Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Opið bréf til Jóns Gnarrs: AGS djókar aldrei Helga Þórðardóttir, oddviti Frjálslynda flokksins í Reykjavík, sendir Jóni Gnarr opið bréf í aðsendri grein á vefsíðunni svipan.is. 3.6.2010 22:04
Meintum þjófum á Akranesi sleppt Mennirnir fjórir sem lögreglan á Akranesi handtók á þriðjudag grunaða um að hafa brotist inn í liðlega 30 sumarbústaði hefur verið sleppt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akranesi. Málið telst upplýst. Maðurinn sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á mánudag er einnig laus. 3.6.2010 19:40
Þakkar snarræði leigubílsstjóra að hann sé á lífi Maður sem bjargaðist úr brennandi bíl á Reykjanesbraut í dag, eins og kom fram á Vísi fyrr í dag. Maðurinn þakkar snarræði leigubílstjóra sem kom honum til aðstoðar að hann sé enn á lífi. Bíll mannsins er gjörónýtur. 3.6.2010 19:04
Berjast gegn fóstureyðingum með bænum „Við biðjum, sama hvernig viðrar“. Þetta segja forsprakkar hóps sem hafa vikulega hist fyrir utan kvennadeild Landspítalans og beðið þess að fóstureyðingum linni. Árlega eru gerðar um og yfir 900 fóstureyðingar hér á landi. 3.6.2010 18:41
Fiskistofa í dulargervi Starfsmenn Fiskistofu beittu nýstárlegum aðferðum þegar þeir komu upp um löndunarsvindl á Suðureyri fyrr í vikunni. Þrír voru handteknir og er málið nú í höndum lögreglu. 3.6.2010 18:34
Dómur yfir haglabyssumanni mildaður Hæstiréttur mildaði sex ára fangelsisdóm yfir Birki Arnari Jónssyni, sem var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til manndráps þegar hann skaut á hurð vinnuveitanda kærustu hans á síðasta ári. Taldi Hæstiréttur hæfilegt að dæma manninn í fimm ára fangelsi. 3.6.2010 16:39
Engir ráðamenn afhenda Grímuna - Ólafur Ragnar áfram verndari Engir ráðamenn munu veita verðlaun á Grímunni samkvæmt Ásu Richardsdóttur, forseta Leiklistarsambandsins. Þetta var ákveðið af stjórn sambandsins í apríl að undangengnum fundi í fulltrúaráði. 3.6.2010 15:00
Lokka almenning til að breyta gengislánum í krónulán Fjármálastofnanir reyna að lokka fólk með gengislán yfir í krónulán meðan gjaldmiðillinn er í styrkingu. Þetta segir formaður hagsmunasamtaka heimilanna sem telur vinnubrögðin svívirðileg. 3.6.2010 18:35
Hæstiréttur sýknaði ríkið af kröfum Ölfuss Hæstiréttur sýknaði íslenska ríkið af kröfum sveitafélagsins Ölfuss. 3.6.2010 17:15
Dómur yfir Catalinu þyngdur um eitt ár Hæstiréttur Íslands hefur dæmt Catalinu Ncogo í þriggja og hálfs árs fangelsi. Héraðsdómur hafði áður dæmt hana í tveggja og hálfs árs fangelsi í desember fyrir hórmang og brot gegn fíkniefnalöggjöfinni. Hæstiréttur þyngdi því dóminn um eitt ár. 3.6.2010 16:48
Kannabisræktandi handtekinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í austurborginni í hádeginu gær samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni. 3.6.2010 15:52
Dularfull hetja bjargaði manni úr alelda bíl „Hann óð bara inn í bílinn sem var orðinn alelda og dró manninn út,“ segir Guðmundur Sigtryggson sem varð vitni af því þegar leigubílstjóri aðstoðaði eldri mann út úr logandi bíl á Reykjanesbraut í dag. 3.6.2010 15:46
Flestir hálendisvegir lokaðir Vegna aurbleytu og hættu á vegaskemmdum hefur flestum hálendisvegum verið lokað og er allur akstur um þá bannaður, segir í frétt frá Vegagerðinni. Þar segir að greiðfært sé um allt land. 3.6.2010 15:40
