Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Enn varað við óveðri víða um land Vegagerðin varar við óveðri á sunnanverðu Snæfellsnesi og veður á Vestfjörðum og Norðurlandi fer versnandi. 14.2.2010 19:50
Ísland verði griðastaður frjálsrar fjölmiðlunar Gera á Ísland að alþjóðlegum griðastað frjálsrar fjölmiðlunar samkvæmt þverpólitískri þingsályktunartillögu sem lögð verður fram á Alþingi á næstu dögum. Einn af stofnendum vefsíðunnar Wikileaks telur líklegt að erlendir fjölmiðlar setji upp starfsstöðvar hér á landi verði ályktunin samþykkt. 14.2.2010 19:37
150 manns taka þátt í leitinni á Langjökli Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar leita nú að konu og unglingi sem voru í vélsleðaferð með hópi á Langjökli og urðu viðskila við hann. 14.2.2010 19:18
Leitað að vélsleðamönnum á Langjökli Björgunarsveitir Landsbjargar hafa verið kallaðar út ásamt þyrlu frá Landhelgisgæslunni til þess að leita að tveimur vélsleðamönnum sem urðu viðskila við hóp sleðamanna á Langjökli í dag. 14.2.2010 18:27
Tíu í prófkjöri Samfylkingar í Reykjanesbæ Fimm konur og fimm karlar gefa kost á sér í opnu prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ sem fram fer laugardaginn 27. febrúar í sal Verslunarmannafélags Suðurnesja að Vatnesvegi 12. Í tilkynningu frá flokknum segir að allir kosningabærir íbúar Reykjanesbæjar geti kosið í prófkjörinu. 14.2.2010 17:26
Hagsmunasamtök íbúa á Álftanesi stofnuð í dag Hagsmunasamtök íbúa á Álftanesi verða stofnuð á fundi sem hefst klukkan hálf fimm í dag. Brynja Guðmundsdóttir íbúi í bænum átti hugmyndina að stofnun samtakanna og segir hún að um sé að ræða samtök sem eigi að berjast fyrir framtíð bæjarfélagsins sem gengið hefur í gegnum miklar hremmingar undanfarið. 14.2.2010 16:13
Annar kominn úr öndunarvél Annar mannanna sem misstu meðvitund um borð í fjölveiðiskipinu Hoffelli á Fáskrúðsfirði í morgun er kominn úr öndunarvél. Hinn er enn í öndunarvél að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans. 14.2.2010 16:03
Mátti litlu muna þegar leki kom að bát Hjálmar Örn Guðmarsson hjá Slysavarnarfélagi Landsbjargar var einn af þeim sem komu að björgun Sómabáts sem leki kom að fyrr í dag. Hann segir að mikið vatn hafi verið komið um borð í bátinn þegar björgunarbátinn bar að garði en Sómabáturinn var staddur á sjónum út af Garðakirkju þegar óskað var eftir aðstoð. 14.2.2010 15:43
Endurupptaka þjóðlendumála verði heimiluð Landssamtök landeigenda á Íslandi skora á Alþingi og ríkisstjórn að breyta lögum um þjóðlendur þannig að þar verði sett inn ótímabundið heimildarákvæði um endurupptöku mála komi fram ný sönnunargögn í þjóðlendumálum sem lokið er með dómum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum en þetta var samþykkt samhljóða á aðalfundi þeirra í Reykjavík á fimmtudaginn var. 14.2.2010 15:25
Leki kom að bát Björgunarbátur frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu kom trillu til aðstoðar í dag en leki kom að bátnum fyrir utan Hafnarfjarðarhöfn. Björgunarsveitarmenn komust að bátnum áður en lekinn varð of mikill og var báturinn dreginn til hafnar. 14.2.2010 15:14
Reyndi að stinga lögregluna af í miðbænum Lögregla veitti manni eftirför um miðnætti í nótt í miðbænum. Maðurinn hafði verið stöðvaður við hefðbundið umferðareftirlit á mótum Klapparstígs og Hverfisgötu. Áður en lögregla náði tali af manninum ók hann af stað á ný og reyndi að stinga af. Hann fór upp Klapparstíginn og var að lokum króaður af við Snorrabraut. 14.2.2010 14:27
Gúmmíbát hvolfdi í Skerjafirðinum Slökkviliðsbátur sem staðsettur er á Reykjavíkurflugvelli fór í útkall út á Skerjafjörð um hálftvö í dag eftir að tilkynnt var um gúmmíbát sem var á hvolfi á milli Álftaness og Gróttu. 14.2.2010 14:00
Vegagerðin varar við slæmu ferðaveðri Vegna slæms veðurútlits má búast við slæmu ferðaveðri á Norður og Norðausturlandi í dag og í nótt. Vegagerðin biður vegfarendur því að um að kanna færð og veður áður en lagt er af stað. 14.2.2010 13:34
Báðir í öndunarvél á Landspítalanum Mennirnir sem misstu meðvitund um borð í Hoffelli á Fáskrúðsfirði í morgun eru báðir í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. 14.2.2010 13:07
Má draga hlutleysi Halldórs í efa Sérfræðingur í sveitastjórnalögum vill ekki fullyrða um hvort Halldór Jónsson skoðunarmaður reikninga Kópavogsbæjar sé vanhæfur til að gegna því starfi þótt hann hafi fengið rúmlega 70 milljónir króna greiddar frá bænum vegna annarra starfa. Það sé þó hægt að draga hlutleysi hans í efa í þeim efnum þar sem hann þiggi greiðslur frá bænum á sama tíma og hann yfirfari reikninga hans. 14.2.2010 12:31
Búist við stórhríð í nótt Eftir blíðviðri undanfarinna daga vill Veðurstofan vekja sérstaka athygli á norðan hvassviðrinu sem í vændum er. 14.2.2010 12:22
Milljónatjón hjá Skinnfiski Mikið tjón varð hjá Skinnfiski í Sandgerði í nótt þegar mikill eldur kom upp í fiskikörum sem stóðu upp við hús fyrirtækisins. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í en framkvæmdastjóri Skinnfisks segir tjónið hlaupa á milljónum. 14.2.2010 12:17
Brasilíufangi laus á reynslulausn 32 ára Íslendingur, Karl Magnús Grönvold sem setið hefur í fangelsi í rúmlega tvö ár í Brasilíu vegna fíkniefnainnflutnings var látinn laus úr fangelsinu til reynslulausnar 11.febrúar síðastliðinn. 14.2.2010 11:58
Sigrún Björk og Eiríkur Finnur sigruðu í prófkjörum Sigrún Björk Jakobsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri sigraði í prófkjöri sjálfstæðismanna á Akureyri. Ólafur Jónsson lenti í öðru sæti en Njáll Trausti Friðbertsson í því þriðja. 14.2.2010 11:21
Misstu meðvitund um borð í Hoffelli Tveir karlmenn, báðir í kringum fertugt, voru fluttir á gjörgæsludeild Landspítalans í morgun eftir að þeir misstu meðvitund um borð skipinu Hoffell sem var að landa Gulldeplu á Fáskrúðsfirði. 14.2.2010 11:06
Kveikt í fiskikörum Mikill eldur kom upp í fiskikörum sem stóðu upp við hús fyrirtækisins Skinnfisks í Sandgerði í nótt. Skömmu fyrir klukkan tvö var tilkynnt um mikinn reyk við fyrirtækið og fóru lögregla og slökkvilið á vettvang. Skemmdir eru á húsinu, meðal annars sprungu fjölmargar rúður vegna hita. Slökkvilið náði fljótlega tökum á ástandinu. Grunur er um íkveikju. 14.2.2010 10:26
Menntaskólinn á Egilsstöðum sigraði í Gettu betur Fyrsta umferð í átta liða úrslitum Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna, lauk í kvöld með sigri Menntaskólans á Egilsstöðum. Austanmenn leiddu nær alla keppnina og fóru leikar á þann veg að ME náði 24 stigum en Garðbæingar náðu 22 stigum. 13.2.2010 21:16
Eiríkur Finnur efstur á Ísafirði Eiríkur Finnur Greipsson er efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði þegar 421 atkvæði hefur verið talið. Mikil þátttaka var í prófkjörinu og í upphafi kjörfundar voru 849 á kjörskrá. Mikið var um nýskráningar í flokkinn að því er fram kemur á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins og ekki er endanlega ljóst hve margir eru á kjörskrá. 13.2.2010 20:01
