Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eymundsson forselur rannsóknarskýrsluna Bókabúðin Eymundsson hyggst forselja rannsóknarskýrsluna yfir helgina en hún verður ekki gerð opinber fyrr en á mánudaginn klukkan hálf ellefu. 9.4.2010 16:23
Gylfi Magnússon: „Krossleggjum fingur og vonum það besta“ „Þetta eru afar góðar fréttir,“ segir Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, en Ísland er komið á dagskrá stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 16. apríl. 9.4.2010 16:12
Forsætisráðherra agndofa yfir póstum til Lárusar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, furðuðu sig á því í morgun að mál tengt tölvupóstssendingum milli Lárusar Welding og stórra hluthafa Glitnis hafi ekki verið sent til embættis sérstaks saksóknara. Forsætisráðherra segist agndofa yfir tölvupóstunum. 9.4.2010 16:00
Kaninn tekinn úr sambandi - sakar Lýðvarpið um árás á útvarpssendi „Ég áttaði mig á því stuttu eftir hádegi að sendir á okkar vegum í Bláfjöllum var dottinn út,“ segir Einar Bárðarson, útvarpsstjóri Kanans, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í hús þar sem sendirinn er og tekið hann úr sambandi með þeim afleiðingum að útsending útvarpsstöðvarinnar þagnaði. 9.4.2010 15:50
Kostar sex milljónir vikulega að gæta eldstöðvanna Áætlað er að ríkið muni greiða um 6 milljónir á viku vegna lágmarksgæslu í kringum eldstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi en dómsmálaráðherra kynnti ríkisstjórninni í morgun erindi þess eðlis. Það er lögreglan á Hvolsvelli og björgunarsveitir sem munu gæta öryggis á svæðinu samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu. 9.4.2010 15:32
Vill að Sjálfstæðismenn taki skýrsluna alvarlega Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill að flokksmenn sínir taki niðurstöðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis alvarlega og dragi lærdóm af þeim. Þetta kemur fram í ávarpi Bjarna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins. 9.4.2010 15:08
Söfnuðu 55 þúsund fyrir bágstadda á Haítí Í vetur hafa yngri börnin í ungmennastarfi Stöðvarfjarðardeildar Rauða kross Íslands safnað peningum fyrir börn á Haiti sem urðu hart úti í jarðskjálftunum þar í vetur. 9.4.2010 14:45
Svavar Halldórsson: Auðmenn reyna að hræða blaðamenn „Tilgangurinn er augljóslega sá að hræða blaðamenn frá því að fjalla um aðdraganda hrunsins. Það er alveg augljóst í mínum huga,“ segir Svavar Halldórsson, fréttamaður fréttastofu Ríkisútvarpsins en Pálmi Haraldsson hefur stefnt honum vegna fréttar sem hann flutti í kvöldfréttunum í lok mars. 9.4.2010 14:27
Alþjóðahúsið flytur í nýtt húsnæði Alþjóðahúsið hefur flutt starfsemi sína af Laugavegi 37 að Ofanleiti 2 þar sem áður var aðalbygging Háskólans í Reykjavík fyrir flutning skólans í Nauthólsvík. 9.4.2010 14:01
Ísland á dagskrá stjórnar AGS Tilkynnt verður síðar í dag um að endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins á næstunni. Unnið hefur verið að því í íslenska stjórnkerfinu að koma þeirri endurskoðun á dagskrá, en hún átti að fara fram í febrúar. 9.4.2010 13:52
Reykjavík vill verða græn borg Reykjavík keppir við spænsku borgirnar Barcelónu og Vitoria-Gasteiz, sænsku borgina Málmey, Nantes í Frakkalandi og Núrnberg í bæjaralandi í Þýskalandi um að vera Græna borgin í Evrópu árið 2012 eða 2013. Tvær af þessum sex verða valdar. 9.4.2010 12:27
Sjúkratryggingar Íslands endurgreiða 63 milljónir Um 15.000 sjúkratryggðum einstaklingum hafa verið endurgreiddar 63 milljónir króna af Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) vegna afsláttar sem ekki var hægt að borga út þegar heilbrigðisþjónusta var veitt á síðasta ári samkvæmt tilkynningu frá Sjúkratryggingum Íslands. 9.4.2010 12:20