Eftirlit með eftirvögnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í júnímánuði fylgjast sérstaklega með búnaði eftirvagna í umdæminu. Reynslan hefur sýnt að búnaði hjólhýsa, tjaldvagna og fellihýsa er á stundum ábótavant með tilheyrandi slysahættu. Ástandið hefur þó lagast síðustu ár, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 3.6.2010 15:34
Stúdentar ósáttir við breytingar á reglum LÍN Stúdentaráð Háskóla Íslands mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Formaður ráðsins segir að fulltrúar nemenda í stjórn sjóðsins hafi neitað að samþykkja breytingartillögurnar þar sem þær myndu hafa gríðarlega hagsmunaskerðingu fyrir stóran hluta námsmanna í för með sér. 3.6.2010 15:14
Franskt herskip til Íslands Á laugardaginn mun franska skipið Latouche-Tréville leggja að höfn í Reykjavík. Skipið, sem er kafbátaeftirlitsskip frá franska sjóhernum, mun vera við bakka í Sundahöfn til 8. júní. Viðkoma þess í Reykjavík er hluti af venjubundnum verkefnum þess á norðurslóðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 3.6.2010 14:14
Listi Grindvíkinga: Vilji bæjarbúa virtur að vettugi Listi Grindvíkinga, nýtt óháð framboð, bauð öllum oddvitum í Grindavík að mynda samstjórn allra flokka í bæjarfélaginu en því var hafnað að sögn Kristínar Maríu Birgisdóttur oddvita framboðsins. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn mynduðu meirihluta í gærkvöldi. Hún segir að flokkarnir hafi virt vilja bæjarbúa að vettugi. 3.6.2010 13:40
Bættri afkomu OR ekki bara náð fram með hækkunum Fráfarandi meirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins í Reykjavík segir engin ný tíðindi fólgin í því að gjaldskrár Orkuveitunnar þurfi að taka breytingum þegar horft er til næstu fimm ára. 3.6.2010 13:09
Segir Kredia ekki herja á 18 ára ungmenni Leifur Haraldsson, framkvæmdastjóri sms-lánafyrirtækisins Kredia, segir það rangt hjá framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna að Kredia hafi sent markpóst á 18 gömul ungmenni. Hið rétta sé að markpóstur var sendur til tvítugs fólks. 3.6.2010 13:05
Ráðherrar víki af þingi Þingmaður Samfylkingarinnar vill að strax verði gengið í að ráðherrar sitji ekki á Alþingi og varamenn þeirra taki sæti á þingi. Stjórnarflokkarnir leggja mikla áherslu á að frumvarp um stjórnlagaþing verði afgreitt fyrir sumarleyfi Alþingis. 3.6.2010 12:39
Yfir 300 þúsund manns skoðað Íslands-myndbönd „Þetta fer gríðarlega vel af stað og við höfum fengið góð viðbrögð vegna myndbandsins," segir Ragnar Gunnarsson, framkvæmdarstjóri auglýsingastofunnar Fíton, sem framleiða kynningarmyndbönd í tengslum við átakið Inspired by Iceland, ásamt Pegasus en meðal leikstjóra er Reynir Lyngdal. 3.6.2010 12:37
Viðbrögð við myndbandinu hafa fram úr björtustu vonum Viðbrögð við kynningarátakinu Inspired by Iceland hafa fram úr björtustu vonum. Alls hafa myndböndin verið spiluð 340 þúsund sinnum á vefnum og skilaboðin hafa náð til tveggja milljón notenda á Twitter. 3.6.2010 12:25
Selja útlendingum ýsu sem þorsk Lögregla hefur til rannsóknar annað mál þar sem fiskframleiðandi merkti ýsu sem þorsk til útflutnings. Lögfræðingur Fiskistofu segir svindl sem þetta geta haft áhrif á verðmyndun fiskitegunda innanlands og utan og spillt orðspori íslenskra fiskútflytjenda. 3.6.2010 12:20
Um 24 þúsund heimili ná vart endum saman Um 24.000 heimili ná vart endum saman þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda í þágu heimilanna. Hlutfall heimila með neikvæða eiginfjárstöðu hefur fjórfaldast á rúmum tveimur árum og talið er að staðan muni versna. 3.6.2010 12:09