Sleppt of snemma af spítala eftir sjálfsvígstilraunir Móðir rúmlega tvítugs pilts sem svipti sig lífi fyrir tæpum tveimur árum segir bráðnauðsynlegt að þeir einstaklingar sem geri tilraun til sjálfsvígs verði lagðir inn á spítala í nokkra daga og hljóti viðeigandi meðferð. Syni hennar var sleppt daginn eftir slíka tilraun en endaði svo líf sitt tveimur mánuðum síðar. 13.2.2010 19:19
Búið að slökkva eld um borð í Oddeyrinni Búið er að slökkva eldinn sem kom upp í vélarrúmi Oddeyrarinnar, skuttogara í eigu Samherja sem lá bundinn við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn. Reykkafarar unnu bug á eldinum fljótt og örugglega en töluverður eldur var í vélarrúminu að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 13.2.2010 17:52
Landsvirkjun tryggi raforku til Helguvíkur Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra er fylgjandi því að Landsvirkjun tryggi raforku tímabundið til álvers í Helguvík svo smíði þess tefjist ekki enn frekar. 13.2.2010 18:57
Eldur um borð í Oddeyrinni í Hafnarfjarðarhöfn Allt tiltækt slökkvilið hefur verið kallað út vegna elds um borð í skipinu Oddeyrinni við Hafnarfjarðarhöfn. Að sögn vaktstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var tilkynnt um mikinn reyk í vélarrúmi skipsins og eru reykkafarar á leið niður í vélarrúm skipsins þar sem eldurinn er. Allir áhafnarmeðlimir eru komnir frá borði og varð engum meint af. 13.2.2010 16:49
Boða til bílalánamótmæla á þriðjudag Samtökin Nýtt Ísland sem stóðu meðal annara að mótmælum á Austurvelli í dag þar sem allt að 800 manns mættu, hafa boðað til mótmæla fyrir utan Íslandsbankaá Kirkjusandi á þriðjudaginn kemur klukkan 12:15 en þá verða sjöttu bílalánamótmæli samtakanna haldin. 13.2.2010 16:16
Hátt í 400 manns á Austurvelli Hátt í fjögurhundruð manns eru nú stödd á mótmælafundi á Austurvelli en þar hefur fólk safnast saman síðustu mánuði á hverjum laugardegi. Mótmælin eru skipulögð af samtökunum Nýtt Ísland og Hagsmunasamtökum heimilanna. 13.2.2010 15:10
TF-Líf á flugi yfir Smáralind Í framhaldi af 112 deginum sem haldinn var á fimmtudaginn var munu fulltrúar frá Landsbjörgu, lögreglu og Neyðarlínunni verða með kynningu á starfsemi sinni í Smáralindinni í dag. Þar verður ýmislegt til sýnis og gefst fólki til dæmis kostur á að skoða lögreglubíla og mótorhjól. 13.2.2010 14:05
Stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður, segir að stjórnvöld geti ekki vikið sér undan ábyrgð þegar kemur að fjárhagslegri endurskipulagningu skuldsettra fyrirtækja. Á fundi viðskiptanefndar með forsvarsmönnum bankanna í gær kom fram að þeir telji sig vinna að fullu eftir vilja stjórnvalda og þeim skilaboðum sem stjórnvöld hafi gefið bönkunum sem eigendur. 13.2.2010 12:08
Eygló óskar eftir fundi í viðskiptanefnd Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins hefur óskað eftir því að haldinn verði fundur í viðskiptanefnd sem fyrst þar sem farið verði yfir gengistryggð lán og lagalega stöðu þeirra í ljósi dómsins sem féll í gær í héraðsdómi Reykjavíkur. Þar var bíleigandi sýknaður af kröfum fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar og komst dómarinn að þeirri niðurstöðu að ólögmætt sé að gengistryggja kaupleigusamning við erlenda gjaldmiðla. 13.2.2010 11:12
Vakningalestin á ferðinni Vakningalest samtakanna Nýtt Ísland er þessa stundina að vekja bankastjórn Íslandsbanka ásamt bankastjórum Íslandsbanka, Arion og Landsbankans til að minna þá á að mæta á tíunda kröfufund Hagsmunasamtaka heimilanna og samtakanna Nýs Íslands á Austurvelli klukkan þrjú í dag. 13.2.2010 10:17
Féll sex metra út um glugga - líðan telpunnar stöðug Líðan telpunnar sem féll eina sex metra út um glugga í Þingholtunum í gær er stöðug að sögn vakhafandi læknis. Hún er ekki í lífshættu en læknirinn vill ekki gefa upp hvort hún hafi beinbrotnað við fallið. 13.2.2010 10:13