Jarðskjálftar í Goðabungu í Mýrdalsjökli Gosórói í eldstöðinni í Eyjafjallajökli fer nú hægt minnkandi. Jarðskjálftar urðu í Goðabungu í Mýrdalsjökli í nótt og í morgun. Almannavarnir funda eftir hádegi með vísindamönnum þar sem meta á stöðu gossins og þörf fyrir gæslu á svæðinu. 9.4.2010 12:04
Leyfislausir ferja fólk að gosstöðvunum Nokkur fyrirtæki, sem bjóða ferðafólki í jeppa- eða fjórhjólaferðir að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi, hafa ekki tilskilin leyfi til þess. Þá hefur Ríkisskattstjóri fundið matarholu við gosstöðvarnar. 9.4.2010 12:02
Arna Schram ráðin upplýsingafulltrúi Kópavogs Bæjarráð Kópavogs samþykkti í gær að ráða Örnu Schram í starf forstöðumanns almannatengsla Kópavogsbæjar. 9.4.2010 11:53
Pálmi vill þrjár milljónir í miskabætur Pálmi Haraldsson fjárfestir vill fá 3 milljónir króna i miskabætur frá Svavari Halldórssyni vegna fréttar sem birtist í kvöldfréttum RÚV 25. mars. 9.4.2010 11:15
Innri endurskoðun fer yfir styrki til Golfklúbbs Reykjavíkur Innri endurskoðun fer nú yfir efndir á fyrri samningum við Golfklúbb Reykjavíkur vegna upplýsinga úr ársreikningum klúbbsins um að framkvæmdastyrkir frá Reykjavíkurborg hafi verið teknir til annarra nota en framkvæmda samkvæmt samningnum auk þess sem umsamið "mótframlag" klúbbsins hafi ekki verið lagt í framkvæmdir í samræmi við samninginn. 9.4.2010 11:10
Biskup vill að söfnuðir kaupi rannsóknarskýrsluna Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, hefur sent prestum og djáknum bréf þar sem hann hvetur til þess að söfnuðir kaupi eintak af skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis og láti liggja frammi í safnaðarheimilum. Í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni segir að þar geti sóknarbörn nálgast hana og lesið í henni og mælst er til þess að boðið verði upp á kaffi og auglýstar sérstakar samverustundir þar sem unnt verði að ræða skýrsluna. 9.4.2010 10:42
Heimdallur minnir á hvaðan peningarnir koma Stjórn Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur sent frá sér ályktun vegna umræðunnar um fjármögnunm golfvallar á sama tíma og borgin glímir við þrönga stöðu. „Atburðir og umræða síðustu daga sýna vel hve hættuleg blanda stjórnmálamenn og opinber útgjöld eru,“ segir í ályktuninni. 9.4.2010 10:15
Davíð Oddsson farinn úr landi Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóri og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, verður staddur í útlöndum þegar rannsóknarskýrsla Alþingis verður gerð opinber á mánudaginn. 9.4.2010 10:05
Ingvar og Breki hnýttu bestu flugurnar Ingvar Ingvarsson og Breki Sigurjónsson báru sigur úr bítum í silungafluguhnýtingakeppni sem Krabbameinsfélag Íslands efndi til í samvinnu við Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Veiðihornið og Veiðikortið. Keppt var í tveimur flokkum, almennum flokki og unglingaflokki, og voru glæsileg verðlaun í boði fyrir þær flugur sem hrepptu þrjú efstu sætin að því er segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu. 9.4.2010 09:54
Kostnaðarsöm kóbraslanga Þriggja vikna leit að eiturslöngu í Þýskalandi er lokið. Málið hefur vakið mikla athygli í landinu en ungur eigandi kóbraslöngu í bænum Muelheim hafði samband við yfirvöld fyrir þremur vikum og viðurkenndi skömmustulega að kóbraslangana hans hefði sloppið úr búrinu sínu. 9.4.2010 09:43
Pálmi hefur stefnt fréttamanni RÚV Pálmi Haraldsson fjárfestir hefur stefnt Svavari Halldórssyni, fréttamanni á fréttastofu RÚV, vegna fréttar af málefnum Fons, eignarhaldsfélagi Pálma. 9.4.2010 09:00
Brennuvargar á ferð í borginni Lögreglan á höfuðborgarvæðinu handtók í nótt þrjá karlmenn á þrítugsaldri, eftir að eldur var kveiktur í strætisvagnaskýli við Sogaveg upp úr klukkan tvö í nótt, og olli þar nokkrum skemmdum. 9.4.2010 07:22