Sigrún Elsa: „Þetta er bara kjaftæði og ekki boðlegt“ „Við spurðum um þetta í janúar og ítrekað í borgarráði" segir Sigrún Elsa Smáradóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í stjórn Orkuveitunnar, um yfirvofandi gjaldskrárhækkun Orkuveitunnar á heitu vatni. Fréttablaðið greindi frá því í dag að það standi til að hækka verð á heitu vatni um 37 prósent á næstu fimm árum. 3.6.2010 11:27
Ljúka meirihlutaviðræðunum í Kópavogi á næstu dögum Meirihlutaviðræður í Kópavogi ganga ljómandi vel, að sögn oddvita Vinstri grænna. Engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi bæjarstjórastólinn eða önnur embætti. 3.6.2010 10:50
Fatlaðir stofna útvarpsstöð Hreyfihamlaðir hafa stofnað útvarpsstöðina Ö-FM 106,5. Hún fór í loftið 1. júní og verður starfrækt í tvo mánuði. 3.6.2010 10:25
Sennilega krafist gæsluvarðhalds yfir bústaðaþjófum Búast má við því að lögreglan á Akranesi krefjist gæsluvarðhalds yfir meintum innbrotsþjófum sem eru grunaðir um að hafa brotist inn í rúmlega 30 sumarbústaði í Borgarfirði auk þess sem þeir eru grunaðir um að hafa framið skemmdarverk á þeim. 3.6.2010 10:10
Mikilvægt að horfa til framtíðar Á fundi leiðtoga aðildarríkja Eystrasaltsráðsins í gær voru efnahagsmál og styrking svæðisbundins samstarfs í forgrunni. Samþykkt var yfirlýsing af hálfu leiðtoganna um framtíðarsýn fyrir Eystrasaltssvæðið undir yfirskriftinni Vision 2020. Meginefni hennar er aukin samkeppnishæfni í svæðisbundnu samstarfi, á umhverfisvænum grunni og með félagsleg markmið að leiðarljósi. 3.6.2010 10:08
Færri vistrými fyrir aldraða Hagstofa Íslands hefur tekið saman tölur um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra árið 2009 en í desember það ár voru vistrými alls 3.369, þar af voru hjúkrunarrými á dvalar- og hjúkrunarheimilum alls 2.315 eða 68,7% vistrýma. 3.6.2010 10:01
Vegurinn inn í Þórsmörk opnaður Almannavarnir hafa ákveðið að aflétta lokun sem verið hefur á veginum í Þórsmörk vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. 3.6.2010 09:49
Mikið öskufjúk á veginum undir Eyjafjöllum Ökumenn sem átt hafa leið um þjóðveginn undir Eyjafjöllum segja að mikið öskufjúk sé á honum og skyggni því afleitt. 3.6.2010 09:01
Ítarlegur gagnabanki um einstaklinga Persónuvernd Rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila eins og hún er áætluð í frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi veldur Persónuvernd áhyggjum í ljósi ákvæðis í stjórnarskránni um friðhelgi einkalífs. 3.6.2010 08:00
Braust inn í bíla á Huldubraut Lögreglan handtók unga konu á Huldubraut í Kópavogi í nótt en hún er grunuð um að brjótast inn í tvo bíla í götunni. Tilkynnt var um innbrotin og hafði fartölva meðal annars verið tekin úr öðrum bílnum. Þegar lögregla var á vettvangi ók konan framhjá lögreglumönnunum sem ráku augun í fartölvu í bílnum sem svipar til þeirrar sem stolið hafði verið. Konan var því stöðvuð og færð á lögreglustöð til yfirheyrslu. 3.6.2010 07:10
Hættir útgerð vegna veiðibanns ráðherra „Þetta þýðir einfaldlega að mín heimamið eru horfin með öllu og við þurfum að hætta útgerð,“ segir Ómar V. Karlsson, útgerðarmaður á Hvammstanga, sem gerir út dragnótarbátinn Hörpu HU. 3.6.2010 07:00