Fagna niðurstöðu héraðsdóms í myntkörfumáli Samtökin Nýtt Ísland, sem staðið hafa að mótmælum á Austurvelli, undanfarna laugardaga fagna dómi vegna ólögmætis myntkörfulána sem dæmt var látakenda í vil í gær í Héraðsdómi. 13.2.2010 10:09
Ökuníðingar, innbrotsþjófar og slagsmálahundar Lögregla hafði í nógu að snúast í nótt um alla borg. Í miðbænum sást til ökumanns sem ók undarlega og ætlaði lögregla að stöðva manninn. Hann gaf hinsvegar í og ók á miklum hraða eftir götum miðborgarinnar. Að lokum var hann stöðvaður í Þingholtunum og reyndist um 17 ára pilt að ræða með bráðabirgðaökuskírteini. Hann var að auki ölvaður og fékk hann að sofa úr sér á lögreglustöðinni. 13.2.2010 09:56
Tæplega tíu þúsund manns mættu á Safnanótt Safnanótt var haldin í nótt og heppnaðist hún með með eindæmum vel að sögn skipuleggjenda. Tæplega 10.000 manns tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá Safnanætur og nutu 150 viðburða á þeim 35 söfnum sem tóku þátt. 13.2.2010 09:32
Á spítti á 180 kílómetra hraða Ökumaður mældist á 180 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni við Vogaveg í nótt. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, ók áfram vestur Reykjanesbraut og beygði inn á Grindavíkurveg þar sem hann stöðvaði loks för sína. 13.2.2010 09:28
Fjórflokki ekki treyst Þær miklu vonir sem vöknuðu í brjóstum fólks í búsáhaldabyltingunni, svo sem um lýðræðisumbætur og stjórnlagaþing, hafa ekki ræst. 13.2.2010 08:00
Hótanir í Hrútafirði vegna bensínstöðvar Staðarskáli ehf. og eigendur jarðarinnar Staðar í Hrútafirði sögðust í bréfi til hreppsnefndar Bæjarhrepps myndu beita afli sínu til að hindra að leyfi yrði gefið fyrir öðrum þjónustuskála í Hrútafirði. 13.2.2010 07:00
Telur erlendum arkitektum hyglað í forvali Landspítala Hilmar Þór Björnsson, arkitekt og stjórnarmaður í Arkitektafélagi Íslands, segir að kröfur í forvali í arkitektasamkeppni fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut útiloki íslenska arkitekta. Hann telur kröfurnar benda til að meðvituð ákvörðun hafi verið tekin um að beina verkefninu út fyrir landsteinana. Formaður forvalsnefndar segir þetta alfarið rangt. 13.2.2010 06:45
100 milljarðar í Helguvík Framkvæmdir við álver í Helguvík standa undir 100 milljörðum af þeirri 265 milljarða króna fjárfestingu í raforkumannvirkjum og orkufrekum iðnaði, sem stefnt er að í ár og næstu þrjú ár. 13.2.2010 06:00
Saga mistaka og fordóma Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra bað heyrnarlausa afsökunar á langri sögu „mistaka, fordóma og forræðishyggju“ sem einkennt hefði viðhorf stjórnvalda til heyrnarlausra um áratugaskeið. 13.2.2010 06:00
Enn óvissa með útgáfu skýrslu Allsendis er óvíst hvort skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kemur út í þessum mánuði. Upphaflega átti hún að koma út 1. febrúar, en því var frestað og sagt að hún kæmi út fyrir mánaðamótin. 13.2.2010 06:00
Aukið aðgengi fyrir borgarbúa Skipa á sérstakan starfshóp til að skilgreina hlutverk Höfða í framtíðinni. Er þetta gert í kjölfar endurbóta á húsinu eftir brunann sem þar varð í september síðastliðnum. Talið er nauðsynlegt að endurskoða notkun Höfða og huga almennt að húsinu og umhverfi þess eins og segir í tillögu frá forsætisnefnd sem borgarráð samþykkti. „Sérstaklega hefur verið rætt um mikilvægi þess að opna húsið enn frekar fyrir almenningi,“ segir í tillögunni. Formaður starfshópsins verður Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar. - gar 13.2.2010 05:00