Fangi kveikti í rúmdýnu á Litla-Hrauni Fangi á Litla Hrauni kveikti í rúmdýnu í klefa sínum í gærkvöldi með þeim afleiðingum að samfangi hans í klefanum fékk snert af reykeitrun. 9.4.2010 07:05
Frestur væri bestur á aðildarviðræðum Íslendingar þurfa að gera upp hug sinn og ákveða hvar þeir vilja vera í samfélagi þjóða. Það væri jafnvel betra að fresta yfirstandandi viðræðum við ESB en að halda þeim áfram í óvissu um hvert sé stefnt. 9.4.2010 07:00
Aldrei auðveldara aðgengi að eldgosi Ásókn almennings í skoðunarferðir á slóðir eldgoss hefur aldrei verið meiri en að gosinu sem hófst á Fimmvörðuhálsi 20. mars síðastliðinn. Þetta skýrist einna helst af eðli gossins og betra aðgengi en áður hefur þekkst, að mati Ármanns Höskuldssonar eldfjallafræðings. Hann hefur fylgst með nokkrum eldgosum á Íslandi en man ekki eftir annarri eins umferð í 9.4.2010 06:00
Fyrirtækin bera allan kostnað Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) telja að flugfélögin þurfi að bera 400 milljóna króna kostnaðarhækkanir vegna nýlegra gjaldskrárbreytinga frá hendi samgönguráðherra. SAF gagnrýnir ekki síst að hækkanirnar taka gildi með svo stuttum fyrirvara að allur kostnaðurinn fellur á fyrirtækin og ekki er hægt að velta kostnaðinum á farþega. 9.4.2010 06:00
Segja eigendavaldi beitt til að fá lán Jón Ásgeir Jóhannesson og Pálmi Haraldsson högnuðust um einn milljarð króna hvor á því að láta Glitni lána félagi Pálma sex milljarða, samkvæmt stefnu skilanefndar. Þeir hafna því báðir að hafa hagnast á láninu. 9.4.2010 06:00
Ingibjörg Sólrún óttast ekki að verða dregin fyrir dóm Fyrrum utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur fengið að sjá fjórar síður úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og segist næsta viss um að hún verði ekki sótt til saka samkvæmt stjórnsýslulögum eða lögum um ráðherraábyrgð. Í aðdraganda efnahagshrunsins hafi efnahags- og fjármál enda verið á borðum annarra ráðherra. 9.4.2010 06:00
Stöðva verður umferð í vor „Ef ekkert er að gert gæti umferð jeppa á gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi valdið umhverfisslysi. Það verður að girða fyrir bílaumferð utan jökuls þegar snjóa leysir,“ segir Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands og formaður Jöklarannsóknafélagsins. Litlar breytingar urðu á gosinu í gær, að hans sögn. 9.4.2010 06:00
Upplýst verði um lánaafskriftir Skipa á nefnd til að rannsaka verklag og ákvarðanatöku fjármálafyrirtækja frá hruninu haustið 2008 og til ársloka 2009, samkvæmt frumvarpi sem Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, og tíu aðrir þingmenn flytja. 9.4.2010 04:00
Eldur logaði í strætóskýli Eldur logaði í strætóskýli á móts við leikskólann Hólaborg um hálfátta í kvöld. Slökkviliðið var kallað til en vegfarandi hafði slökkt eldinn áður en slökkviliðsmenn komust á staðinn. 8.4.2010 20:28
Gífurlegur fjöldi kvenna í Kvennaathvarfinu Alls dvöldu 118 og 60 börn í Kvennaathvarfinu í fyrra. Einungis einu sinni áður hafa verið skráðar fleiri konur í athvarfið. Aðsókn var mikil í Kvennaathvarfið á síðasta ári og einungis einu sinni í 27 ára sögu athvarfsins hafa verið skráðar fleiri komur. Veitt voru tæplega 500 ráðgjafar- og stuðningsviðtöl við konur sem ekki komu í dvöl. Það sem af er árinu hefur aðsókn í viðtöl enn stóraukist. 8.4.2010 18:44
Hætta á að gosið brjótist upp á nýjum stað Hætta er á því að gosið á Fimmvörðuhálsi brjóti sér leið upp á nýjum stað eftir því sem þrengist að núverandi gígopi, að mati Haraldar Sigurðssonar eldfjallafræðings. Lögreglan er hneyksluð á glæfraspili fólks í kringum eldstöðina. Eldingar hafa nú bæst við annan lífsháska eins og gufusprengingar og glóandi hraun. 8.4.2010 18:43