Betri karfaveiði en síðustu ár Aflabrögð hafa verið mjög góð á úthafskarfaveiðum á Reykjaneshrygg undanfarnar vikur. Skip HB Granda hafa veitt vel og má heita að full vinnsla hafi verið um borð í skipunum frá fyrsta degi vertíðarinnar, eins og fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. 3.6.2010 07:00
Meirihluti myndaður í Grindavík Framsóknar- og sjálfstæðismenn í Grindavík mynduðu meirihluta í gærkvöldi. Í yfirlýsingu er því heitið að starfa saman í fullum trúnaði og hafa hagsmuni allra Grindvíkinga að leiðarljósi. Þá segjast oddvitar flokkanna vilja eiga gott samstarf við alla kjörna bæjarfulltrúa þar sem sjónarmið allra flokka eigi greiðan aðgang. Starf bæjarstjóra verður auglýst. 3.6.2010 06:54
Þeir skutu á sofandi fólk „Þeir skutu á sofandi fólk,“ segir sænski rithöfundurinn Henning Mankell, höfundur bókanna um lögregluforingjann Wallander. „Okkur var rænt.“ 3.6.2010 06:45
Enginn asi í stóru bæjarfélögunum Viðræður fulltrúa Besta flokksins og Samfylkingar um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur héldu áfram í gær. Ágætur gangur mun vera í viðræðunum en menn segjast þó ætla að fara sér í engu óðslega. 3.6.2010 06:30
Vændiskaupendur í felum Aðeins einn sakborningur í vændiskaupamálinu svonefnda mætti í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar mál á hendur ellefu meintum vændiskaupendum voru þingfest í gær. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins biðu einhverjir hinna sakborninganna í nágrenni dómhússins, þar sem verjendur þeirra höfðu gert þeim viðvart um að fjölmiðlar væru mættir í héraðsdóm. 3.6.2010 06:00
Hestar hafa smitað menn Þess eru dæmi erlendis að fólk hafi smitast af hestum af streptokokkasýkingu þeirri sem nú herjar á hross hér. Þetta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir, sem beinir því til hestafólks að hafa varann á vegna þessa. 3.6.2010 06:00
Hækka þarf heitt vatn um 37 prósent Eigi markmið fimm ára áætlunar um fjárþörf Orkuveitu Reykjavíkur (OR) að nást, þarf mikla hækkun á gjaldskrá fyrirtækisins. Á það við um allt nema kalda vatnið. Þar mun gjaldskrá standa í stað. 3.6.2010 06:00
Mál tengd Byr komin á borð saksóknara Sex mál sem tengjast stjórnendum Byrs sparisjóðs hafa verið send sérstökum saksóknara og til Fjármálaeftirlits. Fyrrverandi stjórn Byrs vísaði málinu áfram skömmu fyrir yfirtöku ríkisins á sparisjóðnum í apríl, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara. Málin koma til viðbótar þeim málum sem tengjast Byr og þegar eru í skoðun hjá embættinu. 3.6.2010 06:00
Telur landlækni geta borgað rannsóknina Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hafnar því með öllu að landlæknisembættið hafi ekki getað gert rannsókn á mannlegum mistökum innan íslenskra sjúkrahúsa vegna kostnaðar. Embættið hafi verið mjög vel haldið fjárhagslega á undanförnum árum. 3.6.2010 05:30
Greiðslur Kjalar aftur skertar um 19 prósent Lífeyrisgreiðslur úr lífeyrissjóðnum Kili, sem er í vörslu Landsbankans, hafa verið skertar um nítján prósent. Þetta var tilkynnt á ársfundi sjóðsins í síðustu viku. Greiðslur úr sjóðnum voru einnig skertar um nítján prósent í fyrra. Alls hefur skerðingin því numið 34,4 prósentum frá hruni. Halldór Kristinsson, framkvæmdastjóri sjóðsins, segir þetta vera beina afleiðingu af bankahruninu, þar sem sjóðurinn hafi tapað um 20 prósentum eigna sinna. „Tryggingafræðileg staða sjóðsins var neikvæð um 21 prósent og þá bar sjóðnum lagaleg skylda til að skerða réttindin,“ segir Halldór. 3.6.2010 04:00
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent