Fleiri fréttir

Tukthúsklefar í kjallara Útvarpshússins

Kristján L. Möller samgönguráðherra upplýsti á mótmælafundi á Egilsstöðum í gær að sú hugmynd hefði verið rædd í ríkisstjórn að taka Útvarpshúsið í Efstaleiti undir lögreglustöð, enda væri gott pláss fyrir tukthúsklefa í kjallaranum.

Undirbúa virkjun Hvammsfjarðarrastar

Stjórnvöld hafa gefið út fyrsta formlega leyfið til að undirbúa virkjun sjávarfalla við Ísland. Fyrirtækið Sjávarorka hefur fengið leyfi til að rannsaka þann möguleika að virkja Hvammsfjarðarröstina út af Stykkishólmi.

Merki Eimskipafélagsins heldur áfram að valda misskilningi

Gamla merki Eimskipafélags Ísland heldur áfram að valda misskilningi meðal erlendra ferðamanna . Starfsmenn Sjóminjasafnsins á Granda þurftu að setja upp sérstak blað þar sem merkið er útskýrt í íslensku samhengi.

Mikilvægt að gera upp Íraksmálið

Það er kominn tími á að við áttum okkur á því hvernig sú ákvörðun að lýsa yfir stuðningi við innrásina í Írak var tekin, hver tók hana, með hvaða hætti og af hverju. Þetta segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Bronsið kærkomin upplyfting á erfiðum tímum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sendi íslenska landsliðinu í handbolta heillaóskaskeyti í dag. Þar þakkaði hún liðinu innilega fyrir frábæra skemmtun og drengilega baráttu. Árangurinn sé kærkomin upplyfting á erfiðum tímum í sögu þjóðarinnar. Í skeytinu kemur fram að ríkisstjórnin ætli að styrkja landsliðið til þátttöku á heimsmeistaramótinu á næsta ári um 10 milljónir króna.

Forsetinn og Björgólfur Thor eitruð blanda

Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjáralaganefndar, segir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, og Björgólf Thor Björgólfsson vera eitraða blöndu.

Forsetahjónin meðal áhorfenda í Vín

Íslensku forsetahjónin eru meðal áhorfenda á leik Íslands og Póllands um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í handbolta sem fer fram í Vín í Austurríki.

Drengurinn líklega útskrifaður af gjörgæslu í dag

Drengurinn sem bjargaðist úr djúpri sprungu á Langjökli síðdegis í gær er ekki lífshættu. Hann verður líklega útskrifaður af gjörgæsludeild Landspítalans síðar í dag, að sögn vakthafandi læknis. Hann losnaði úr öndunarvél í morgun.

Vilja rannsóknarnefnd um Íraksstríðið

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar, og Ögmundur Jónasson, þingmaður VG og fyrrverandi ráðherra, vilja að rannsóknarnefnd verði skipuð um aðdraganda þess að Íslandi lýsti yfir stuðningi við innrásina í Írak árið 2003. Munu þau leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis á Alþingi eftir helgi.

Endurtalið í Hafnarfirði

Atkvæði í prófkjörum Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði verða endurtalin þar sem fáum atkvæðum munaði milli manna. Tveimur atkvæðum munaði til að mynda á efstu mönnum í prófkjöri sjálfstæðismanna.

Leituðu línubáts

Fyrir hádegi í dag hvarf 12 tonna línubátur úr fjareftirlitskerfi Landhelgisgæslunnar. Var báturinn síðast staddur um 18 sjómílur norðvestan af Garðskaga.

Drengurinn ekki lengur í öndunarvél

Drengurinn sem bjargaðist úr hyldjúpri sprungu á Langjökli síðdegis í gær er laus úr öndunarvél. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans er drengurinn vakandi og líðan hans eftir atvikum góð.

Langjökull krosssprunginn á slysstaðnum

Sjö ára drengur liggur nú á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hann bjargaðist úr hyldjúpri sprungu á Langjökli síðdegis í gær. Móðir hans var látin þegar hún náðist upp úr sprungunni.

Opið í Hlíðarfjalli og á Siglufirði

Fínt skíðafæri er nú sagt í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar og nægur snjór, enda allar snjóvélar keyrðar á fullu, að sögn ráðamanna þar. Þar var sjö stiga frost í morgun og lítilsháttar gola og það verður opið í Hlíðarfjalli til klukkan fjögur í dag. Skíðasvæðið á Siglufirði verður einnig opið í dag til klukkan fjögur. Þar er sagt logn og heiðskírt og 5 stiga frost, og færið er einnig sagt mjög gott, troðinn þurr snjór.

Sigrún Elsa: Útkoman ekki sú sem stefnt var að

Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir útkomu sína í prófkjöri sú sem að var stefnt. Hún sóttist eftir öðru sætinu ásamt tveimur borgarfulltrúum og einum varaborgarfulltrúa en hafnaði í sjöunda sæti. Sigrún Elsa var varaborgarfulltrúi á árunum 1998 til 2007 þegar hún tók sæti í borgarstjórn sem aðalmaður þegar Steinunn Valdís Óskarsdóttir var kjörin á þing.

Bræla hamlaði loðnuveiðum

Bræla á loðnumiðunum út af Austfjörðum kom í veg fyrir að skipverjar á Vilhelm Þorsteinssyni gætu veitt eins og þá langaði í gærkvöldi. Þeir köstuðu þó einu sinni og fengu 50 tonn, að sögn Kristjáns Vilhelmssonar, útgerðarstjóra Samherja. Menn búast þó að veðrið gangi niður í dag. Fleiri skip eru nú að tygja sig til loðnuveiða, þannig er Hornafjarðarbáturinn Jóna Eðvalds nú á leið á miðin.

Íslendingur sigraði á stærsta snjóbrettamóti heims

Halldór Helgason, 18 ára gamall Akureyringur, sigraði snjóbrettakeppni á stærsta íþróttamóti heims þar sem keppt er í jaðaríþróttum og fer fram um helgina í Aspen í Colorado. Síðar í dag keppir hann til úrslita í annarri grein á mótinu. Á föstudaginn var hann valinn nýliði ársins á ráðstefnu tveggja stærstu snjóbrettablaðanna í Bandaríkjunum sem fór fram í Denver í Colorado.

Skemmdi fimm bíla við Hverfisgötu

Maður um tvítugt var handtekinn í nótt grunaður um að hafa brotist inn í og skemmt fimm bíla við Hverfisgötu og Smiðjustíg í miðborg Reykjavíkur. Ekki er vitað hvað honum gekk til en hann var undir áhrifum áfengis. Maðurinn verður yfirheyrður síðar í dag.

Kona lést á Langjökli

Konan sem féll í sprungu á Langjökli ásamt sjö ára gömlum syni sínum var látin þegar björgunarsveitarmenn komu á vettvang. Drengurinn var fluttur með þyrlu á Landspítala.

Bæjarfulltrúi ekki meðal efstu manna í Hafnarfirði

Þegar búið er að telja 58% atkvæða í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er bæjarfulltrúinn Gísli Valdimarsson ekki meðal efstu manna. Gísli var í sjöunda sæti þegar fyrstu tölur voru birtar en nú vermir Eyjólfur Sæmundsson, verkfræðingur og varabæjarfulltrúi, það sæti.

Boltinn hjá Íslendingum í Icesave-deilu

Eftir fund með fjármálaráðherra Hollands og Bretlands er boltinn hjá íslenskum stjórnvöldum, en þjóðirnar eru opnar fyrir tillögum Íslendinga að lausn á Icesave deilunni.

Þyrlan komin til Reykjavíkur

Viðamiklar björgunaraðgerðir hafa verið á Langjökli í dag við að ná konu og sjö ára gömlum syni hennar upp úr djúpri jökulsprungu. Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti nú undir kvöld með annað þeirra við Borgarspítalann en engar staðfestar upplýsingar hafa fengist um líðan þeirra.

Guðmundur Rúnar í fyrsta sæti

Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltrúi og stjórnmálafræðingur, er í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði þegar talinn hafa verið rúmlega 400 atkvæði eða 35%. 1150 greiddu atkvæði. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri, sóttist eftir sjötta sæti en bæjarfulltrúar í Hafnarfirði eru ellefu.

Óbreytt staða í Hafnarfirði

Röð efstu manna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hefur ekkert breyst frá því að fyrstu tölur voru birtar fyrr í kvöld. Valdimar Svavarsson, hagfræðingur, er í fyrsta sæti. Hann sagði í samtali við fréttastofu fyrr í kvöld að hann teldi að sigurstranglegur listi væri að myndast.

Litlu munar á 4. til 7. sæti

Bjarni Karlsson, frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar, segist vera ákaflega sáttur við þann stuðning sem hann fær í prófkjörinu. Þegar fyrstu tölur voru birtar var Bjarni í fimmta sæti en þegar þær voru birtar í annað sinn hafði hann haft sætaskipti við Dofra Hermannsson, varaborgarfulltrúa, sem var í sjötta sæti.

Hjálmar: Ég vissi betur en reynsluboltarnir

„Ég er nýr í pólitík en mér var reyndar sagt af reynsluboltum að ég ætti engan séns en ég vissi betur,“ segir Hjálmar Sveinsson, útvarpsmaður, sem er þessa stundina í fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík.

Dagur: Geysilega sterkur hópur með breiða skírskotun

„Ég er mjög sáttur með niðurstöðuna en það er auðvitað ekki búið að telja allt þannig að innbyrðis röðun einstakra frambjóðenda getur breyst. Það er aftur á móti alveg ljóst að hópurinn er geysilega sterkur, með breiða skírskotun og kemur með mikilvæga reynslu víða úr samfélaginu inn í stjórmálin. Það er endurnýjun á ferðinni,“ segir Dagur B. Eggertsson, varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Reykjavík, um nýjustu tölur í prófkjöri flokksins vegna kosningarnar í vor.

Dofri kominn upp yfir séra Bjarna

Dofri Hermannsson, varaborgarfulltrúi, færðist upp um eitt sæti þegar tölur í prófkjöri Samfylkingarinnar voru birtar nú rétt eftir klukkan sjö. Þegar fyrstu tölur voru lesnar klukkan sex var hann í sjötta sæti og séra Bjarni Karlsson í því fimmta. Röð efstu manna er að öðru leyti óbreytt.

Valdimar efstur í Hafnarfirði - ánægður með stuðninginn

Valdimar Svavarsson, hagfræðingur, er efstur í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Talinn hafa verið 575 atkvæði. Flokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa í kosningunum 2006. Rósa Guðbjartsdóttir, er eini bæjarfulltrúinn, sem sækist eftir endurkjöri.

Bæjarstjórinn vann á Akureyri - sitjandi bæjarfulltrúi féll

Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, sigraði í netprófkjöri Samfylkingarinnar í bæjarfélaginu en kosið var í dag og í gær. Sitjandi bæjarfulltrúi féll úr þriðja sæti niður í það fimmta en flokkurinn fékk þrjá bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum 2006.

Sigrún Elsa í sjöunda sæti - Oddný í öðru

Sigrún Elsa Smáradóttir, borgarfulltrúi, sem sóttist eftir 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík er 7. sæti þegar rúmlega 23% atkvæða hafa verið talinn. Samfylkingin fékk fjóra borgarfulltrúa kjörna í kosningunum fyrir fjórum árum. Þrír borgarfulltrúar raða sér í efstu þrjú sætin. Hjálmar Sveinsson, útvarpsmaður, og séra Bjarni Karlsson koma næstir.

Margrét Lind sigraði á Seltjarnarnesi

Margrét Lind Ólafsdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi, sigraði í forvali Samfylkingarinnar sem fór fram á Seltjarnarnesi í dag. Samfylkingin býður fram í fyrsta sinn undir fána í bæjarfélaginu í vor.

Björgunaraðgerðum að ljúka á Langjökli

Aðgerð björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem var á Langjökli í dag, þegar kona og barna féllu í sprungu á jöklinum, er að ljúka. Um 120 björgunarsveitamenn af suðvesturhorni landsins tóku þátt í aðgerðinni. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan fólksins.

Krefjast stefnubreytingar í málefnum skuldara

Kröfufundur Hagsmunasamtaka heimilanna og samtakanna Nýs Íslands sem fór fram í dag krefst tafarlausrar og afgerandi stefnubreytingar stjórnvalda í málefnum skuldara.

Önnur þyrla send á Langjökul

Önnur þyrla frá Landhelgisgæslunni er lögð af stað til að taka þátt í björgunaraðgerðunum á Langjökli þar sem barn og kona féllu í sprungu eftir hádegi. Þyrlan lendir á jöklinum innan skamms. Í henni eru tæki og ljósabúnaður sem mun nýtast í aðgerðunum dragist þær langinn.

Elfur hlaut fjórða sætið

Elfur Logadóttir, lögfræðingur, hafnaði í fjórða sæti í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fer fram í Smáraskóla. Í fyrstu var kosið kosið á milli fimm frambjóðenda um fjóra sætið en þar sem enginn fékk meira en 50% var kosið á milli þeirra tveggja sem fengu flest atkvæði.

Rannsóknarnefndin móðgar þing og þjóð

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, segir ekki hægt að bíða lengur eftir því að rannsóknarnefnd Alþingis gefi út hvaða dag skýrsla nefndarinnar verði birt. Annað sé móðgun við þjóð og þing.

Pétur sigraði Tjörva

Pétur Ólafsson, 30 ára gamall þýðandi og sagnfræðingur, hlaut afgerandi kosningu í þriðja sætið í forvali Samfylkingarinnar í Kópavogi sem fer fram í Smáraskóla. Hann fékk 65% atkvæða, en mótframbjóðandi hans Tjörvi Dýrfjörð fékk 33,5%. Auðir seðlar og ógildir voru 1,5%. Í fyrstu var kosið á milli átta frambjóðenda um þriðja sætið.

Þyrlan lent á Langjökli - verið að hífa einn upp

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Langjökli rétt fyrir klukkan tvö en kona og barna féllu í sprungu á vestanverðum jöklinum fyrr í dag. Skömmu fyrir þrjú var verið að hífa annað þeirra upp. Engar fregnir hafa borist af líðan fólksins.

Sjá næstu 50 fréttir