Innlent

TF-Líf fór í 500 sjómílna og fimm tíma langt sjúkraflug

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-Líf fór í óvenju langt sjúkraflug eftir veikum sjómanni um borð í spænskum togara suðvestur af Reykjanesi seint í gærkvöldi og var flugvél frá Mýflugi send með þyrlunni til öryggis.

Þegar komið var á togaranum eftir langt flug í sterkum mótvindi komu upp tungumálaörðugleikar og spænski skipstjórinn hafði einhverjar aðrar hugmyndir um vinnnubrögð við björgunina en áhöfn þyrlunnar.

Það var ekki fyrr en stýrimaður þyrlunnar hótaði að snúa við, að skipstjórinn gafst upp og þyrluáhfönin tók stjórnina og náði sjómanninum um borð. Lent var með hann í Reykjavík um tvö leitið í nótt, en hann mun ekki vera í lífshættu.

Flogið var rúmlega 500 sjómílur og tók leiðangurinn fimm klukkustundir.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×