Innlent

Tveir Bretar báðust afsökunar á framferði breskra stjórnvalda

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Bretarnir báðust afsökunar á framferði Gordons Browns og ríkisstjórnar hans gagnvart Íslendingum.
Bretarnir báðust afsökunar á framferði Gordons Browns og ríkisstjórnar hans gagnvart Íslendingum.

Tveir bretar eru komnir hingað til lands til að biðja íslendinga afsökunar á framkomu breskra stjórnvalda eftir bankahrunið. Þeir telja að Íslendingar geti breytt bankakerfinu í krafti smæðar og komið í veg fyrir aðra efnahagskreppu.

Donald Martin og Anthony Miller eru með áratuga reynslu af viðskiptum í Bretlandi og hafa rekið fyrirtæki og unnið ötullega að málefnum smáfyrirtækja bæði í Bretlandi og Evrópu. Þeir segja að beiting hryðjuverkalaga gegn Íslandi hafi verið breskum stjórnvöldum til mikillar minnkunar.

„Þetta var bresku ríkisstjórninni til háborinnar skammar og hún hefði aldrei átt að beita þessum lögum," sagði Donald Martin og bætti við: „Raunar langar mig að afsaka þetta fyrir hönd bresku þjóðarinnar."

Þessir herramenn eru ekki bara komnir hingað til að biðja íslendinga afsökunar þeir eru líka með hugmyndir um hvernig á að breyta bankakerfinu þannig að það virki.

Núverandi kerfi sem byggir á því að eignir felist að langmestu leyti í útistandandi skuldum virki ekki. Vegna smæðarinnar hér sé auðveldara en annars staðar að komast í samband við embættismenn og breyta lögum. Þeir leggja til að tvenns konar reikningar verði í bönkum.

Annars vegar reikningar þar sem bankinn geti ekki ráðstafað fénu og hins vegar sérstakir fjárfestingareikningar, þar sem bankinn má lána innistæðuna út, en aðeins einu sinni. Núverandi kerfi þar sem innistæður séu í sumum tilfellum marglánaðar endi með ósköpum.

„Ef núverandi kerfi verður áfram við lýði munum við fyrr eða síðar komast aftur í svipaða stöðu og við erum í um þessar mundir því maður getur ekki breytt núverandi ástandi með því að nota skuldir til að greiða skuldir," segir Donald.

„Það er einmitt það sem menn reyna nú í öllum hagkerfum heimsins," segir Anthony Miller félagi hans. Donald segir svo að lokum: „Við teljum að íslenska þjóðin geti gefið okkur von um betri framtíð."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×