Undirrituðu samning um aukið framlag í Nýsköpunarsjóð námsmanna Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra undirrituðu í dag samkomulag um aukið framlag til Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Heildarfjárframlag beggja aðila mun nema 120 milljónum á þessu ári, 90 milljónir króna frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og 30 milljónir króna frá Reykjavíkurborg. 8.4.2010 17:28
Reykjavíkurborg keppir um Grænu borgina Reykjavíkurborg hefur verið valin ein af sex evrópskum borgum sem keppa til úrslita um að vera Græna borgin í Evrópu árið 2012 eða 2013. Sautján borgir í tólf Evrópuríkjum sóttu um þessa eftirsóttu viðurkenningu og nú hafa sex þeirra komist í úrslit. 8.4.2010 21:12
Styrkveiting til GR í uppnámi Styrkveiting til Golfklúbbs Reykjavíkur er í uppnámi eftir að borgarráð var upplýst í dag um að klúbburinn hefði síðustu þrjú ár þegið 210 milljónir króna frá borginni til ákveðinna framkvæmda en notað hátt í helming fjárins til að lækka yfirdrátt og aðrar skuldir. Málið er nú í höndum innri endurskoðunar borgarinnar. 8.4.2010 19:00
Nokkur innbrot tilkynnt til lögreglunnar Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Meðal annars var tölvuskjá stolið úr húsi á Seltjarnarnesi og úr í íbúð í vesturbænum hurfu skartgripir, tölva og sparibaukur. 8.4.2010 17:46
Segjast hafa gætt varúðar þegar þeir kveiktu í dekkjum Arctic Trucks, sem hefur aðstoðað aðstandendur breska sjónvarpsþáttarins Top Gear, segja að fyllsta öryggis hafi verið gætt þegar þeir létu kvikna í dekki á jeppabifreið í hraunjaðri eldgosins á Fimmvörðuhálsi. Lögreglan á Hvolsvelli gagnrýndi þá félaga harðlega fyrir uppátækið og minntu á að aðstæður væru lífshættulegar við eldgosið. 8.4.2010 16:08
Sakborningar gagnrýna fjölmiðla harðlega Þrír sakborningar af níu, sem hafa verið ákærðir fyrir að ryðjast inn í Alþingishúsið í desember á síðasta ári, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir gagnrýna meðal annars fjölmiðla, lýðræði, vald og fleira. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun en málinu var áður vísað frá þegar í ljós kom að einn starfsmanna þingsins og lagði fram bótakröfu var hálf systir ríkissaksóknara. 8.4.2010 14:51
Vekja athygli ríkisstjórnar Norðulanda á mikilvægi ferðaþjónustunnar Samtök starfsfólks í ferðaþjónustugreinum á Norðurlöndum, NU HRCT, sendu í gær opið bréf til ríkisstjórna Norðurlandanna þar sem vakin er athygli á mikilvægi ferðaþjónustunnar og bent á að Norðurlöndum ber að nota þau tækifæri sem þau ráða yfir til að grípa til öflugrar markaðssetningar Norðurlanda á sameiginlegum ferðamarkaði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 8.4.2010 14:06
Tópasmálið: „Hafi orðið mistök þá leiðréttum við þau“ „Það er leiðinlegt ef þau keyptu útrunna vöru, en annað þarf að skoða þetta mál betur,“ segir Pétur Smárason, rekstrastjóri Snælandsvideo, en Vísir greindi frá því í morgun að 12 ára piltur braut í sér tönn eftir að hafa fengið sér Tópas úr versluninni sem reyndist löngu útrunnið. 8.4.2010 13:44
Fólk nálægt hættulegum gufusprengingum Hættulegar gufusprengingar eru á gosstöðvunum þar sem hraunið steypist niður í Hvannárgil og hefur fjöldi fólks verið þar nærri. Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir að áfram gjósi af krafti úr sprungunni sem opnaðist fyrir rúmri viku og þaðan sé mikið hraunrennsli. 8.4.2010 12:47
Stöðva ferðir vanbúins fólks Lögreglumenn frá Hvolsvelli eru nú á leið til eldstöðvanna á Fimmvörðuhálsi, til að stöðva ferðir vanbúins fólks, sem mun vera á leiðinni þangað. Engir björgunarsveitarmenn eru nú á vettvangi og getur ferðafólk því ekki stólað á nærveru þeirra. 8.4.2010 12:16