasambands.

Búið að aflýsa fluginu - Farþegar ósáttir

Flugfélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa fyrirhuguðu flugi til Húsavíkur þar sem slökkviliðsmenn komu í veg fyrir að farþegar kæmust um borð. Næsta flug til Húsavíkur er áætlað klukkan fjögur og segjast starfsmenn vonast til þess að unnt verði að koma farþegum um borð í það flug.

Reyna að stöðva flugfarþega á Reykjavíkurflugvelli

Um fjörutíu slökkviliðsmenn eru nú á Reykjavíkurflugvelli til þess að mótmæla innanlandsflugi til Húsavíkur en þangað var Akureyrarflug dagsins fært þar sem slökkviliðsmenn fóru í verkfall í morgun. Slökkviliðsmennirnir reyna að hindra að farþegar komist um borð.

Munu ekki fara út í ólöglegar aðgerðir

„Meðan þeir halda sig inni á svæðinu sem slíku, teljum við okkur ekki getað gert neitt til að hindra þeirra för. Ef þeir fara út fyrir svæðið er viðbúið að við hindrum för bílsins," Anton Carrasco slökkviliðsmaður og verkfallsvörður á Húsavík. Anton er staddur á Aðaldalsfluvelli á Húsvík ásamt fimmtán til tuttugu örðum slökkviliðsmönnum.

Isavia: Ekki slegið af öryggiskröfum

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia segir að ekkert sé slegið af öryggiskröfum á Aðaldalsvelli við Húsavík en þangað stendur til að vísa Akureyrarflugi dagsins vegna verkfalls Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsbíll hefur verið fluttur frá Bakkaflugvelli til þess að uppfylla öryggiskröfur og munu starfsmenn Isavia manna hann.

Tveggja krónu eldsneytislækkun

Atlantsolía og Orkan lækkuðu bensínlítrann um tvær krónur í morgun og díselolíuna um eina krónu. Bensínlítrinn kostar nú innan við 195 krónur hjá báðum félögunum og dísellítrinn innan við 192 krónur.

„Tíu þúsund lítrar eru ekki neitt“

Samtökin Beint frá býli vilja að heimild til heimaframleiðslu utan kvótakerfis í umdeildu mjólkurfrumvarpi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra verði hækkuð úr tíu þúsund lítrum í þrjátíu þúsund. Samtökin segja að frumvarpið gangi ekki nógu langt í núverandi mynd.

Verulega slegið af öryggiskröfum í Húsavíkurflugi

Landssamband Slökkviliðs og sjúkraflutningamanna telur að með því að flytja gamlan slökkvibíl frá Bakkaflugvelli til Húsavíkur til þess að hægt sé að lenda á flugvelli bæjarins sé verið að slá verulega af öryggiskröfum sem alla jafna séu gerðar í farþegaflugi.

Fara yfir grundvallaratriði og meta stöðuna

„Við erum að fara yfir grundvallaratriði í þessum málum og ræða saman,“ segir Sverrir Björn Björnsson formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Um 70 félagsmenn hittust í Húnabúð í Skeifunni klukkan níu í morgun til að fara yfir stöðuna í samningaviðræðum en þriðja verkfall þeirra hófst klukkan átta í morgun og lýkur á miðnætti.

Friðjón aðstoðar Bjarna Ben

Friðjón R. Friðjónsson tekur í dag tímabundið við starfi aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Sigurður Kári Kristjánsson var aðstoðarmaður Bjarna Benediktsson þar til hann tók sæti á þingi í apríl síðastliðnum. Það gerði hann þegar að Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálftæðisflokksins, tók sér leyfi frá þingstörfum á meðan sérstakur saksóknari skoðar hvort tilefni sé til að taka málefni sem snúa að peningamarkaðssjóðum bankanna til rannsóknar. Illugi var í stjórn Sjóðs 9 hjá Glitni.

Isavia samþykkir að opna flugvöllinn á Húsavík

Flugfélag Íslands hefur farið þess á leit við Isavia ohf. að flugvöllurinn á Húsavík verði opnaður í dag 13.ágúst 2010 fyrir flugvélar Flugfélagsins. Isavia hefur samþykkt að verða við þessari beiðni og hefur því flutt slökkvibifreið sína frá flugvellinum á Bakka til Húsavíkur.

Samningafundi slökkviliðsmanna lauk án niðurstöðu

Samningafundi slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna með samninganefnd sveitarfélaga lauk hjá ríkissátatsemjara á sjötta tímanum í morgun, án árangurs og hefur annar fundur ekki verið boðaður.

Í tísku að fjarlægja svitakirtla úr holhönd

Ný tækni í lýtalækningum hefur gert það að verkum að aðgerðir í handarkrikum vegna of mikillar svitamyndunar hafa færst í vöxt. Guðmundur Már Stefánsson, lýtalæknir hjá Domus Medica, segir að gerðar séu um fimm slíkar aðgerðir í mánuði og kosti á bilinu 100 til 150 þúsund krónur.

Salan lítið breytt milli ára

Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda (LS) ákvað á fundi sínum á mánudag að nýta heimild og gefa út nýtt viðmiðunarverð á kindakjöti. Verðskráin hækkar um fimm prósent frá í fyrra, sem er sambærilegt við hækkun vísitölu neysluverðs á sama tíma.

Lögfræðiálit er ekki ígildi dóms

„Auðvitað fer vægi álits eftir því hvernig það er rökstutt. En sá sem biður um álit, hann leggur ákveðnar forsendur fyrir þann sem gefur álitið. Álitið getur verið pottþétt miðað við þessar forsendur. Hins vegar getur verið að það megi skoða málið frá öðru sjónarhorni og þá gæti vægi álitsins rýrnað,“ segir Sigurður Líndal lagaprófessor.

Sakborningar svara spurningum vestra

Sakborningar í málshöfðun slitastjórnar og skilanefndar Glitnis á hendur sjö fyrrum eigendum og stjórnendum Glitnis fyrir dómi í Bandaríkjunum þurfa undir lok þessa mánaðar að mæta til New York og gefa munnlegan vitnisburð vegna frávísunarkröfu sinnar á málið.

Hefði átt að vita meira um málaflokkinn

Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur minnir á að ráðherra beri pólitíska ábyrgð á sínum málaflokki og því sem embættismenn undir honum vinna að. „Ef eitthvað fer úrskeiðis þá ber ráðherra ábyrgð gagnvart þinginu og verður að svara fyrir það,“ segir Birgir og nefnir sem dæmi að ef forveri Gylfa, Björgvin G. Sigurðsson, segðist ekki hafa vitað neitt í aðdraganda bankahrunsins, þá væri það engin afsökun.

Bálreiðir slökkviliðsmenn senda verkfallsverði norður

Verði af verkfalli Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna á morgun munu verkfallsverðir á þeirra vegum fara norður á Akureyri og Húsavík til þess að koma í veg fyrir verkfallsbrot, samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur frá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum.

Byggt með berum höndum

Viðbygging við fræðslumiðstöð íslensku góðgerðarsamtakanna Enza í Suður-Afríku er nú í fullum gangi. Engar stórtækar vinnuvélar eru notaðar við framkvæmdirnar, heldur nota verkamenn og sjálfboðaliðar berar hendur að mestu leyti við verkið.

Verulega dregur úr tíðni leghálskrabba

Nýjum tilfellum af leghálskrabbameini hefur fækkað um meira en 70% hér á landi eftir að skipuleg leit hófst og dauðsföllum hefur fækkað um 90%. Þetta kemur fram í yfirlitsgrein um leit að leghálskrabbameini eftir Kristján Sigurðsson yfirlækni Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins. Greinin birtist í ágústhefti tímaritsins Cytopathology.

Seðlabankastjóri tók þátt í Reykjavíkurrallý

Már Guðmundsson brá sér úr hefðbundnu hlutverki sínu sem seðlabankastjóri í kvöld. Í stað þess að húka á skrifstofu sinni á Kalkofnsvegi ákvað Már að gerast aðstoðarökumaður Daníels Sigurðssonar í Reykjavikurrally sem er nýhafið. Daníel ekur um á Subaru Impreza.

Enn fundað í kjaradeilu

Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn sitja enn á fundi til að reyna að ná lendingu í kjaradeilu sinni áður en þriðja lota verkfalls þeirra hefst klukkan átta á morgun. Samkvæmt upplýsingum sem Vísir fékk frá samninganefnd Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna liggur ekkert fyrir um það hvenær fundinum lýkur.

Gagnrýna seinagang við vinnu fjárhagsáætlunar

Það er afar nauðsynlegt að borgarstjórn fari að einbeita sér að brýnum verkefnum Reykjavíkurborgar, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.

Eldur í íbúðarhúsi á Hellu

Eldur varð laus í íbúðarhúsi á Hellu í Rangárvallasýslu á níunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli er enginn inni í húsinu. Um er að ræða timburhús þannig að töluverður eldsmatur er í því, að sögn lögreglunnar. Slökkviliðsmenn frá Hellu og Hvolsvelli hafa unnið að því að slökkva eldinn.

Íslendingur handtekinn með kíló af fíkniefnum

íslenskur karlmaður hefur verið handtekinn Vilinus, höfuðborg Litháen, með 1 kiló af kókaíni meðferðis. Eftir því sem fram kom í kvöldfréttum RÚV fékk alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra tilkynningu um málið frá yfirvöldum í Litháen í morgun. Haft var eftir Smára Sigurðssyni, yfirmanni alþjóðadeildar, að maðurinn hafi áður komið við sögu lögreglunnar á Íslandi.

Hvetja kortanotendur til að gæta öryggis

Í ljósi upplýsinga frá lögreglu um óprúttna aðila sem hafa verið á kreiki við hraðbanka og reyna að ná PIN-númerum og öðrum kortaupplýsingum af fólki, vilja Samtök fjármálafyrirtækja minna korthafa á að gæta alltaf fyllstu varkárni við hraðbanka.

Íhuga samúðaraðgerðir vegna verkfallsins

Slökkviliðsmenn á Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvelli íhuga nú samúðaraðgerðir vegna verkfalls slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Ljóst er að slíkar aðgerðir geta haft víðtæk áhrif á allt millilandaflug.

Saka Jón Gnarr um að brjóta siðareglur

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna segja að Jón Gnarr borgarstjóri brjóti siðareglur borgarstjórnar með því að semja við fyrirtæki

Ökumaður tekinn með allt niðrum sig

Karl á þrítugsaldri var stöðvaður við akstur á Breiðholtsbraut í gærmorgun. Afskiptin voru tilkomin vegna þess að ökumaðurinn var að tala í síma án þess að notast við handfrjálsan búnað.

Rösklega 91% fleiri lesa Fréttablaðið

Rösklega 91% fleiri lásu Fréttablaðið en Morgunblaðið í maí til júlí síðastliðnum, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup. Meðallestur Fréttablaðsins var þá 61,4%, en meðallestur Mogunblaðsins var 32,1%, samkvæmt könnuninni.

Íslendingar lentu í „líbönsku lykkjunni“

Kærð hafa verið til lögreglu ætluð auðgunarbrot þar sem afrit segulranda debetkorta og upplýsingum um PIN númer þeirra hefur verið náð af viðskiptavinum hraðbanka hér á landi.

Sjá næstu 50 fréttir